Helgarpósturinn - 26.01.1995, Side 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
Ekki
okkar
mál
segir Birgir Guðjónsson,
skrifstofustjóri launa-
skrifstofu fjármálaráðu-
neytisins.
Birgir Guðjónsson, skrifstofu-
stjóri launaskrifstofu fjármálaráöu-
neytisins, var spuröur að hvort
launaskrifstofan hefði einhvern tím-
ann þurft aö gera athugasemdir við
þá styrki sem landsbyggðarþing-
menn fá.
„Nei, enda ekki okkar mál. Við
þekkjum vorn stað. Ef við upphefð-
um okkar raust fengjum við bara
fyrirlestur sem byggðist á kenning-
um Montesqieu um þingdreifingu
ríkisvaldsins í löggjafarvald, fram-
kvæmdarvald og dómsvald; og að
við aumir framkvæmdarvaldsþrælar
hefðum ekkert með að blanda okk-
ur í þingið og þess ákvarðanir. Við
höfum ekkert eftirlitshlutverk gagn-
vart þinginu. Og þó svo við mynd-
um setja fram einhverjar athuga-
semdir ræður þingið því algjörlega
hvort það tæki tillit til þeirra, hversu
réttmætar sem þær væru,“ sagði
Birgir.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi var spurður sömu spurn-
ingar.
„Við höfum ekki skoðað þetta
mál sérstaklega. Það er númer eitt,
tvö og þrjú í höndum Alþingis. Þetta
eru reglur sem alþingismenn hafa
sett sér og þeir hljóta að fylgja
þeim.“
Guðmundur
Bjarnason er
skráður með
lögheimili að
Árgötu 8 á Húsa
vík, en þá fast-
Guðmundur
Bjarnason býr í
eigin einbýlis-
húsi að Vatna-
Matthías Bjarna
son er skráður
með lögheimili
að Hafnarstræti
14 á ísafirði.
Sú fasteign er í
eigu Vélbáta-
ábyrgðarsjóðs
ísfirðinga.
Halldór Asgríms-
son býr í eigin
raðhúsi í
Brekkuseli 22 í
Reykjavik.
Matthías Bjarna
son býr í eigin
einbýlishúsi að
Tjaldanesi 5 á
Arnarnesi í
Garðabæ.
Steingrimur J.
Sigfússon býr f
eigin raðhúsi að
Brekkuseli 19 f
Reykjavfk.
Halldór Asgríms-
son er skráður
með lögheimili
að Hvamma-
braut 6, Höfn í
Hornafirði þar
sem bróðir hans
býr. Halldór leig-
ir af honum að-
stöðu.
Steingrímur J.
Sigfússon er
skráður með
lögheimili að
Gunnars
tilfirði þar
sem faðir hans
og bræður búa.
þingmenn sem hafa notfært sér
þessar reglur úr mínum flokki hafa
að minnsta kosti flestir, en þó ekki
allir, haft töluverðan kostnað af
íbúðum sem þeir reka í kjördæm-
unum.“
Bráðnauðsynlegt að
stokka þetía kerfi upp
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, er
sama sinnis og Davíð um nauðsyn
þess að núverandi kerfi þarfnist
breytinga.
„Það hefur verið eindregin af-
staða Alþýðubandalagisns undan-
farin ár að endurskoða þetta kerfi
og við höfum lagt til hvað eftir ann-
að í viðræðum milli þingflokkanna
að það yrði gert. Þetta er arfleifð frá
gömlum tíma þar sem allt aðrir
starfs- og samgönguhættir voru í
þjóðfélaginu og það er orðið bráð-
nauðsynlegt að stokka þetta kerfi
upp.
Aðalatriðið fmnst mér að þing-
menn eigi að hafa þokkaleg laun,
þeir eiga ekki að hafa nein ofur-
laun, og síðan eigi að greiða sann-
anlegan kostnað, sem nauðsynlegur
er vegna starfsins, samkvæmt
reikningum. Sá kostnaður er mis-
munandi eftir kjördæmum. Við
þingmenn Reykjanessins getum al-
veg farið yfir kjördæmið í bílum og
sofið heima hjá okkur. Aðrir sem
hafa yfir stærri kjördæmi að fara,
eins og til dæmis Austurland, þar
sem 700 kílómetrar eru milli enda-
marka kjördæmisins, þurfa auðvit-
Matthías Bjarnason
Farið þið fjandans til!
Matthías Bjarna-
son, sjálfstæðismaður
og 1. þingmaður Vest-
firðinga, á lögheimili
að Hafnarstræti 14 á
ísafirði en húsið er í
eign Vélabátaábyrgðar-
félags Isfirðinga. Matt-
hías á hins vegar sjálfur
glæsilegt einbýlishús að
Tjaldanesi 5 á Arnar-
nesi í Garðabæ. Matt-
hías brást hinn versti
við þegar MORGUN-
PÓSTURINN hugðist
spyrja hann af hverju
hann skráir sig ekki
heima hjá sér eins og
annað fólk.
Eru núveratidi reglur um styrki til
landsbyggðnrþingmanna fullnœgj-
nndi?
„Ja, ég hef ekki orðið var við
neinar spurningar um það. Þið
kveðið upp ykkar dóma og látið
eiginlega liggja að því að menn
eins og ég séu óheiðarlegir. Þið
skulið bara hafa ykkar hentisemi á
þvi hvernig þið farið með menn en
það er ekkert sem segir að ef mað-
ur verður þingmaður að hann eigi
að flytja hreppaflutningum í
burtu. Má hann ekki heima í kjör-
dæmi sínu? Það væri dálítið annað
ef hann væri að flytja úr öðru um-
dæmi.“
Við viljum náttúrlcga scgja rétt
frá þessum styrkjum og...
„Þið segið ekkert rétt frá og vilj-
ið það ekki.“
Þú ert búsettur í Arnarnesinu, er
það ekki?
„Jú, jú, ég er fimm og hálfan
mánuð á Vestfjörðum á ári.“
Af hverjti skráir þú lögheimilið
þitt ckki í Arnamesinu fyrst þú er
Matthfas Bjarnason
„Ég læt ekkert kjafta-
blað eins og ykkar
segja mér að flytja
hreppaflutningum."
meirihluta ársins þar?
„Afþví að ég er Vest-
firðingur og hef alltaf
verið það og hef fullt
leyfi til þess lögum
samkvæmt. Ég læt ekk-
ert kjaftablað eins óg
ykkar segja mér að
flytja hreppaflutning-
um. Teljið þið saman
hvað þið hafið í kaup
og fríðindi og hvað er
búið að tapa á þessum
kjaftablöðum og sorp-
biöðum á undanförn-
um árum? Ég ætla að
eiga heima á Vestfjörð-
um og ég átti þar heima
fyrstu 13 ár niín á Alþingi algjör-
lega, en þegar ég varð ráðherra gat
ég ekki búið á Vestfjörðum. Við
verðum að kosta sjálfir allt saman
innan okkar kjördæmis og þurfum
að hafa tvö og þrjú heimili eins og
ég hef.“
Samkvæmt mínum hcimildum
þá dvelurþú yftrlcitt á Hótcl ísaftrði
þegarþú ert fyrir vestan.
„Það kemur fyrir því þá hef ég
lánað íbúðina mína, ég veit það
ekki. Eru uppi svona njósnaher-
ferðir og eruð þið einhver leynilög-
regla og svo komið þið með kjaft-
æðið og bullið og vitleysuna? Þið
segist vera með þessar heimildir og
spyrjið hvort ég vilji ekki segja eitt-
hvað. Ég ætla bara að biðja þig hér
eftir að vera ekki að hringja í mig
frá þessu sorpblaði og ég vona að
það fari til fjandans sem allra fýrst
eins og hin sorpblöðin.“
Ég held að það sé ckki hœgt að
ræða við þig á málefnalcgan hátt
fyrst þú lætur svona.
„Nei, sæll.“ (skellt á)
Guðmundur Bjarnason
Lögheimili í kjördæminu eölileg
Guðmundur
Bjarnason er einn
þeirra þingmanna sem
hefur sætt gagnrýni
fyrir að taka styrki til
landsbyggðarþing-
manna. Guðniundur
er skráður með Iög-
heimili á Árgötu 8 á
Húsavík en býr ásamt
fjölskyldu sinni í stóru
einbýlishúsi í Breið-
holti.
Eru núverandi rcglur
um styrki til lands-
byggðarþingman na
fullnægjandi?
„Ég tel að þessir
styrkir eigi fyrst og
fremst að snúast um
kostnað manna til að
sinna skyldu sinni í
viðkomandi kjördæmum. Mitt
viðhorf, eins og fjölmargra starfs-
systkina minna reyndar líka, hefur
þá verið að ekki sé aðalmálið hvort
heimilanna sé aðal- eða aukaheim-
ili ef um tvö er að ræða.
Þetta er því að rnínu mati fyrst
og fremst viðurkenning á því að
menn geti haldið tvö aðsetur
vinnu sinnar vegna. Til að taka
eðlilegan þátt í daglegu lífi í kjör-
dæminu hefur mér og fleirum þótt
þetta nauðsynlegt. Ég hef bara sætt
mig við þær reglur sem hafa verið í
gildi samkvæmt þingfararkaup-
slögum og þau laun sém kjara-
dómur hefur ákveðið."
Finnst þcr ekki réttara að menn
skrái löghcimili sitt heima hjá sér?
„í mínu tilfelli er ég skráður á
mínu öðru heimili þannig að ég tel
mig ekki eiga við þessa
spurningu. Ég leigði
íbúð á Húsavík lengi
vel og flutti á Árgötuna
þegar ég missti þá íbúð.
Mér finnst nauðsynlegt
að hafa íbúð í þeim bæ
þar sem ég er fæddur
og uppalinn, er nrið-
svæðis í kjördæminu
og einnig finnst niér af-
ar niikilvægt að hafa
kosningaréttinn. ;; sem
fylgir lögheimilinu. í
raun finnst mér því
mjög eðlilegt að þing-
rnenn hafi sitt lögheim-
ili í sínum kjördæm-
um.“
Er það 684 þúsund
króna virði á ári að
liggja undir ásökutium
um misnotkun á altnatmafé?
„Ég kalla þetta ekkert að liggja
undir og því síður einhverja mis-
notkun. Mín rök eru þau að þetta
er mér nauðsynlegt sem fúlltrúa
þessara byggðarlaga. Ef núgildandi
regluni yrði breytt yrði því að
mínu mati að taka mið af öllum
þeim kostnaði sem menn þurfa að
leggja út í. Þetta er nefnilega dýrt
og kostnaðarsamt starf.“
Þú telur því ckki að þingmcnn
noti þessar reglur til að hœkka
kaupið sitt?
„Ég get aðeins svarað fyrir mig
og segi alls ekki. Mínar ástæður
hafa þegar komið fram og ég get
svosem ekki gert annað en að segja
þær. Ég vona að fólki finnist þær
ekki annað en sanngjarnar miðað
við aðstæður."
Guðmundur Bjama-
son „Ég tel að þessir
styrkir eigi fyrst og
fremst að snúast um
kostnað manna til að
sinna skyldu sinni í
viðkomandi kjördæm-
um.“
Jóhanna Sigurðardóttir „Lögheimiii þingmanna á auðvitað að vera á
þeim stað þar sem þeir dvelja mestan hluta úr ári.“
að að gista á ýmsum stöðum en
geta ekki haldið heirn til sín á
kvöldin, jafnvel þó þeir búi sannan-
lega í kjördæminu. Aðalatriðið er
það að þetta ruglingslega kerfi með
flóknum reglunr út og suður er
tímaskekkja sem á að leggja niður. I
staðinn á að koma einfaldara kerfi
þar sem menn hafi sæmileg laun og
síðan verði greiddur sannanlegur
kostnaður vegna starfsins, en það fé
fari ekki í gegnum hendur þing-
manna eða inn í launakerfi þeirra.“
Studdist á
sínum tíma við rök
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, er var-
færnari en kollegar hans í Sjálfstæð-
isflokki og Alþýðubandalagi.
„Sú hugsun á bakvið kerfið, að
þessar greiðslur eigi að mæta
kostnaði sem landsbyggðarþing-
menn hafa umfram höfuðborgar-
þingmenn, studdist á sínum tíma
við rök, og er sennilega rétt. Kerfið
verður hins vegar að vera þannig að
það sé hafið yfir gagnrýni, að það sé
ekki misnotað, og að verið sé að
endurgreiða raunverulegan útlagð-
an kostnað. Ég kveð ekki upp dóm í
þeim málum sem þið hafið nefnt
um misnotkun einstakra þing-
manna vegna þess að það má vel
vera að ekki séu allar upplýsingar
komnar fram. Ég nefni sérstaklega
til sögunnar Halldór Ásgrímsson
sem ég trúi ekki að misnoti slíkt
Jón Baldvin Hannibaisson „Kerfið verður að vera þannig að það sé
hafið yfir gagnrýni."