Helgarpósturinn - 26.01.1995, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 26.01.1995, Blaðsíða 4
4 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995 Y vikunnar Linda Pétursdóttir, ásamt Fillipíu Elísdóttur. Þrátt fyrir niðurstöðu ríkissak- sóknara telur Linda engu að síð- ur að lögreglan hafi brotið á sér. Rúmið eins og orrustu- vollur Ógeðfelldasta frétt vikunnar er ein úr langri röð ógeðfelldra frétta sem birst hafa af bresku konungs- fjölskyldunni í heimspressunni. Að þessu sinni var það þerna Diönu prinsessu sem leysti frá skjóð- unni og lýsti að- komunni að rúmi prinsess- u n n a r morgun- inn eftir að elskhugi hennar, James Hewitt majór, hafði verið í heimsókn. Uppljóstr- anir af ástarmálum Karls og Diönu koma nú í hrönnum. I síðustu viku var einkaþjónn Karls, ríkisarfa Stóra-Bretlands, snarlega sendur í ótímabundið frí í kjölfar viðtals, þar sem kom fram að hluti af þjón- ustustörfunum hafi verið að þvo mold úr náttfötum prinsins. Þjón- inn fullyrðir í viðtalinu að moldin hafi komist í náttföt Karls þegar hann átti ástarfundi við viðhaldið sitt Camillu Parker Bowles í garði hallarinnar Highgrove House í Cloucestershire. Þetta er að sjálf- sögðu allt í hæsta máta ógeðfellt. I fyrsta lagi sýna svik einkaþjónsins og þernunnar að breska konungs- fjölskyldan getur engum treyst, allra síst persónulegu þjónustufólki sínu. Hver man til dæmis ekki eftir lúalegum uppljóstrunum reið- kennarans Hewitts urn ástarsam- band hans og Diönu? En reiðkenn- arinn gaf út heila bók sem innihélt lostafullar lýsingar á sambandi hans við prinsessuna. Lýsingar þessar fóru meira að segja fyrir brjóstið á Barböru Cartland, guð- móður Diönu og ástarskáldsögu- höfundi, sem þó kallar ekki allt ömmu sína í þessum efnum. 1 öðru lagi er það vægast sagt ógeðfellt að stóreignamaður eins og Karl Breta- prins hafi þurft að notast við mold- arbing til amorsbragða við hjákonu sína. Hvar er virðuleikinn spyr maður? Síðast en ekki síst er það allra ógeðfelldasta við þennan fréttaflutning að Karl og Diana geti ekki haft samneyti við þá sem þau langar til án þess að hálf heims- byggðin, að okkur Islendingum meðtöldum, taki andköf og hafi þau að háð og spotti. Mál Lindu Péturs- dóttur og lögregl- unnar var látið falla hjá ríkissaksóknara. Lögreglan unir nið- urstöðunni þokka- lega, Linda og lög- maður hennar, Gísli Gíslason, íhuga hins vegar skaðabótamál „Á allt eins von á sátt í málinir „Ég hef ekkert ákveðið hvað ég geri í framhaldi af niðurstöðu ríkis- saksóknaraembættisins. Ætli ég taki ekki þá ákvörðun með lögfræðingi mínum þegar hann kemur til Is- lands og þegar ég er búin að sjá um hvað málið snýst einhvers staðar annarars staðar en í blöðunum," sagði Linda Pétursdóttir fegurð- ardrottning, en í vikunni var kunn- gerð niðurstaða ríkissaksóknara- embættisins sem reyndist þess efnis að láta kæru Lindu Pétursdóttur á hendur tveimur lögreglumönnum, og jafnframt mál lögreglunnar gegn Lindu, niður falla. Ástæðan er væntanlega sú að sakfelling í mál- inu er talin ólíkleg. Linda vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið í bili. Hún var á hinn bóginn ósátt við hvernig hún frétti af niðurstöð- unni. „Það var alveg í takt við þetta mál allt saman að ég frétti fyrst af niðurstöðu ríkissaksóknara í fjöl- miðlum," segir hún. Eins og greint var frá í MORG- UNPÓSTINUM seint á síðasta ári er mál „Lindu og lögreglunnar“ kom- ið til að því að grunur lék á því að unnusti Lindu, Leslie Robertson hafi tekið upp á því að aka á bifreið samstarfsfélaga síns þann 14. nóv- ember síðastliðinn. Var málið rakið til þess að fýrr um kvöldið höfðu Gylfi Thorlacius, lögmaður lög- reglumannanna, segir lögregluna ósátta við hversu linlega var tekið á kæru þeirra. „Lögreglumennirn- ir hefðu heldur viljað sjá dóms- niðurstöðu í málinu," segir hann. Leslie og samstarfsfélagi hans átt í útistöðum. Þótt fljótt hafi komið í ljós að grunurinn hafi ekki reynst á rökum reistur voru Linda og unn- usti hennar handtekin umrædda nótt og færð á lögreglustöðina. I MÞjófavarnarkerfið með flóðinu þegar rúðurnar brotnuðu í póst- húsinu í Súðavík við það að snjó- flóðið féll á það fór þjófavarnarkerfið af stað. Það er tengt símboða sem hringir sjálfkrafa hjá lögreglunni á ísafirði og lætur vita. Þetta kerfi verkar þannig að símboðinn er segulband sem skilar skilaboðum þegar svarað er hjá lögrcglunni. Textinn var nokkurn veginn svohljóðandi: „Þjófavarn- arkerfið í pósthúsinu í Súðavík hefur farið af stað. Vinsamlegast gerið viðeigandi ráðstafanir strax." Þetta mun vera fýrsta neyð- arkallið frá Súðavík á mánudags- morguninn en eðlilega gerðu í gangþegar flóðið féll ■ Bíll barst tugi metra en Ijósin virkuðu ■ Gangandi sjóveiki molar menn sér ekki grein fyrir því að snjóflóð væri innbrotsvaldur- vjjóveiki hrjáði marga, sem komu ná- lægt björgunaraðgerð- unum í Súðavík, enda var sjólciðin sú eina færa til stað- arins á meðan leit stóð yfir. Þegar Haffari var að koma með stúlku, sem fannst lifandi í flóðinu, inn til ísafjarðar í aftakaveðri varð einum af þeim sem önnuðust um hana skyndilega illt. Það skipti engum togum að hann kastaði upp yfir næsta mann. Undir venjulegum kringumstæðum hefði það ekki þótt skemmtileg reynsla að fá gusuna yflr sig en menn kipptu sér ekkert upp við þetta, enda glaðir að finna stúlkuna á lífi... J7 ólksbíll, sem var inni í bílskúr í húsi við neðanverða Túngötu í Súðavík, barst með snjóflóðinu niður að áhaldahúsinu, tuttugu til þrjátíu metra leið. Billinn var gjör- ónýtur en þegar að var gáð kom í Ijós að ljósin virkuðu. Björgunar- menn notuðu þau til að lýsa upp leitarsvæðið næst bílnum í nokkra klukkutíma á meðan rafgeymirinn entist... kjölfar viðskipta sinna við lögregl- una kærði svo Linda tvo lögreglu- menn fyrir meint ofbeldi. Nokkr- um dögum síðar svaraði lögreglan í sömu mynt og kærði Lindu, einnig fyrir meint ofbeldi í sinn garð. Var hún þar sökuð um að hafa meðal annars hrækt og sparkað í lögreglu- menn, eins og kom reyndar fram í lögregluskýrslunum sem MORGUN- PÓSTURINN birti í framhaldi máls- ins. Að sögn Gísla Gíslasonar, lög- fræðings Lindu, var lengi beðið eft- ir niðurstöðu ríkissaksóknara, en hann segir þau Lindu nú velta fyrir sér skaðabótamáli. „Þótt ekki sé hægt að refsa vegna þessa máls telur Linda engu að síður að brotið hafi verið gegn sér. Næsta skref verður að fara á fund lögreglustjóra og fara fram á skaðabætur fyrir óréttmæta handtöku. Það er ósköp eðlileg framvinda málsins. Það má vel vera að það þurfi ekki einu sinni að stefna. Ég á allt eins von á því að sátt verði í málinu." Að sögn Gísla kom þessi niður- staða honum ekki svo mjög á óvart, að minnsta kosti ekki hvað varðar mál Lindu gegn lögreglunni, þar sem hún hafí aðeins verið ein til vitnisburðar. „Mér fínnst það hins vegar svolítið magnað að kæra lög- reglumannanna hafi verið látin niður falla þar sem tveir stóðu að kærunni.“ Gylfi Thorlacius, lögmaður lög- reglumannanna tveggja, lítur hins vegar svo á að þessi niðurstaða rík- issaksóknara hafi hreinsað lögregl- una afásökunum um meint ofbeldi gegn Lindu. Eti hver eru viðbrögð ykkar við hugsanlegu skaðabótamáli? „Það er reyndar allt annar hand- leggur. Ég átta mig ekki á því hvað þau eru að fara fram á, en það mun væntanlega beinast að ríkissjóði, ekki þessum lögreglumönnum." Ástœða skaðabótamálsins er engu að síður komin til vegna viðskipta Lindu við lögregluna? „Það er rétt. Hugmyndin um skaðabætur er engu að síður fjar- stæðukennd. Saksóknari er búinn að fjalla um málið og hefur ákveðið að fella þetta niður. Þó að í sjálfu sér þurfi ekki endilega að fara sam- an refsisjónarmið og bótarsjóna- mið er þetta mál þannig vaxið að ég kem ekki auga á að þarna hafi nokkur skapaður hlutur átt sér stað sem er bótaskyldur. Ég sé enga tæknilega galla á málinu. Það er hins vegar mjög algengt að sak- sóknari sjái ekki ástæðu til máls- höfðunar, þannig að þetta mál hlýt- ur alls ekki óeðlilega afgreiðslu.“ Hvernig una lögreglumennirnir niðurstöðunni? „Lögreglumennirni una niður- stöðunni vel, einkum sem lýtur að því að þeir hafa verið hreinsaðir af þessum áburði. Þeir eru hins vegar ósáttir við hversu linlega var tekið á kæru þeirra. Lögreglumennirnir hefðu heldur viljað sjá dómsniður- stöðu í málinu, ekki síst með hag annarra lögreglumanna í huga. Menn átta sig ekki á því hvað lög- reglumenn verða oft fyrir líkamleg- um áverkum sem svo er ekkert gert í. En upp frá þessu má búast við því að málunum verði fylgt harðar eftir en áður og jafnvel þannig að þeir þurfi að taka út refsingu sem valdir eru að ofbeldi gegn lögreglunni." -GK „Næsta skref verður að fara á fund lögreglustjóra og fara fram skaðabætur fyrir óréttmæta handtöku," segir lögmaður Lindu, Gí Gíslason. i \ i i > I i <1 > i i i I I ",

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.