Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 61

Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 61
út afsökunarbréf þar sem við báðumst velvirðingar á mistökunum." Mörgum viðskiptavinum fannst þetta óþœgileg sending frá bönkunum en bank- arnir sögðu að þetta væri ekki þeirra vandamál þótt bréfin vœru send í þeirra nafni heldur vísuðu á Reiknistofuna. Þurfa ekki bankarnir og Reiknistofan að samræma þjónustuhlutverk sitt á þessu sviði? „Eg get tekið undir það. Tilkynning- arnar voru auðvitað frá bönkunum en vegna þess hvernig umfjöllunin var í fjölmiðlum var ákveðið að senda afsök- unarbréfið í nafni Reiknistofunnar." ÍMYNDIN HEFUR BEÐIÐ HNEKKI Nú vinnið þið eingöngu fyrir eigendur ykkar en efþið vœruð þjónustufyrirtæki í hefðbundnum skilningi þess orðs þá væri það eflaust metið svo að ímyndfyrirtækis- ins hefði beðið hnekki. Hvernig hyggist þið bæta ímynd ykkar? „Okkur er alveg ljóst að ímyndin hef- ur beðið hnekki og því munum við kapp- kosta að bæta hana. Það munum við að sjálfsögðu gera best með því að halda uppi hnökralausri þjónustu og að því stefnum við mjög ákveðið og teljum okkur hafa lagt nú þegar góðan grunn að þvi að undanförnu með þeim breyt- ingum á hug- og vélbúnaði sem ég gat um áðan.“ HVAÐ SEGJA SÉRFRÆÐINGARNIR? I skýrslu Seðlabankans, Greinar- gerð um greiðslumiðlun, sem út kom í febrúar 1997 segir um Reiknistofu bank- anna: „Hérlendis er starffæktgreiðslumiðl- unarkerfi á vegum Reiknistofu bank- anna. Kerfi Reiknistofu bankanna er nettunarkerfi sem þróað var upp úr ávis- anagreiðslumiðlunarkerfi Seðlabank- ans og starfrækt var áratugum saman. Lítið hefur verið hugað að áhættu þátt- takenda og aðgengi nýrra aðila að þess- um kerfum. Lagaleg atriði er varða kerf- ið eru óljós, sérstaklega varðandi endan- leika færslna og uppgjörs. Einnig eru óljós atriði varðandi stöðu þátttakenda ef einn aðila brysti greiðslugetu." Ennfremur segir að helsti annmarki kerfis RB sé að það feli í sér áhættu fýr- ir þátttakendurna og alltfjármálakerfið í landinu. Aðgengi stangist á við sam- keppnisreglur og lagaleg atriði um end- anleika og gjaldþrotameðferð séu óljós. Ófullnægjandi varabúnaður er sagður valda verulegri tæknilegri áhættu við kerfið. Skýrsluhöfundar segja nauðsynlegt að meta og skilgreina áhættu við greiðslumiðlun með tilliti til þess að af- marka betur ábyrgð Seðlabankans og draga úr áhættu hans. Evrópusamband- ið hefur í undirbúningi nýtt greiðslumiðlun a r k e r f i sem verð- ur sniðið að viðskiptum með evróið þegar það verður tekið í notkun. Hvatt er til þess í skýrslunni að Seðlabankinn þrói kerfi sem gæti í framtíðinni tengst þessu nýja kerfi. Skilgreind eru í skýrslunni sex al- þjóðleg skilyrði kennd við Lamfalussy sem nettunar- kerfi þurfa að uppíylla til þess að draga úr áhættu. Það er skoðun skýrsluhöf- unda að Reiknistofa bankanna uppfylli ekkert þessara skilyrða. Skýrslan verður vart skilin öðruvísi en það teljist brýnt verkefni að færa starfsemi Reiknistofu bankanna til nú- tímans í fjölþættum skilningi þess orðs. OMURLEGT ASTAND Guðrún && HótO l^and'- Getrs' „Það komu nokkrar helgar í röð þar sem allt var smekkfullt hér út úr dyrum og biðröð við alla bari þegar kerfið hrundi. Það er ömur- legt ástand og ljóst að bæði tapaði húsið veru- legum tekjum og féll í áliti hjá viðskiptavinunum sem töldu að hér ynni fólk sem ekki væri starfi sínu vaxið. Við reyndum að handþrykkja 66®. vM*’"" 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.