Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 62
Yngvi Örn Kristínsson, framkvæmdasíjóri peninga- Gunnar Skaftason, framkvæmdastjóri bensínstöðvanna Ork-
málasviðs Seðlabanka Islands an.
upp á gamla mátann af kreditkortum
og bjóða fólki að taka debetkort í
geymslu sem mætti svo taka út á. Við
viljum það helst ekki og margir vilja
alls ekki láta kortið af hendi sem skilj-
anlegt er. Þetta hefur verið hörmulegt
ástand.“
Þannig lýsir Guðrún Björk Geirs-
dóttir, yfirþjónn á Hótel íslandi,
ástandinu á skemmtistaðnum undan-
farnar helgar þegar Reiknistofa þank-
anna hefur brugðist. Það gefur
augaleið að fyrir veitingastað, sem
tekur lungann af sínum vikutekjum
inn á föstudags- og laugardagskvöld-
um, skiptir öllu máli að hafa gott sam-
band við Reiknistofuna.
RÚSSNESKT ÁSTAND
„Við eigum allt okkar líf undir
Reiknistofu bankanna og höfum
Július
túni.
Jónsson kaupmaður
Nóa-
tapað verulegum viðskiptum vegna
þjónustuleysis hennar sem varað hef-
ur allt þetta ár og algerlega keyrt um
þverbak síðustu mánuði,“ segir
Gunnar Skaftason, framkvæmda-
stjóri bensínstöðvanna Orkan.
„Það versta er að viðskipta-
vinirnir fara svekktir og illir
í burtu og kenna okkur
um allt saman.“
Gunnar segir
að lengi vel
hefði mátt bjar-
ga sér með því
þegar sambandið
við Reiknistofuna
lá niðri, að nota
kreditkort sem
voru tengd beint til
kortafyrirtækjanna.
Þetta breyttist þegar
tekin voru upp PIN númer á kredit-
kortin og Reiknistofan tók við sam-
bandinu.
„Þetta er rússneskara en allt sem
nissneskt er og mér finnst furðulegt
hvernig Greiðslumiðlun hf., sem við
gerðum okkar samning við, getur hót-
að lokun af minnsta tilefni en Reikni-
stofa bankanna, sem Greiðslumiðlun
á stóran hlut í getur komist upp með
svona klúður og stórspillt okkar við-
skiptum.
Þeir hafa lofað okkur því að svona
lagað hendi aldrei aftur og við verðum
að vona að það standi."
TÖPUÐ VIÐSKIPTIOG AUKIN VINNA
„Þetta hefur verið óviðunandi allt
þetta ár. Við teljum okkur ekki hafa
tapað viðskiptavinum vegna þessa en
það hefur hent um hver mánaðamót í
langan tíma að fólk gengur í burt frá
fullum körfum. Það eru töpuð við-
skipti og aukin vinna,“ segir Jóhannes
Jónsson, kaupmaður í Bónus.
FYRIRTÆKIÁ HEUARÞRÖM
„Þetta kemur fyrst og
fremst niður á viðskiptavin-
um og afgreiðslufólki.
Þetta er búið að vera
vandamál allt þetta ár
og kannski muna ein-
hverjir eftir því þeg-
ar allt fraus á Þor-
láksmessu í fyrra.
Við höfum lifað í
voninni um betra
ástand en Reikni-
stofa bankanna er,
að mínu áliti, á heljar-
þröm, “ segir Júlíus
Jónsson kaupmaður í
Nóatúni.
SEÐLABANKINN BER ÁBYRGÐINA
Yngvi Örn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri peningamálasviðs
Seðlabanka íslands, sagði í samtali við
blaðið að ótvírætt bæri Seðlabankinn
ábyrgð á því að greiðsluuppgjör af
þessu tagi færu hindrunarlaust fram
og af öryggi.
„Við höfum lengi bent á nauðsyn
þess að Reiknistofa bankanna komi
sér upp varakerfi til að tryggja örygg-
ið.“
Yngvi sagði að hugmyndir væru
uppi um að gera uppgjörsþátt Reikni-
stofu bankanna að sérstökum verk-
þætti sem væri á ábyrgð og í umsjá
Seðlabankans þótt Reiknistofan sæi
um framkvæmdina. Með því yrði auð-
veldara fyrir nýja aðila að fá aðgang að
uppgjörskerfinu án þess að vera aðilar
að Reiknistofunni. 33
62