Frjáls verslun - 01.10.1997, Qupperneq 19
EFAFYRIRTÆKJANNA
a<j
ARMAL
er afar lífleg á milli verðbréfafyrirtœkjanna - og hefursjaldan verið harðari.
þeirra til sögunnar.
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
BÚNAÐARBANKANUM
VERÐBRÉFUM
orsteinn Þorsteinsson, 49
ára, er framkværadastjóri
Búnaðarbankans Verð-
bréfa. Það er sérstakt verðbréfa- og
ijárstýringarsvið innan bankans og
var sett á laggirnar fyrir rúmu ári.
Þorsteinn starfaði áður hjá Nor-
ræna ijárfestingarbankanum, NIB, í Helsinki í um tiu ár - síðast
sem yfirmaður íjármálasviðs sem er ein áhrifamesta staðan innan
bankans. Þorsteinn hefur því yfirgripsmikla reynslu á sviði fjár-
mála. Búnaðarbankinn stofnaði Búnaðarbankann Verðbréf eftír að
hafa selt hlut sinn í Kaupþingi tíl Sparisjóðanna.
Þorsteinn lauk prófi frá Verslunarháskólanum (Handels-
hojskolen) í Kaupmannahöfn árið 1972. Næstu þijú árin var hann
starfsmaður hjá 3M A/S í Kaupmannahöfn er hann kom heim tíl
Islands og hóf störf sem rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi. Þaðan hélt
hann norður í land. Hann var bæjarstjóri á Sauðárkróki á árunum
1978 tíl 1982 er hann var ráðinn framkvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar. Þvi starfi gegndi hann tíl ársins 1986 er hann hóf störf
hjá NIB í Finnlandi. Eiginkona Þorsteins er Þórdís Viktorsdóttir.
TRYGGVITRYGGVASON,
KAUPÞINGI
NORÐURLANDS
ryggvi Tryggva-
son, 26 ára, er
framkvæmda-
stjóri Kaupþings Norður-
lands á Akureyri. Hann
tók við því starfi í byrj-
un febrúar síðastlið-
inn. Tryggvi var um tíma hjá VÍB í Reykjavík áður en hann hélt
norður tíl Akureyrar - til Kaupþings Norðurlands. Tryggvi er raun-
ar Akureyringur í húð og hár - sonur Tryggva Gíslasonar, skóla-
meistara á Akureyri. Tryggvi er yngstur framkvæmdastjóranna
átta sem hér eru kynntír tíl sögunnar.
Tryggvi tók stúdentspróf í Danmörku en nam viðskiptaffæði
við Háskóla Islands. Þar útskrifaðist hann vorið 1995. Um haustíð
hélt hann í framhaldsnám til Skotlands. Hann útskrifaðist með
meistaragráðu í ijármálum frá Strathclyde í Glasgow vorið 1996.
Eiginkona Tryggva er Guðný Maríanna Þorsteinsdóttír og eiga
þau eina dóttur.
JAFET OLAFSSON,
VERDBRÉFA-
STOFUNNI
afet Olafsson,
46 ára, er fram-
kvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar. Fyrir-
tækið tók tíl starfa fyrir rúmu ári og var Jafet einn aðalhvatamað-
urinn að stoihun þess. Jafet var áður framkvæmdastjóri Islenska
útvarpsfélagsins, Stöðvar 2.
Hann hefur víðtæka reynslu á fj ármálamark að n u m en árið
1988 varð hann útíbússtjóri Iðnaðarbankans í Lækjargötu og síðar
Islandsbanka á sama stað. Aður starfaði hann meðal annars hjá
Þróunarfélagi íslands.
Jafet er viðskiptafræðingur að mennt og útskrifaðist frá Há-
skóla Islands 1977. Auk þess að hafa verið áberandi í viðskiptalíf-
inu um árabil hefur Jafet látíð mjög tíl sín taka á sviði félagsmála.
Hann er formaður Badmintonsambands íslands og sat í stjórn
badmintondeildar Vals á árunum 1975 tíl 1985. Eiginkona Jafets er
Hildur Hermóðsdóttir ritstjóri og eiga þau þijú börn.
GUNNAR HELGI
HÁLFDANARSON,
LANDSBRÉFUM
unnar Helgi Hálfdanarson,
46 ára, er framkvæmda-
stjóri Landsbréfa. Hann
hefur langa reynslu af verðbréfa-
viðskiptum en árið 1980 var
hann ráðinn framkvæmdastjóri
Fjárfestingarfélags íslands.
Þegar Landsbankinn stofhaði
dótturfélag sitt, Landsbréf,
árið 1989 var hann ráðinn forstjóri þess. Gunnar er einn kunnastí
maðurinn hér á landi í verðbréfaviðskiptum eftír að hafa verið í eld-
línunni á því sviði í um sextán ár. Hann hefur setið í ýmsum nefnd-
um, tilnefndur af opinberum aðilum.
Gunnar varð viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1976. Á ár-
unum 1981 til 1983 fékk hann leyfi frá störfum sem framkvæmda-
stjóri Fjárfestingarfélagsins og hélt í framhaldsnám tíl Kanada.
Hann útskrifaðist með meistaragráðu í rekstrarhagfræði, með jár-
mál sem sérgrein, frá McMaster University í Hamilton, Ontario í
Kanada, vorið 1983. Eiginkona Gunnars er Gunnhildur Lýðsdóttír
og eiga þau þrjú börn.
19