Frjáls verslun - 01.10.1997, Qupperneq 37
MARKAÐSMÁL
þrír fóru í samstarf við heimamenn um
opnun kráarinnar. Það voru fulltrúar
Cammerlander ijölskyldunnar, sem er
gamalgróin í veitingarekstii í borginni,
og nærvera þeirra liðkaði oft hjól
skrifræðisins.
Bjarni segir að þeir félagar séu
langt í frá af baki dottnir og séu um
þessar mundir að skoða ýmsa mögu-
leika á opnun enn einnar írskrar kráar
einhvers staðar á meginlandi Evrópu.
ALLT FYRIR ÞIG í EINUM PAKKA
En þetta er ekki allt því nýjasta hug-
myndin byggir á því að selja öllum
þeim, sem vilja reka írska krá, nauð-
synlegan búnað til þess að halda utan
um reksturinn og veita þeim nokkurs
konar ráðningar- og umboðsþjónustu.
„Við köllum þetta All 4 You sem vís-
ar til þess að þetta byggir á ijórum þátt-
um. I íyrsta lagi útvegum við og eigum
vörulista yfir gamlar innréttingar, hús-
gögn og annað það sem nauðsynlegt
kann að þykja til þess að innrétta írska
krá án þess að notast við eftirlíkingar. I
öðru lagi útvegum við alla írska tónlist
á geisladiskum og böndum og höldum
skrá yfir listamenn frá Irlandi sem vilja
koma fram á slíkum krám og útvegum
þá. í þriðja lagi ætlum við að reka ráðn-
ingarþjónustu þar sem tryggt er að
starfsfólkið hafi reynslu af starfi á
krám og sé hæft til þess að vera nokk-
urs konar sendiherrar Irlands erlend-
is. Við munum taka viðtöl við alla, sem
verða á skrá, og tryggja að þeir fari á
námskeið ef þeir hafa ekki reynslu.
I ijórða og síðasta lagi erum við í
samvinnu við íslensk fyrirtæki með
hugbúnað til þess að halda utan um
rekstur, innkaup og annað sem verður
að hafa styrkt eftirlit með eigi ekki illa
að fara. Við erum í þann veginn að fara
í loftið með þetta og okkar markaður er
allur heimurinn og allir þeir sem vilja
reka írska krá eða gera það nú þegar.“
Bjarni sagði að þessi þjónusta yrði
fyrst um sinn rekin á Internetinu ein-
göngu, enda væri það eðli málsins
samkvæmt besti vettvangurinn fyrir
þjónustu af þessu tagi.
Þannig nær þessi fjölþjóðlegi hópur
manna að sameina írska stemningu og
íslenskt hugvit og gera að útflutnings-
vöru. Bjarni segist vera bjartsýnn á að
þetta gangi vel og reyndar alveg sann-
færður.
En á Bjarni sér einhveija megin-
reglu í viðskiptum?
„Mér finnst augljóst að það sem þú
gefur af þér, það færðu til baka. Eg
treysti yfirleitt alltaf fólki þangað til ég
reyni það persónulega að öðru. Eitt að-
almarkmiðið með lífinu er að njóta þess
og hafa ekki of miklar áhyggjur." 33
Reiknaðu með
SP-FJármögRiun
- ef þú ert í fjárfestingarhugleiðingum
• Staðgreiðsluafsláttur
• Tækið er helsta tryggingin
• Skattalegt hagræði
• Sveigjanleg greiðslubyrði
• Allt að 100% ijármagnað
SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmúla 3 108 Reykjavík • Sími 588 7200 • Fax 588 7250
37