Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 17
KVITTA HER, TAKK!
Þegar hún kom heim með eig-
inmann, nýgift í fjórða sinn, stóð
sonur hennar við dyrnar með
gestabókina og rétti honum.
ORÐLJÓTUR PÁFAGAUKUR
Ljótur munnsöfnuður páfa-
gauks var eiganda hans til mikils
ama. Orðsöfnuðurinn var slíkur
að hann gat blótað í fimm mínútur
samfleytt án þess að endurtaka
sig! Dag einn var eiganda hans
nóg boðið. Hann greip fuglinn
kverkataki, skók hann allan til og
hrópar: „Nú er nóg komið af þess-
um fúkyrðum!“ En þetta æsti
bara páfagaukinn upp um allan
helming og nú blótaði hann sem
aldrei fýrr. Þá tók eigandinn það
til ráðs að hann henti páfagaukn-
um inn í skáp. Páfagaukurinn
varð alveg arfavitlaus við þessa
meðferð, klóraði og beit og
skrækti og þegar honum var loks
sleppt út hellti hann út úr sér hví-
líkum óbótaskömmum og for-
mælingum að annað eins hefur
ekki heyrst.
Nú var eigandinn endanlega
búinn að fá nóg og hann henti
fuglinum ofan í frystikistu. I
fyrstu ætlaði allt um koll að keyra,
en smám saman varð allt - ósköp -
hljótt. Eigandinn fór að halda að
etthvað hefði komið fyrir páfa-
gaukinn þannig að eftir nokkrar
mínútur opnaði hann ffystikist-
una. Páfagaukurinn labbaði í
hægðum sínum upp á útrétta
hönd mannsins og sagði: „Leitt
hvað ég hagaði mér illa. Hér eftir
passa ég betur upp á málfarið."
Eigandinn var steini lostinn, hann
kunni engin skil á þessari breyt-
ingu sem orðið hafði á páfagaukn-
um. Þá sagði páfagaukurinn:
„Meðal annara orða, hvað gerði
kjúklingurinn af sér?“
MAFÍAN
Svo var það Hafnfirðingurinn sem
gekk í Mafíuna. Þeir gerðu honum til-
boð sem hann gat ekki skilið.
BJÓR OG KVENHORMÓN
Vísindamenn í Ameríku komust að
því að bjór inniheldur kvenhormón. Til
að sýna fram á það létu þeir 100 menn
drekka tvær kippur af bjór. Þá kom í
ljós að allir byrjuðu þeir að bulla.
MÓÐIRIN 0G SANDKAKAN
Móðirin var í heimsókn hjá syni sín-
um sem var fangi í ríkisfangelsi.
- Næst, þegar sú sendir mér sand-
köku, ættirðu að láta sagarblað fýlgja
með.
- Heyrðu góði. Þú ætlar þó ekki að
saga þig út úr klefanum?
- Nei, ég ætla að saga mig í gegnum
sandkökuna.
„PLEASE???"
Þau voru komin að útidyrunum
heima hjá henni og það var sama
sagan:
- Eg hátta ekki hjá strák sem ég fer
út með í fyrsta sinn.
- En ef það er í síðasta sinn?
Þú nærð forskoti
þegar tælcnin vinnur með þér
CS - PRO tæknin í Ijósritunarvélum er framtíðarlausn
fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi.
Mikil framleiðni
Sjálfvirk frumritamötun á
mesta, mögulega Ijósritunarhraða
Flokkunar- og heftibúnaður
? sem vinnur hratt og örugglega
MINOLTA
CS-PRO Ijósritunarvélar
Skreli á undan inn í Iramtíðina
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SÍÐUMÚLI 14, 108 REYKJAVlK, SlMI 5813022
17