Frjáls verslun - 01.10.1997, Side 21
BTiármál
hins vegar verið duglegri að hreyfa mig
á markaðnum, kaupa og selja, og því tvö-
til þrefaldað það fjármagn sem við höf-
um með hefðbundinni innkomu."
Hefurðu fullt frelsi frá stjórn sjóðs-
ins?
„Eg hef fullt frelsi frá hendi stjórnar
til að stýra ijárfestingum. Tvisvar til þris-
var á ári geri ég stjórn grein fyrir því
hvað ég hef gert. Stjórnarmenn geta
gert athugasemdir en hingað til hef ég
engar athugasemdir fengið. Eftir því
sem ég kemst næst í samtölum við aðra
stjórnendur lífeyrissjóða er ég líklega
frelsiskóngur. Eftir því sem fleiri þurfa
að taka ákvarðanir og jafnvel heilu
stjórnarfundirnir verða athafnir á mark-
aðnum hægari. Það gengur ekki að
þurfa að bíða ákvörðunar fjölda manna
ef góð færi koma upp. Það er betra að
hafa full völd og standa og
falla með ákvörðunum."
Hvað með kostnað á bak
við viðsldptin?
„Verðbréfafyrirtækin
taka um 1-2% í þóknun og
því verður að taka þann
kostnað inn í reiknings-
dæmið. Maður gerir enga
breytingu ef maður kemst
að því að kostnaðurinn er of
hátt hlutfall. Síðan er það
stefna að leita inn á þau
svæði heimsins sem gefa
besta ávöxtun hverju sinni,
hvort sem er í Japan eða
Bandaríkjunum. Eg elti bara
góð svæði og er óhræddur við að færa
mig til á markaðnuin."
Tekurðu mikla áhættu eða hefurðu
áhættumörk?
„Eg tel mig vera með mikla áhættu-
dreifingu vegna íjölbreytileika eigna-
safnsins. Það er markaðsáhætta í bréfun-
um því markaðir sveiflast. Lífeyrissjóðir
hafa hins vegar svo mikla biðlund og því
Eignasamsetning
Hlifar
■ Islensk skuldabréf 40%
■ íslensk hlutabréf 15%
□ Erlend hlutabréf 20%
■ Erlend skuldabréf 5%
■ Veröbréfasjóöir 20%
þurfum ekki að losa eignir
fyrr en árið 2020 eða þar
um bil. Við getum því beðið
af okkur allar sveiflur,
hvort sem er í gjaldeyri
eða gengi einstakra bréfa.
Fall á markaðnum í lík-
ingu við það sem varð er-
lendis um daginn og hér
heima í sumar er nokkuð
sem alltaf getur komið
upp og við vitum um.
Við erum ekkert viðkvæmir
fyrir slíku. Eins og jarðskjálfti; maður
veit að hann kemur en ekki hvenær.“
Hvernig er samsetning eigna lífeyr-
issjóðsins?
„Sjóðnum er núna skipt í íslensk
skuldabréf, íslensk hlutabréf, erlend
hlutabréf, erlend skuldabréf og verð-
bréfasjóði. Samsetningin er
breytileg frá einum tíma til
annars. Það getur komið upp
sú staða að hlutabréf standa í
stað eða jafnvel lækka. Þá
myndast allt aðrar forsendur
og við myndum flytja þung-
I ann t.d. yfir í skuldabréf.
í Undanfarið höfum við flutt
skuldabréf yfir í hlutabréf
og verðbréfasjóði. Skulda-
bréf eru öruggari en hlutabréf
skila meiri ávöxtun í dag.
Næsti stjórnarfundur mun síð-
an taka ákvörðun um
fjárfestingarstefnu næsta árs.“
Er sjóðurinn bundinn af
ákveðnum íjárfestingum?
„Það er liðin tíð. Áður voru 55% af ráð-
stöfunarfé sjóðsins bundin í kaupum á
húsnæðisbréfum ríkisins. Fram til árs-
ins 1987 voru varla til markaðsbréf, ein-
göngu lán til sjóðsfélaga og skyldukaup
af ríkinu. Það var ekkert hægt að hreyfa
sig meira en það.“
Seturðu einhverja ávöxtunarkröfu?
Q:
2s™-.c:sSSas~:
veriiun náði á
dOgunum .kcmma
SZZs
*UltH 173% i,-
£££irr'
u,lu fimm ánn.
, c*nu »fnnf ávtta
„nf'Vfyfy" ve^lunar nv(,.
„Nei, bara að
vinna eins vel úr markaðsaðstæðum og
hægt er hveiju sinni.“
Sinnirðu framvirkum samningum?
„Hingað til hef ég ekki gert neitt af
slíku. Framvirkir samningar eru til að
tryggja sig fyrir einhverjum markaðs-
breytingum. Það getur líka verið áhætta
í því fólgin því þróunin getur verið í aðra
átt en maður tryggir sig fyrir. Vegna
þess að sjóðurinn er tiltölulega ungur og
ekki verið að greiða nema þriðjung af
því, sem inn kemur, er betra að nota bið-
lundina."
Nú ertu farinn að sjá samsetningu
sjóðsfélaga næstu áratugi!
„Nú er sjóðurinn á uppsöfnunarstigi
en um 2010 til 2020 verður komið jafii-
vægi á innborganir og útborganir. Svo
vitum við ekki hvort þeim, sem borga
inn í sjóðinn þegar fram líða stundir,
ijölgar hugsanlega.“
Telurðu að frelsið, sem þú hefur, sé
lykillinn að þessum árangri?
„Að stórum hluta. Vegna þess að sú
stefna, sem tekin var árið 1994, hefiir
skilað árangri. Aðrir fóru sér mun hæg-
ar. Á ráðstefnu á dögunum hjá VÍB kom
fram hugmynd um stefnumótun framtíð-
ar og hún var að meginstofni til eins og
samsetning Hlífarsjóðsins er í dag. Lang-
tímamarkmið annarra eru svipuð því
sem við stundum í dag.“ 33
VERÐBREFASTOFAN
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 533-2060
21