Frjáls verslun - 01.10.1997, Blaðsíða 55
NÆRMYND
þess eru í víðari skilningi. Þetta kom
best í ljós 1994 þegar ákveðið var að OZ
myndi hætta framleiðslu á efni fyrir ís-
lenska auglýsendur og snúa sér alfarið
að þróun eigin hugbúnaðar. Margir
töldu það ferð út í óvissuna en Guðjón
og hans sannfæringarkraftur urðu til
þess að allir tóku þátt í breytingunum.
Að hans mati snerist sú ákvörðun um líf
eða dauða fyrirtækisins og eftir á sáu
margir að ákvörðunin var hárrétt. í dag
er OZ fyrirtæki í samstarfi á heimsvísu
með nær 100 starfsmenn en væri ann-
ars trúlega enn
að búa til myndir
í sjónvarpsaug-
lýsingar á Islandi
og berðistíbökk-
um með 4-5
starfsmenn.
Þeir, sem eru
sérlega hrifnir af
Guðjóni, telja að
hann sé fulltrúi
nýrrar kynslóðar
og nýrrar hugsunar, einstök blanda af
hugsjóna- og framkvæmdamanni. Með
þeirri blöndu af listamönnum og
tölvugaldramönnum sem starfa í OZ
hafi hann búið til fyrirtæki sem geti lyft
grettistaki.
HÓGVÆR EN ÁKAFUR
Stjórnunarháttum Guðjóns er lýst
svo að hann stjórni mjög mikið með því
að gefa fyrirmynd. Það er að segja að
með sínum eigin starfsháttum setji
hann starfsfólkinu fordæmi sem því er
ætlað að fylgja. Það er sagt að honum
láti vel að hafa áhrif á fólk til þess að
hvetja það til dáða. Hann ber mikið
traust til starfsfólks síns og vill gjarnan
geta lagt einhveijar línur, gefið upp ein-
hverjar hugmyndir eða markmið og
treyst því síðan að starfsmaðurinn sjái
um verkefnið, leysi málið.
Guðjón er svalur sölumaður og hóg-
vær ákefð og skýr framtíðarsýn hans
virðast vekja mikið traust ijárfesta. Guð-
jón er afar meðvitaður um ímynd og
þýðingu hennar í upplýsingasamfélag-
inu og vinnur markvisst að því að byggja
upp skýra ímynd OZ erlendis. Þeim til-
gangi þjónar t.d. þátttaka í risavöxnum
tölvusýningum þar sem OZ er með 300
fermetra bása á tveimur hæðum og
heldur veislur fyrir 3000 manns sem
kosta 20 milljónir króna, Intel borgar.
Tilgangurinn er sá að byggja upp með
stæl þá ímynd að OZ sé öflugt fyrirtæki
sem sé komið til að vera.
Guðjón er mjög skipulagður í vinnu-
brögðum og er það nefnt sem dæmi að
hann fær 80 skeyti á dag í tölvupóstin-
um að jafnaði og svari þeim yfirleitt öll-
um.
Guðjón er glaðlyndur og ljúfur í dag-
legri umgengni og kemur fram við alla
eins og jafningja. Hann er kurteis og
fremur hæglátur í framgöngu og virkar
hógvær og stilltur og í góðu jafhvægi.
Hann hefur traust
samband við
gömlu vinina úr
Sundunum þá
Óttar, Róbert,
Grétar og Einar
sem fyrr eru
nefndir, en úr
tölvuheiminum
eru helstu vinir
hans og sam-
starfsfélagar þeir
Skúli Mogensen, Eyþór Arnalds og
Kjartan Pierre Emilsson.
Þegar Guðjón var 18 ára kynntist
hann Öldu Björg Guðjónsdóttur og þau
bjuggu saman um rúmlega tveggja ára
skeið á Njálsgötu 96. Þau slitu samband-
inu fyrir um tveimur árum en Guðjón
hefur látið sér mjög annt um ungan son
Öldu, Agúst Ara, sem hann gekk að
hluta til í föðurstað og heldur enn miklu
sambandi við. I dag er hann í sambúð
með Sirrý, Sigriði Sigurðardóttur, unn-
ustu sinni sem býr í San Francisco.
FULLTRÚi UNGU KYNSLÓÐARINNAR
Guðjón er ungur maður sem situr
ráðstefnur með Bill Gates og Andy
Grove, forstjóra Intel, og á langa fundi
með forstjóra Ericson sem hefúr 90 þús-
und manns í vinnu. Hann er í rauninni
mjög frægur í tölvuheiminum og af
mörgum talinn undrabarn á sama skala
og Bill Gates og fleiri. Langar greinar
hafa birst urn hann í erlendum blöðum
eins og L.A Times, Daily Telegraph og
mörgum fleiri en hlédrægni hans hefur
gert það að verkum að hann hefur ekki
viljað flagga því hér heima.
Guðjón á ekki margar frístundir í
hefðbundinni merkingu þess orðs.
Hann hefur, eins og margir ungir menn,
gaman af því að skemmta sér og grípur
þau tækifæri sem gefast en er sagður
LISTAMAÐUR 0G B0KHALDARI
Samstarfi þeirra tveggja er lýst svo aö
Guöjón hafi sprengikraftinn og hugmynd-
irnar meöan Skúli hafi meiri áhuga á
hinni viöskiptalegu hlið fyrirtækisins.
Saman séu þeir eins og listamaður og
bókhaldari.
reglumaður á lífsins fystisemdir. Hann
er að verða nægilega frægur á íslandi til
þess að vera í smásjá almenningsálitsins
hvar sem hann fer og vinirnir segja að
það hafi dregið úr skemmtanalöngun
hans.
Það er alveg ljóst að Guðjón Már er
ungur maður með óvenju skýra fram-
tíðarsýn og háleit markmið. Hann er
skilgetið afkvæmi tölvu-sjónvarps-
myndbanda-pönk kynslóðarinnar og í
augum mjög margra er hann fulltrúi
ungu kynslóðarinnar í víðum skilningi
þess orð. B3
Gæðahirslur á góðu verði.
Fagleg ráðgjöf og þjónusta.
®rOfnasmiöjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
55