Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 24
■ 1 m t 1 Æjm
PP m*
■ 1 É?
MFÆSP-
Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri
Opinna kerfa. „Hagsmunir þessara
tveggja fyrirtækja fara saman.”
FV-mynd: Geir Olafsson.
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags Islands. Félagið
keyptí 18,2% hlut í Hans Petersen
og sest Andri þar í stjórn.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
Hildur Petersen, firamkvæmdastjóri
Hans Petersen: „Við fórum þá leið
að velja okkur hugsanlega hluthafa.”
FV-mynd: Kristján Maack.
HANS PETERSEN OPNAÐ FYRIR
Salan á 36% hlutabréfa í Hans Petersen er afar forvitnileg. Þróunin veröur örugglega sú aö
„Kodak opnast”.
Hans Petersen
er þekktast fyrir
Kodak-vörurnar.
FV-mynd: Krist-
ín Bogadóttír.
Fréttin um að rótgróið, lokað fjöl-
skyldufyrirtæki, eins og Hans Petersen,
nnli t rnn
um flárfestum, er örugglega aðeins sú
fyrsta í röð fleiri slíkra frétta á næstu
misserum. Lokuð fjölskyldufyrirtæki
munu opnast og við það verður hluta-
bréfamarkaðurinn enn meira spennandi.
Fleiri kostir verða í boði fyrir fjárfesta.
Nú er líka lag því mikil eftirspurn er eftir
hlutabréfum.
Bæði Hans Petersen og Opin kerfi
hafa verið nokkuð í sviðsljósinu á árinu,
sérstaklega Opin kerfi. Fyrirtækið var sl.
vor skráð á Verðbréfaþingi íslands og
sömuleiðis hefur það fyrr á þessu ári
keypt 51% í Skýrr, um 40% í ACO, um 23%
í Skímu-Miðheimum. Nýlega keyptu
Opin kerfi í hugbúnaðarfyrirtækinu Hug.
Og loks voru það kaupin í Hans Petersen.
Opin kerfi keyptu þar 18,2% - eða jafn
stóran hlut og Þróunarfélag Islands.
En hvers vegna ákváðu hluthafarnir,
Petersen-ijölskyldan, að opna fyrirtæk-
ið einmitt á 90. afmælisári fyrirtækis-
ins? Hildur Petersen, sonar-
dóttir stofnandans, Hans
að vakti mikla athygli á dögun-
um þegar hluthafar í hinu gamal-
kunna og rótgróna fjölskyldufyr-
irtæki, Hans Petersen hf., opnuðu fyrir-
tækið gagnvart nýjum hluthöfum og
seldu liðlega 36% hlut til Opinna kerfa og
Þróunarfélags Islands. Hluthafarnir,
þrettán að tölu, seldu allir jafnt af sínum
hlut. Ekki vakti það síður athygli þegar
gefin var yfirlýsing um að stefnt yrði að
því að Hans Petersen yrði skráð á Verð-
bréfaþingi og þar með gert að almenn-
ingshlutafélagi. Með öðrum orðum; að
því yrði breytt úr heíðbundnu, lokuðu
flölskyldufyrirtæki í eftirsóknarvert fyrir-
tæki á hlutabréfamarkaðnum.
Petersen, og framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins, svarar því:
„Það má segja að á þessu afmælisári
höfum við sest niður og skoðað framtíð-
armöguleikana. Við fórum þá leið að
velja okkur hugsanlega hluthafa. Ef horft
er til framtíðar er ljósmynda- og tölvu-
tæknin að tvinnast saman. Opin kerfi hf.
hafa getið sér gótt orð á tölvusviðinu og
eru meðal annars með umboð fyrir Hew-
lett Packard. Erlendis eru Kodak og
Hewlett Packard í samstarfi í þróun á
Ijósmyndapappír fyrir tölvur og prentara
og því lá beint við að leita til Opinna
kerfa. Við opnuðum málið með tilliti til
þeirrar samleiðar sem við ættum í fram-
tíðinni. Þróunarfélagið er einnig fram-
sækið fyrirtæki með góða arðsemi," seg-
ir Hildur.
Hvernig sér hún fyrir sér samstarfið í
framtíðinni?
,Að mínu mati er hollt að opna félagið
fyrir nýjum straumum. Fulltrúar hinna
nýju eigenda, Frosti og Andri, eru með
mikla reynslu í viðskiptum og með púls-
inn á atvinnulífinu. Þeir koma inn í stjórn-
ina núna og lögð verður enn meiri
áhersla á nýjungar á ljósmyndamarkaði.
Sá markaður er í mikilli þróun vegna
tölvutækninnar. Sem dæmi má nefna
stafrænar myndavélar sem tengdar eru
TEXTI: JOHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR