Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 8

Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 8
Halldór Gunnarsson er einn af tæknimönnum Skýrr. í stjórnstöð Skýrr þar sem fylgst er með tölvunetum. Á myndinni eru Stein- dór Ivarsson (nær) og Marinó Kristínsson. fylgjast með tæknibreytingum og vanda- málum sem geta komið upp og hvort starfsmenn fyrirtækjanna búi ef til vill ekki fyrir nægri þekkingu á sviði tölvumálanna. Skýrr hf. bjóða lausn á þessu með sér- stakri rekstrarþjónustu sem felst í vöktun, afritataka og geymsla afrita og ennfremur verkstjórn, bilanagreining, rýmdaráætlun og rekstur netkerfa. „Skýrr hf. hafa um áratuga skeið ann- ast allan móðurtölvurekstur fyrir stofnanir á borð við Ríkisskattstjóra, Ríkisbókhald, Reykvíkurborg.Tryggingastofnun ríkisins og Hagstofuna, svo nokkur dæmi séu tek- in," segir Þorsteinn Garðarsson, markaðs- stjóri Skýrr. „Skýrr geta tekið að sér að sjá um allan rekstur tölvukerfis stofunarinnar eða fyrirtækisins, bæði hugbúnað og vél- búnað. Þetta getur verið samrekstur, þar sem hluti rekstrarins er hjá okkur og hluti hjá viðskiptavininum sjálfum, eða þetta getur verið meira í formi tækjavörslu." REKSTRARÞJÓNUSTA SKÝRR Tölvuumhverfið í dag getur verið þrennskonar: Móðurtölvuumhverfi, dreift umhverfi og netumhverfi en það er einmitt á því sviði sem nú verður lögð áhersla á að bjóða fram rekstrarþjónustu Skýrr. Fyrsti liður rekstrarþjónustunnar er vöktun á miðlurum, skráarmiðlurum og gagnasöfnum. Vöktunin fer fram hjá Skýrr í gegnum tölvubúnaðinn. Þar sést ef eitt- hvað fer úrskeiðis. Komi eitthvað afbrigði- legt í Ijós eru viðbrögðin fólgin í að sendur er tölvupóstur, send boð í stafa- eða talna- borðstæki eða að hringt er frá stjórnstöð Skýrr í ákveðinn ábyrgðaraðila innan við- komandi fyrirtækis. FV-myndir: Geir Ólafsson. enn varpa stundum fram þeirri spurningu hvort tölvukerfi eða tölvumál fyrirtækjanna séu farin að fjötra þau. Hvort ekki sé lengur tími til að einbeita sér sem skyldi að starfseminni sjálfri vegna þess mikla tíma sem fer í að Annar liður rekstrarþjónustunnar er af- ritataka. Stöðugt er verið að hvetja menn til afritatöku, enda hafa margir verið illa NÝR KOSTUR í TÖLVUM 8

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.