Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 94
Nauðsynlegt er að geyma vínin við jafnt hitastig, helst í myrkri og þar
sem þau verða ekki fyrir neinni hreyfingu í tíma og ótíma.
skoðaður. Þess vegna er nauðsynlegt að nota góð vínglös sem
ekki mega vera lituð, útskorin eða skreytt, og gott er að hafa
hvítan dúk á borðinu. Þá er það ilmur vínsins eða angan. Nef-
inu er bókstaflega stungið niður í glasið og þefað duglega af
vininu. Við vínsmökkun er því mjög mikilvægt að ekki sé
reykt né að þátttakendur í smökkuninni noti ilmvötn, sterka
rakspíra eða önnur efni sem gefa frá sér mikla lykt. Loks er
það bragðið af víninu. Þegar þetta er allt lagt saman fæst nokk-
uð góð lýsing á umræddu víni og hægt er að mynda sér skoð-
un á því. Allar þessar upplýsingar þarf svo samviskulega að
skrá niður í bók, og þá einnig dagsetningar og gjarnan hverj-
ir tóku þátt í vínsmökkuninni. En það dugar ekki að bragða á
víninu einu sinni, það þarf að endurtaka vínsmökkunina á
sömu víntegundinni nokkrum sinnum, gjarnan þrisvar til
fimm sinnum. Þá er ágætt að prófa umrætt vín með mat og
finna hvaða áhrif það hefur. Eg vildi nota tækifærið og benda
hér á smáatriði, sem þó er mikilvægt varðandi vínsmökkun,
en það er að alla vega við íyrstu smökkun er nauðsynlegt að
spýta víninu út úr sér eftir iyrsta sopann. Við það að spýta vín-
inu skynjum við bragðið af því á annan hátt. Þá er ágætt að
hafa eitthvert kerfi við vínsmökkunina, t.d. að í einni víns-
mökkun sé aðeins bragðað á hvítum vínum frá Burgundi, í
annarri smökkun að smakka á Cabernet Sauvignon frá Chile
og í þeirri þriðju vínum frá Suður-Afríku. Eftir nokkur skipti
sést ákveðið mynstur í bókinni sem vínin eru skráð í - sum vín
falla þér betur í geð en önnur og einmitt þau vín átt þú að
kaupa og geyma.
Vínkjallarinn En hvar er svo best að geyma vlnin? Þó svo að
við tölum um vínkjallara þá eiga fæstir aðgang að góðum kjallara
til að geyma vín sín í. Einn staður er þó afleitur sem víngeymsla
og það er eldhúsið. Fyrst er að kaupa góða vinrekka en þá má
orðið fá t.d. i IKEA. Þá er að finna góðan stað í húsinu til að
geyma vínin á. Afar mikilvægt er að vínin hristist ekki í geymsl-
unni. Með þvi á ég við að vínin séu t.d. ekki nálægt hurð sem lok-
að er eða skellt, eða nálægt lyftu sem stöðugt er á ferðinni. Smá-
vægilegar hreyfingar í tíma og ótíma hafa mjög slæm áhrif á vín-
in. Þá eiga vínin ekki að vera í birtu, best er að geyma þau í
Vínkjallarinn - að eiga vín heima
Að skrá, skoða og skynja Fyrsti þátt-
urinn í því að koma sér upp vínkjallara
felst í því að finna þau vín sem falla að
smekk þínum og það getur verið nokk-
uð flókið mál. Fæstir eru svo miklir vín-
áhugamenn að þeir hafi kerfisbundið
leitað að þeim vínum sem falla þeim í
geð. Vín eru hrein náttúruafurð sem
stöðugt breytist, mikill munur er á milli
árganga og jafnvel framleiðenda. Þá
breytast vín nokkuð við geymslu. Þess vegna er fyrsta skrefið
í áttina að því að byggja upp góðan vínkjallara tekið með því að
hefja leitina að réttu vínunum. Það er einfaldlega gert með því
að bragða á úrvali vína og meta þau og skrá. Skemmtilegast er
að gera það með nokkrum góðum vinum. Mikilvægasti þáttur
vínsmökkunarinnar er að spjalla um vínin, að hver og einn
segi álit sitt á þeim og lýsi einkennum þeirra. Fyrst er liturinn
myrkri. Einnig er mjög mikilvægt að
stöðugt hitastig sé í víngeymslunni,
heppilegt hitastig er 15° C og rakastig 70-
80%. Hins vegar er ég persónulega þeirr-
ar skoðunar af fenginni reynslu að það sé
mun mikilvægara að hitastigið sé stöðugt
fremur en að það sé lágt, t.d. 10-14°C.
Það er miklu betra að vínið sé geymt allt
árið við 18° C en að hitinn sveiflist stöðugt
ffá 10° C til 20° C. Sveiflur á hitastigi geta
hreinlega gert út af við vínin, meira að segja þótt þær séu árstíða-
bundnar. Við hitasveiflu þenst vínið í flöskunni út og dregst svo
saman til skiptis. Þessar sveiflur reyna mjög á korkinn í flösk-
unni. Eftir nokkurn tíma missir korkurinn hinn eiginlega sveigj-
anleika sinn og mýkt, dregst saman og loft kemst að víninu. Mik-
ilvægt er því að finna góðan geymslustað áður en farið er að ijár-
festa í vínum til geymslu.
En hvar er svo best að geyma vínin? Þó
svo að við tölum um vínkjallara þá eiga
fæstir aðgang að góðum kjallara til að
geyma vín sín í. Einn staður erþó afleitur
sem víngeymsla ogþað er eldhúsið.
Eftin Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Olafsson
94