Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 66
Vormenn:
Unnið að ræstíngu í fyrirtæki. Mikilvægt er að vinnan sé
unnin af vandvirkni. Vormenn sjá um ræstingu frá A tíl O.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
Gólfteppi þurrhreinsað. Teppahreinsun er vandasamt
verk og ekki á færi annarra en þeirra sem hafa tölu-
verða reynslu.
BJÓDA ALLAN PAKKANN
A SVIÐIRÆSTINGA!
ormenn í Bolhoiti 4 er ræstingafyrir-
tæki sem býður fyrirtækjum og
stofnunum allsherjarlausnir í ræst-
ingum. „Við leggjum mikla áherslu á vand-
aða vinnu og öryggi verkkaupans. Um leið
getum við tekið að okkur að sjá um ræsting-
una frá A til Ö sem þýðir að við sinnum dag-
legum þrifum, en síðan hreinsum við til
dæmis teppin, þegar þess gerist þörf, glugg-
ana sömuleiðis og þannig koll af kolli. Við
skipuleggjum alla ræstingavinnuna í fyrir-
tækinu svo menn þurfa ekki að hafa frekari
áhyggjur af þessum þætti f rekstrinum," seg-
ir Haraldur Diego, framkvæmdastjóri Vor-
manna.
„Öryggi verkkaupa er okkur mikilvægt,"
segir Haraldur. „Oft hefur viljað brenna við
að menn hafi ekki vitað hverjir eru á ferðinni
í fyrirtækinu eftir að starfsmenn eru farnir
heim. Starfsmenn okkar eru bundnir þagn-
areiði gagnvart verkkaupa, okkur sjálfum og
fjórða aðila. Þeir mega ekki ræða mál fyrir-
tækisins, sem þeir ræsta hjá, né heldur það
sem kann að bera þar fyrir augu. Þetta er, að
okkar mati, mjög mikilvægt atriði því við
þjónum mörgum „viðkvæmum" fyrirtækjum
svo sem bönkum og sparisjóðum.
TffflT
66