Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Side 52

Frjáls verslun - 01.10.1997, Side 52
HEIMASÍÐA GUDJÖNS NlAS GUÐJONSSONAR Fæddur og alinn upp: Skipasundi 47. Hvenær: 16.2.1972. Foreldrar: Guðjón Hafsteinn Bemharðsson kerfisfraöingur, f. 18.2.1949, og Helga Jónsdóttir, f. 14.10.1949. Systkini: Jón Atli, f. 31.7.1984 og Guðnín Líneik, f. 11.8.1977. Áhugamál: Tónlist og tölvur en ekki íþróttir. Fyrsta tölvan: Sinclair 1982. Fyrsti eigin hugbúnaður seldur: 1983. Menntun: Sjálfmenntaður tölvusnillingur en hætti á síðasta vetri fyrir stúdentspróf í Versló. Tómstundir: í bíó með viminum. Fjólskylduhagir: f sambúö meS Sigriöi S.gmtedúmm Qá íslensk fyrirtæki hafa skotist upp á stjörnuhimininn með jafn miklu braki og brestum og tölvufyrirtækið OZ. í hugum al- mennings hefur fyrirtækið þá ímynd að þar sé samankominn hópur undra- barna með þykk gleraugu sem grúfir sig yfir tölvuskjái allan sólarhringinn og lifir í einhvers konar þríviddar- heimi. Þrívídd í tölvu, eða -virtual rea- fity-, er það sem OZ er þekktast fyrir. Fyrirtækið er með 22 starfsmenn á ís- landi og skrifstofur í Kaliforníu og Tokýo í Japan, alls með um 70 manns í vinnu. Samt er það ungt að árum, var stofnað 1991 og hefur leyst ílókin tækniverkefni fyrir stórfyrirtæki eins og Microsoft og Ericson og vakið gríð- arlega athygli á sýningum í Ameríku fyrir þrívíddartölvubúnað. MAÐUR ER NEFNDUR Potturinn og pannan bak við OZ heit- ir Guðjón Már Guðjónsson og er fædd- ur í Reykjavík 16. febrúar 1972. Sá dag- ur er merkur fyrir þær sakir að þá tók Hæstiréttur til starfa árið 1920. Sam- kvæmt hinum fornu fræðum stjörnu- spekinnar er hann fæddur undir merki Vatnsberans. Sagt er að Vatnsberar séu greindir, listhneigðir, rómantískir og viðkvæmir. Hann er elstur þriggja barna þeirra Guðjón Hafsteins Bernharðssonar kerf- isfræðings og Helgu Jónsdóttur. Guðjón TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson UNDRABARNH) Tölvufyrirtœkid OZ er í samstarfi vid risa á bord viö Intel, Ericson og Microsoft. Frumkvödull og stofnandi OZ er undrabarn úr Vogunum sem seldi sinn fyrsta hugbúnad 11 ára oggafsér ekki tíma til að Ijúka stúdentsprófi. Guöjón Már Gudmundsson. Hver er hann? 52

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.