Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 53
M JEDMVMn
iv/cmvi i nii/
á tvö systk Jón Atla f. ini, Guðrúnu Líneik f. 1977 og 1984. Guðjón býr enn í for-
eldrahúsum í Skipasundi en hann hefúr
reyndar einnig aðsetur við 572 Wild-
wood Way í Los Angeles.
Það má segja að Guðjón Már sé inn-
fæddur Reykvíkingur en ef betur er að
gáð liggja þræðir úr ættum hans víða út
um land. Föðurættin kemur frá Stokks-
eyri, af Reykjanesi og norðan úr Húna-
þingi frá Ospaksstöðum og Síðu. Móð-
urættin rekur sig hinsvegar vestur á
Rauðasand, austur í Eiðahrepp á Héraði
og austur í Meðalland.
ÆSKUÁRIN
Guðjón ólst upp í Skipasundinu þar
sem foreldrar hans búa í stóru húsi á
þremur hæðum og stór vinahópur Guð-
jóns setti snemma svip sinn á heimilislíf-
ið. Stundum minnti það meira á Þrótt-
heima en eitthvað annað því Guðjón var
snemma vinmargur og átti þá, eins og
nú, auðvelt með að umgangast fólk.
Fremstir í flokki vinanna, sem Guðjón
eignaðist í sex ára bekk í Vogunum og
hefur haldið tryggð við, eru Óttar Páls-
son og Einar og Grétar Hannessynir.
Róbert Viðar Bjarnason var helsti vinur
Guðjóns og félagi í tölvugrúskinu en
aðrir í hópnum voru t.d. Páll Þórólfsson
og Dagur Sigurðsson.
Faðir Guðjóns, Guðjón Hafsteinn
Bernharðsson, hefur frá 1981 rekið fyr-
irtækið Tölvubankann sem framleiðir
hugbúnað. Guðjón eldri varð því syni
sínum afar skýr fyrirmynd og studdi
hann og hvatti með ráðum og dáð. Hann
þvertekur fyrir það að hafa kennt syni
sínum forritun, hann sé þvert á móti al-
gerlega sjálfmenntaður. Guðjón yngri
sýndi tölvum strax á unga aldri mikinn
áhuga og fyrstu tölvuna eignaðist hann
10 ára gamall. Það var Sinclair tölva sem
margir muna eflaust eftir en meðan aðr-
ir pottormar sátu og spreyttu sig í leikj-
um sat Guðjón og grúskaði í forritun og
kenndi sjálfum sér að skrifa einföld for-
rit.
KOM, SÁ 0G SIGRAÐIMEÐ
SÍMASKRÁNNI
Um svipað leyti var mikil sýning í
Laugardalshöll og þar voru ungir forrit-
arar hvattir til dáða með samkeppni og
tölvu lofað í verðlaun. Guðjón bjó til
símaskrárforrit með fullkomnari upp-
flettimöguleikum en áður höfðu sést og
Guðjón er skipulagður í vinnubrögðum. Hann fær um 80 skeyti í tölvupóstí
daglega og svarar þeim yfirleitt öllum. FV-myndir: Geir Ólafsson.
valmyndum sem þá voru algert nýmæli.
Ekki var að sökum að spyija að kappinn
kom, sá og sigraði og tók við verðlaun-
unum, glæsilegri BBC tölvu úr hendi
Davíðs Oddssonar, þáverandi borgar-
stjóra, við hátíðlega athöfn í Gerðu-
bergi. Frammistaða Guðjóns þótti ekki
síst athyglisverð því aðeins voru gefnar
45 mínútur til að leysa verkefnið.
Þegar Guðjón var 11 ára hannaði
hann sinn fyrsta hugbúnað sem varð að
söluvöru. Það var forrit sem auðveldaði
vídeóleigum að halda utan um útleigu á
spólum. Það var mjög fullkomið með
ÆVISAGA OZ
1991 OZ sf. stofnaö til að gera auglýsingar.
1991 OZ hf. verður til, fær styrk frá IBM og fjárfestir milljónir í tölvubúnaði til
að búa til þrívíddarmyndir.
1992 OZ hefur samstarf við Mental Images í Þýskalandi.
1994 OZ gerir samning um forritun fyrir Softimage 3D kerfið frá Microsoft.
1994 OZ ákveður að hætta allri þjónustu nema fyrir Microsoft og einbeita sér
að eigin þróunarvinnu.
1995 OZ gerir nýjan samning við Microsoft um 3D forritun.
1995 OZ fær styrk frá Media Fund til gerðar tölvuleiks.
1995 OZ tekur þátt í tölvusýningu í Tokýo og í framhaldinu leggja japanskir fjár-
festar 100 milljónir í fyrirtækið.
1995 0Z Interactive stofnað í Kaiiforníu.
1995 OZ selur tævanska fyrirtækinu Dynalab 5% hlut fyrir 32 milljónir.
1996 Japanska samsteypan Nippon lnvestment& Finance leggur fé í Oz.
1996 0Z gerir innrás á Ameríkumarkað með þátttöku í sýningunni Internet
World '96.
1997 0Z gerir samstarfssamning við Ericson og undirbýr stofnun dótturfyrirtæk-
is í Japan.
1997 OZ gerir samstarfssamning við Atlantic Records sem er dótturfyrirtæki
Time-Warner samsteypunnar.
1997 0Z valið til þess að fylgja forseta íslands í opinberar heimsóknir og kynna
íslenskan tölvubúnað erlendis.
53