Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 77

Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 77
þorri manna gerir til þeirra leirmuna sem hann kaupir handa sjálf- um sér eða til gjafa. En það er önnur saga. Aðrir, til dæmis Haukur Dór, lokuðu verkstæðum sínum og tóku upp aðra sýslan. Enn aðrir töldu að eina leiðin til að auka á veg greinarinnar, sem þá hét keramík og flokkað- ist undir listiðn, væri að breyta henni í löggilda myndlist, sem sagt skúlptúr, umhverfis- verk eða eitthvað annað í þá veru. Þannig varð til nýyrðið „leirlist” sem mörgum þykir óþarft, þar eð aðall sígildrar leirmunagerðar er jú listrænt innsæi þess sem mótar og skreytir. Þessi þróun varð hins vegar ekki til að auka á veg greinarinnar. Þvert á móti. Það sýndi sig nefnilega að flestir þeir sem fóru að skapa sína mjög svo meðvit- uðu leirlist til að sýna á vettvangi höggmyndalistar, höfðu ekki hlotið til þess tilskylda þjálfun. Enda er sitt hvað að móta tiltölulega lítinn leirmassa í höndunum, sem er í „grund og bund” það sem hefðbundin ker- arník, afsakið leirlist, gengur út á, og að vinna með með stórar efnisheildir, plús rými, plús aðskiljanlegar hugmyndir, sem er hluti af því sem þrívíddarlistamenn nútímans fást við. Margt af því sem á síðustu árum hefur verið gert undir merkj- um „leirskúlptúrs” er því hvorki góð leirlist né góð þrívíddarlist, skúlptúr. Þar verð ég því miður að flokka veggmynd eftir Stein- unni Marteinsdóttur í skrifstofu Pósts og síma í Armúla, sam- sett verk af ýmsu tagi sem Jónína Guðnadóttir hefur verið að sýna af og til og lituð þrívíddarverk Guðnýjar Magnúsdóttur frá síðasta áratug. Hins vegar tók Kristjana Samper þá skynsam- legu ákvörðun að einbeita sér að gerð einfaldra, táknrænna mannamynda úr leir í stað þess að hella sér út í installasjónir og flókna hugmyndafræði. Fyrir hattinn húsfreyjunnar Líkast til var Sóley heitin Eiríksdóttir eini hefðbundni leir- listamaðurinn sem tókst að skipta yfir í marktæka þrívíddarlist án þess að bíða af því listrænt tjón. Verkin, sem Sóley gerði síðustu þrjú ár ævi sinnar, virtust tilraunir til að gæða þunglamalega og ópersónulega naumhyggju mannlegum eiginleikum, sjá strend- inga hennar sem fela f sér stflfærða líkamshluta, andlitsdrætti, samlætis. Og ef menn vilja er auðvitað hægt að „nota” þessar myndir hennar undir blóm, skraut eða hattinn hús- freyjunnar. Svipaða sögu má í rauninni segja um ýmsa leirmuni Kristínar og Elísabetar, sem vega salt milli nú- timalegrar þrívíddarlist- ar og hefðbundinnar leirlistar, án þess að ganga á svig við eigindir leirlistarinnar. Eg nefndi dufl Guðnýjar Magnúsdóttur við þrívíddarlistina hér á árum áður. Það, sem gerir sýningu hennar í kjallara Gerð- arsafns — sem er að verða einn besti vettvangur íyrir leirlistar- sýningar sem við eigum — svo eftirminnilega, er hve mikinn og góðan lærdóm hún hefur dregið af þessu dufli. Sýninguna í gegn rækir hún fýllsta trúnað við efnivið sinn, sem er hábrenndur jarð- leir, gælir við hann, ýfir hann og grópar. Sömuleiðis leggur hún út af hugmyndinni um „ílátið”, en snýr henni á ýmsa vegu, gerir úr henni myndlíkingar fyrir „ytri” og „innri” veruleika, fyrir lífs- kraftinn og uppruna lífsins (Samruni, Vöxtur, Fræ). í samsettum verkum eins ogÆxlun (1-5) mætast leirlistarhefðin og lífræn þrí- víddarlist í anda Hans Arps og annarra súrrealista. I yfirgripsmik- illi myndröð, sem nefhist Fræ, sem er samsafh 72 smáhluta, rær listakonan jafht á mið prímitífískra galdrahluta og nútíma installa- sjóna, án þess að forsóma snertigildið, sem er ekki sísti þáttur allrar leirlistar. Brot er síðan önnur installasjón, samsafn af 26 óreglulega löguðum leireiningum á vegg, allar markaðar vafhing- um úr víkingalist, sem vekja upp alls kyns spurningar um menn- ingararfleifð okkar, eðli hennar, varðveislu og hlutverk í samtim- anum. Það er sem sagt sjaldgæft að finna í íslenskid leirlist þá blöndu af hugmyndaauðgi og „tímalausum frumkrafti” (Guðbjörg Krist- jánsdóttir, sýn. skrá) sem hér hefur verið fram reidd. Varist eftir- líkingar. 33 Guðný Magnúsdóttir leirlistarkona ásamt verkum sínum sem nú eru til sýnis í Gerðarsafiii í Kóþavogi. gott ef ekki brosviprur. Þær Kogga, Kristín og Elísabet stóðu af sér það áhlaup, sem hér hefur verið lýst, með því að laga gildi og viðhorf úr þrívíddarlist, skúlp- túr, að leirlist sinni, en ekki öfugt. Standmynd- ir Koggu eru að sönnu með horn, hanka og ýmislegt annað sem ekki er hægt að hafa bein og ótvíræð „not” af. Engu að síður eru þær gerðar til „nota” í um- hverfi nútímamannsins, til að vera honum til Guðný Magnúsdóttir og uþpsveiflan í leirlistinni 77

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.