Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.10.1997, Blaðsíða 38
ir til að endurtaka það frá reit eitt. Ef svarið er játandi dæma þeir sig til lífstíðar í hið pólitíska uppvask. Hitt svarið er að kominn sé tími til að aðrir, nýir, óþreyttir menn spreyti sig - vegna þess að þrátt fyrir allt er „h'f eftir þetta líf, sveinki!” eins og sagt var forð- um. Mín ákvörðun var einfald- lega sú að kominn væri tími til að aðrir spreyttu sig!” Einn svipmesti stjórnmálamaður síðasta áratugar, Jón Baldvin Hannibals- son, kveður senn stjórnmálin er hann tekur við embætti sendiherra Islands í Bandaríkjunum um áramótin. Hér er hann ásamt eiginkonu sinni, Bryndísi Schram, í hóii sem stuðningsmenn hans héldu honum nýlega. ú segist hætta í pólitík vegna þess að þú sért orðinn leiður á hinu pólitiska uppvaski. Engu að síður hef- ur þú marglýst því yfir að þú sér ástríðupólitíkus. Kemur þetta heim og saman? „Við sem vinnum eldhússtörfin - sjáum um uppvaskið - vit- um að uppvask er nauðsynlegt starf en ekkert mjög spennandi. Það sem þrúgar mann mest í því er endurtekningin - það er alltaf verið að vaska upp sömu diskana. Yfirstandandi pólitík á íslandi er slétt og felld á yfirborðinu - átakalítíl; lognmolla. En það kraumar undir, líkt og það kraumar víða undir jarðskorp- unni á Islandi. Islensk pólitík er nú á geijunarskeiði, það er tími uppstokkunar og endurnýjunar - vonandi kynslóðaskipta ein- nig. Þetta eru samt óorðnir hlutír. Eg er búinn að vera lengi í pólitík og formennskutími minn í Alþýðu- ílokknum var mikill átakatími, fyrst í stjórnar- andstöðu og síðar í ríkisstjórn. Það var tekist á. Það hafa verið mörg stór mál. En eftir langt starf í pólitík kemur að því að menn horfi fram á við og spyrji sig hvort þeir séu tilbún- - Þegar þú horfir yfir þitt pólitíska svið hver telur þú þá vera þín helstu afrek í pólitík? „Blaðamaður, sem hefði fylgst eitthvað með mínum pólitíska ferli, hefði sennilega strax nefnt EES og Eystrasalt, þ.e. stuðn- ing okkar við frelsisbaráttu Eystrasalts- þjóðanna. Það er kannski annarra að dæma um hvernig mér hefur tíltekist - en ég veit hver viðleitni mín var öll þessi ár. Eg var gjarnan í þeirri stöðu að berjast við ofurefli - ég var yfirleitt að beijast við kerfi sem var fastheldið á óbreytt ástand og á vörslu sérhagsmuna. Og ef við spyrjum um árangur okkar jafnaðar- manna í ríkisstjórn á átta ára tímabili myndi ég nota þessi orð: Okkur varð nokkuð ágengt í baráttu okkar fyrir því að opna íslenskt þjóðfélag og að auka frelsi, bæði frelsi tíl athafna og valfrelsi einstaklinga. Við afnámum einokun - til dæmis í útílutningi; gáfum hann fijálsan. Við áttum frumkvæði að setningu sam- keppnislaga. Við áttum stóran hlut í því að kveða niður verðbólgu; að festa í sessi almennar leikreglur og reyna að draga þar með úr forréttindum hinna fáu og auka frelsi hinna mörgu og smáu. Þetta eru dæmi um viðleitni til að taka upp önnur og betri vinnubrögð en áður tíðkuðust Við höfum barist fyrir auknu fijálsræði neytenda, fyrir aukinni samkeppni, gegn ein- okunarmyndun og fákeppni á íslenskum mörkuðum. Loks vil ég nefna að árið 1979 áttum við frumkvæði að miklum björgun- arleiðangri sem á þeim tíma fólst í verðtryggingu íjárskuldbind- inga. Verðtryggingin var ákaflega þýðingarmikil framkvæmd á sínum tíma - þótt nú, þegar orrustan hefur unnist, sé kominn tími til að hverfa frá hugsunarhætti verðtryggingar tíl að sýna í verki trúna á að íslendingar getí haldið stöðugleika í efnahags- málum.” - Alþýðuflokkurinn hefur um árabil barist harðast allra flokka gegn landbúnað- arkerfinu? Hversu ágengt varð ykkur í þeirri baráttu? „Landbúnaðarkerfið er dæmigert íslenskt ríkisforsjárkerfi sem á rætur að rekja til TEXTI: Jón G. Hauksson. MYNDIR: Geir Ólafsson. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.