Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 51
fljótt fyrir sig í tveimur eða þremur tök-
um. Þetta finnst þeim, sem framleiða
auglýsingar, mikill kostur og orða það
svo að það þurfi aldrei að leikstýra
Agli. Það er hinsvegar tekið mikið
mark á því sem hann segir um textann
sem lesa skal og oft breytir hann hon-
um.
Ný afstaðin herferð Toyota er gott
dæmi um verkefni sem Egill tekur að
HVERNIG RODD?
„Góö rödd er fjölhæf. Röddin þarf aö vera
þokkafull fyrir konur, traustvekjandi fyrir
karla og föðurleg fyrir börn. Traust er þó
aöalatriöiö."
sér. Þetta var ein stærsta herferð
Toyota frá upphafi og teknar voru fjór-
ar gjörólíkar auglýsingar sem hverri
um sig var beint að ólíkum markhóp-
um. Þó auglýsingarnar væru mjög
ólíkar varð herferðin ekki eins dýr og
ætla mætti.
Egill las inn á þær allar - og var
snöggur að - sem sýnir breiddina sem
hann ræður yfir.
„Við seldum 68% fleiri Corollur í
október á þessu ári en í sama mánuði í
fyrra. Þessi herferð tókst því með ólík-
indum vel og Egill á sinn þátt í því,“
segir Björn Víglundsson.
Þegar leikarar eru fengnir til að lesa
inn á auglýsingar er þeim greidd fyrir-
fram ákveðin upphæð í eitt skiptí en
kaupandinn hefur 18 mánaða birting-
arrétt á auglýsingunum en greiðslur
fara ekki eftir tíðni birtínga. í Ameríku
tíðkast hið gagnstæða, greidd eru
nokkurskonar stefgjöld tíl þess, sem
les, við hveija birtingu. Þannig hafa
leikarar þar í landi getað lifað í vellyst-
ingum praktuglega af slíkum lestri ára-
tugum saman.
Þeir fullyrða það, sem til þekkja, að
Egill sé nú með eina dýrustu auglýs-
ingarödd á markaðnum. Hinsvegar
eru menn tregir til þess að gefa upp töl-
ur en samkvæmt bestu heimildum get-
ur kostað 150-200 þúsund að fá rödd,
sem selur, til þess að lesa inn á um-
fangsmikla herferð sem t.d. væri birt í
sjónvarpi nær daglega vikum saman. I
þessum efnum styðjast menn við
ákveðinn lágmarkstaxta sem hefur lít-
ið hækkað í nokkur ár en hann er not-
aður sem grunnur. Smærri spámenn
er hægt að fá fyrir helminginn af
hæsta verði eða þaðan af minna.
Þeir, sem fá Egil til liðs við sig, gera
yfirleitt samkomulag við hann um að
auglýsa ekki samskonar vöru á sama
tíma. Ekki er samt um skriflegt sam-
komulag að ræða heldur gagnkvæman
skilning á því að Egill auglýsi ekki aðr-
ar bílategundir eða ekki tvær kaffiteg-
undir á sama tíma o.s. frv.
Aðrar vinsælar raddir í auglýsinga-
bransanum eru t.d. Steinn Armann
Magnússson, Hjálmar Hjálmarsson,
Jóhann Sigurðarson, Hallmar Sigurðs-
son og Margrét Vilhjálmsdóttir sem er
nýstírni á þessu sviði.
Þegar auglýsingamenn tala um góð-
ar raddir í auglýsingum ber nafn Helga
heitins Skúlasonar oft á góma en hann
þótti bera höfuð og herðar yfir aðra á
þessu sviði. Menn eru þó sammála um
að Egill sé verðugur arftaki hans þegar
þarf að selja með röddinni.
„Það eru 7-8 ár síðan ég fór að lesa
inn á auglýsingar en ég hef staðið fyrir
framan hljóðnema í 22 ár samfellt,"
segir Egill. Hann sagðist skilja rök
þeirra leikara sem vildu helst ekki
leika í auglýsingum og hans leið í þeim
efnum væri að takmarka sig við að lesa
EKKERT NYSTIRNI
„Þaö eru 7-8 ár síðan ég fór að lesa inn
á auglýsingar en ég hef staðið fyrir fram-
an hljóðnema í 22 ár samfellt,"
segir Egill.
inn á auglýsingar en hafna því alfarið
að koma ffam í eigin persónu.
Um þessar mundir er mikil drift í
auglýsingagerð og mörg fyrirtæki
hafa svigrúm tíl að leggja meira fé í
markaðsmál og auglýsingar en t.d.
fyrir 2-3 árum. Að sama skapi eykst
eftírspurn eftir fólki tíl þess að leggja
krafta sína í gerð auglýsinga eins og
t.d. leikurum.
Ein afleiðing af þessu er aukinn
áhugi stórra fyrirtækja á að gera einka-
samninga við listamenn eins og t.d. þá
sem ljá þeim rödd sína. Slíkur samn-
Um hvað er fólk að hugsa þegar það
kaupir sér bíl? Toyota hefur notað
Egil í auglýsingar í tæpan áratug og
nú er í farvatninu einkasamningur
milli þeirra.
FV mynd: Kristín Bogadóttír.
i'r eru úr nýjustu
ei,,kaSaM^dirUsl aoglísingastoía".
ingur, sem væri nýmæli á Islandi, gætí
gilt til u.þ.b. 2-3 ára og listamaðurinn
myndi þá ekkert auglýsa annað á þeim
tíma. Toyota umboðið mun vera á hött-
unurn eftir Agli um gerð slíks samn-
ings en hvorugur aðila vildi tjá sig neitt
um það mál við blaðið. B5
51