Frjáls verslun - 01.10.1997, Síða 67
STAÐLAR FYRIR RÆSTINGU
Á íslandi er ræstingaþjónusta ekki fag-
skyld - og víða eru ræstingar illa borgaðar og
litlar kröfur gerðar um gæði þeirra. Þessu
erum við mótfallín. Við viljum vekja menn til
umhugsunar um hversu mikilvæg þrif eru
heilsu starfsfólks, útiliti fyrirtækjanna og
verndun fasteigna. Við viljum líka breyta því
að fólk kalli ræstingar „skúringar" því að í
okkar huga er ræsting miklu meira en bara
gólfþvottur. Einmitt þess vegna er mjög þýð-
ingarmikið að senda ekki í vandasöm verk
menn sem hafa litla eða enga starfsreynslu."
Vormenn taka um þessar mundir þátt í
nefndarstarfi í gegnum Staðlaráð íslands og
felst í því að setja staðla fyrir ræstingar,
hreinlæti og gæðaeftirlit á þessu sviði.
Vormenn bjóða fyrirtækjum upp á alls-
herjarlausn í ræstingamálum. Það þýðir að
séð er um alla nauðsynlega ræstingu um leið
og hugsað er fyrir þeim liðum í þrifum fyrir-
tækisins sem aðeins falla til nokkrum sinn-
um á ári. í því sambandi má nefna nauðsyn-
leg þrif á teppum, gluggaþvott, bón og bón-
leysingu og aðra umfangsmeiri þætti ræst-
ingarinnar. Verkkaupinn þarf þá ekki lengur
að hafa áhyggjur af veikindum eða sumar-
leyfum ræstingafólksins, því starfsmenn Vor-
manna, sjá alfarið um þrifin allan ársins
hring. Þeir kaupa að auki inn ræstingavörur,
þrífa moppur og tuskur og hugsa um allt sem
gera þarf til þess að tryggja fullkomið hrein-
læti á hverjum stað. Við þetta má svo bæta
að Vormenn taka að sjálfsögðu að sér stök
verkefni á ýmsum stöðum, eins og bón-
hreinsun og bónun, teppahreinsun eða
gluggahreinsun, sé þess óskað.
VÍÐTÆK REYNSLA
„Reynsla okkar í ræstingum spannar vítt
svið," segir Haraldur, „allt frá tannlækna-
stofum til bílaverkstæða. Meðal viðskipta-
vina okkar eru hótel, bankar, sparisjóðir,
lyfjafyrirtæki, öryggisfyrirtæki, sjúkrahús og
verkstæði, svo ekki sé talað um venjuleg
heimili. Þar við bætist að við sjáum mjög
víða um að ræsta sameignir í fjölbýlishúsum
og fyrirtækjum. Einn þýðingarmikill liður í
starfseminni er að þrífa nýtt eða nýstandsett
húsnæði eftir að byggingarverktakar hafa
lokið þar störfum og áður en einstaklingar
eða fyrirtæki flytja inn í húsnæðið."
Vormenn gera tilboð í ræstingu verkkaupa
honum að kostnaðarlausu og gera ákveðna
samninga um ræstingastörfin þar sem tryggt
er að starfsmenn Vormanna, en ekki undir-
Af og til þarf að bónhreinsa gólf og endurbóna þau svo að nýju.
Haraldur Diego í vikulegu gæðaeftirliti. Fylgt er ákveðnum gátiista þar sem
merkt er við hvert atriði þrifanna og kannað hvort verkið hafi ekki verið unn-
ið á réttan hátt.
verktakar, annist ræstingarnar að öllu leyti.
Mikið er einnig lagt upp úr því að ræstinga-
fólkið sé í upphafi starfs kynnt fyrir starfs-
mönnum fyrirtækisins sem það á að vinna í.
Þetta er gert til þess að æskilegur trúnaður
skapist strax í byrjun. Eins og fyrr var nefnt
fer fram stöðugt gæðaeftirlit -innra eftirlit- á
ræstingavinnunni sem tryggir að hún sé æv-
inlega framkvæmd á sem bestan hátt. BD
VORMENN Netfang: vormenn@treknet.is
mzsnmmm
67