Frjáls verslun - 01.07.1997, Side 31
Þjónusta fyrirtækisins við stærri fyrir-
tæki og sveitarfélög vegur hvað þyngst í
starfseminni. Þar er um alhliða þjónustu á
sviði fjármögnunar, eignastýringar og
verðbréfamiðlunar að ræða. Þjónustan fel-
ur í sér að aðstoða við útgáfu hlutabréfa,
skuldabréfa, víxla og hvers kyns markaðs-
verðbréfa, auk sölu bréfanna. Kaupþing
Noröurlands hefur séð um útboð og skrán-
ingu sex þeirra níu norðlensku fyrirtækja
sem skráð eru á Verðbréfaþingi íslands.
HLUTABRÉFASJÓÐIR
Félagið rekur tvo hlutabréfasjóði,
Hlutabréfasjóð Norðurlands og Sjávarút-
vegssjóð íslands. Báðir sjóðirnir mæta
mjög vel þörfum hins breiða hóps fjárfesta
sem eru þátttakendur á markaði í dag.
Gildir það jafnt um einstaklinga eða lögað-
ila, þá sem kjósa öryggi og hina sem eru
áhættusæknari. Kaup á hlutabréfum í báð-
um sjóðunum veitir rétt til skattaafsláttar.
Hlutabréfasjóður Norðurlands hf. fjár-
festir frá 40 til 70% eigna sinna í hluta-
bréfum, en afganginn í traustum skulda-
bréfum. Hefur það stuðlað að jafnri og
góðri ávöxtun sjóðsins, sem verður 6 ára í
nóvember. Aðall sjóðsins er öryggi en
hann hefur sýnt hvað bestan árangur allra
sjóða í gegnum hæðir og lægðir á hluta-
bréfamarkaði. Á síðasta ári skilaði sjóður-
inn hluthöfum um 48% ávöxtun en frá
stofnun sjóðsins í nóvember 1990 hefur
ársávöxtun verið 20% að meðaltali.
Sjávarútvegssjóður íslands hf. var
stofnaður í árslok 1996 og er fyrst og
fremst farvegur fyrir þá sem vilja fjárfesta
í sjávarútvegi og tengdum greinum. Eigna-
dreifing sjóðsins er með þeim hætti að
áhættunni er vel dreift og er leitast við að
fjárfesta í arðbærum félögum á hverjum
tíma. Sjóðurinn fjárfestir allt að 80% eigna
sinna í innlendum og erlendum hlutabréf-
um. Hér er kjörin leið að fjárfesta í undir-
stöðuatvinnuvegum og ávaxta sitt pund.
Sjóðurinn hefur sýnt 11% ávöxtun það
Tryggvi Tryggvason framkvæmdastjóri.
sem af er árinu sem samsvarar tæplega
17% ávöxtun á heilu ári.
Auk þess, sem hér hefur verið nefnt,
selur félagið bréf í verðbréfasjóðum Kaup-
þings hf.
Kaupþing Norðurlands er traust og
framsækið fyrirtæki þar sem sveigjanleiki
og persónuleg þjónusta eru f hávegum
höfð. Félagið nýtur góðs af því að vera ekki
stórt í sniðum, sem gerir það sveigjanlegt
að þörfum viðskiptavina og markaðarins,
en á sama tíma nýtur það stuðnings öfl-
ugra bakhjarla. Auk áralangrar reynslu nýt-
ur fyrirtækið krafta vel menntaðs starfs-
fólks með fjölbreyttan bakgrunn, hér
heima og erlendis.
i i
Sjóvarútvegssjó&ur Islands
éá^KAUPÞING
NOROURLANDS HF
-Löggilt verðbréfafyrirtceki-
Sími: 462 4700 • Fax: 461 1235
Á viðskiptagólfinu er fylgst með þró-
un á verðbréfamarkaði.
Hjá ráðgjöfum Kaupþings Norður-
lands fá viðskiptavinir persónulega
þjónustu.
RIRTÆKI í ÖRUM VEXTI
AUGLÝSINGAKYNNING
31