Helgarpósturinn - 26.01.1995, Qupperneq 20
20
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995
gekkst undir skurðaðgerðir til að líkjast Uday, hinum grimmlynda syni Saddams Hussein
9B9| 9 ~ arapr
m
I
I
I mí
Svo árum skiptir hefur
Saddam Hussein reynt að
forðast banatilræði með
þvf að nota tvífara sem
kemur fram fyrir hans
hönd við opinber tækifæri.
Andliti þessa manns hefur
verið breytt með skurðað-
gerð. Grunur um þetta athæfi
hefur verið á kreiki um árabil, en staðfesting á
því fékkst ekki fyrr en maður að nafni Latif Ya-
hia fékk pólitískt hæli í Austurríki nýverið. í
fjögur ár, áður en hann flúði frá írak, var hann
staðgengill Uday, elsta sonar Saddams.
Framferði sonarins er slíkt að meira að segja harðstjóranum misbýður á
stundum. Saddam sendi son sinn eitt sinn í útlegð fyrir að hafa myrt einn uppáhaldsþjón sinn.
Hér á síðunni birtist ljósmynd
sem var dreift um allan heim fyrir
tveimur árum. Henni var ætlað að
sýna að einræðisherra írans væri
hress og við hestaheilsu þrátt fýrir
hörmungar Persaflóastríðsins. í
rauninni er það þó ekki Saddam
Hussein sem þarna laugar sig í
Tígrisfljóti 26. júlí 1992, heldur
staðgengill hans, Fawaz al-Emari.
Hann gekkst undir skurðaðgerð í
Júgóslavíu og eftir það hefur hann
verið lifandi eftirmynd Saddams.
Latif Yahia hefur upplýst að mað-
urinn sem fýrst gegndi hlutverki
staðgengils Saddams hafi farist í
banatilræði 1984. Þá sprakk
sprengja þegar bílalest harðstjórans
ók frá Bagdad til Tikrit, fæðingar-
borgar Saddams.
Sjálfur átti Latif Yahia heldur erf-
iða daga eftir að andliti hans var
breytt. Hann segir að hann hafi
hrækt á spegilmynd sína þegar
hann sá fyrst að hann var nær
óþekkjanlegur frá Uday, elsta syni
Saddams. En þá var allt um seinan;
hann þurfti að eyða íjórum árum
sem staðgengill Uday og lifði í
stöðugum ótta, mitt í stjórn sem
einkennist af ofsóknaræði og
grimmd. Að vissu leyti fékk hann
að njóta forréttinda hirðarinnar í
kringum Saddam, hann komst að
ýmsum leyndarmálum, en hann
mátti líka vita að líf hans var ekki
mikils virði innan um þessa menn.
Lifði níu banatilræði
Nú hefur Yahia semsé leyst frá
skjóðunni og skýrt frá því hvernig
hann var pyntaður til að umbreyta
lífi sínu og taka líkamlega og and-
lega á sig mynd sonar Saddams,
manns sem er þekktur fýrir illsku
og ólifnað. Það er hermt að á sínum
tíma hafi bæði Stalín og Churchill
haft slíka staðgengla á snærum sín-
um og er þeim ætlað að koma fram
við tækifæri þar sem þessum æðstu
stjórnendum kynni að vera hætta
búin.
Yahia segist hafa lifað af níu
banatilræði. Hann kom fram í op-
inberum veislum, sat íþróttakapp-
leiki og var sendur á vígvöllinn í
Kúveit. Þar var hann myndaður í
hópi hermanna; íröksku þjóðinni
var ætlað að trúa því að Saddam
hefði hætt lífi sonar síns í styrjöld-
inni.
Aðeins í eitt skipti mátti hann
þakka fyrir umskiptin sem hann
ella hataðist út í. Þegar Yahia ákvað
loks að flýja frá írak spruttu her-
menn við vegartálma upp og heils-
uðu honum með mikilli virðingu
þegar Oldsmobile-bifreið hans
geystist norður í átt til landamær-
anna.
Yahia þurfti að lifa í gervi manns
sem er ekki síður \É&
hataður en faðir hans.
Hann þykir spilltur og grimmlynd-
ur glaumgosi sem missir iðulega
stjórn á skapi sínu. Þá gerir hann
sig oft sekan um ofbeldisverk sem
leynilögregla er síðan látin hylma
yfir. Uday bakaði sér meira að segja
óvild föður síns þegar hann í
drykkjuæði barði til bana einn
þjóna hans 1988. Þá var hann um
hríð sendur í útlegð til Genfar. Nú
virðast feðgarnir þó hafa náð sam-
an á nýjan leik; á síðasta ári skýrðu
írakskir útlagar frá því að Saddam
hefði látið taka af lífi þrjá herfor-
ingja sem höfðu gert því skóna að
Uday væri ekki maður til að gegna
embætti varnarmálaráðherra, en
það hafði faðir hans ætlað honum.
Andliti hans hafði
verið gjörbreytt
í Júgóslavíu og
mssneskir læknar
höfðubreytt
raddböndum hans
svoröddhans
hjómaði eins og
rödd Saddams.
Síðan í Persaflóastríðinu hefur
Uday reynt að afla sér ögn meiri
virðingar með því að koma á fót
dagblaði, útvarpsstöð og sjónvarps-
stöð þar sem er sýnt skemmtiefni
frá Vesturlöndum. Yahia varð hins
vegar sjálfur vitni af því hvern
mann sonur harðstjórans hafði að
geyma. Hann segir að hann stundi
svartamarkaðsbrask og græði ótrú-
legar fjárhæðir á því að selja áfengi,
tóbak og matvæli á sama tíma og
almenningur í Irak líður miklar
þjáningar vegna alþjóðlegs við-
skiptabanns. Auk þess segir hann
að Uday skemmti vinum sínum
með því að sýna þeim myndbönd
sem tekin eru af pyntingum í fang-
elsum.
Sonur Saddams
Að mörgu leyti virðist Yahia,
sem er þrítugur að aldri, varla vita
lengur hvern mann hann hefur að
geyma. Hann er ennþá lifandi eftir-
mynd Uday og klæðist eins og hann
í vestræn jakkaföt, skartgripi úr
gulli og dökk sólgleraugu. Hann
hefur enn alskegg eins og fyrir-
mynd hans og reykir stóra vindla
frá Kúbu; oft gleymir hann sér og
bíður eftir því að einhver kveiki í
vindlinum fyrir
sig, rétt eins og hann
hafi ennþá þjóna á hverjum fingri.
Hann er hins vegar hættur að ganga
í skrokk á konu sinni, en það athæfi
lærði hann af syni Saddams.
Innst inni vill Yahia eyða öllum
ummerkjum Uday úr fari sínu. Það
er hins vegar hægar sagt en gert, því
í raun hefur hann týnt sínu eigin
sjálfi. Vísast er þetta klípa sem hefði
vakið áhuga Sigmund Freud, en
sálkönnuðurinn frægi var til húsa í
sömu götu og Yahia fer nú huldu
höfði.
Yahia ólst upp í Bagdad en faðir
hans var auðugur kaupmaður af
kúrdískum ættum. Hann gekk í
skóla fýrir börn forréttindastéttar-
innar og í sama bekk var einmitt
margumræddur Uday. Drengirnir
voru ákaflega líkir í útliti en ekki að
skapgerð. Strax þá þótti Uday hafa
tileinkað sér slæma mannasiði.
Yahia tók lögfræðipróf frá há-
skólanum í Bagdad 1986. Eftir það
gegndi hann herþjónustu í stríðinu
við íran. Hann var á vígstöðvunum
þegar hann fékk boð frá sjálfum
forsetanum um að koma til Bagd-
ad. I forsetahöllinni tók Uday á
móti honum. Þeir töluðu saman
um heima og geima þangað til
Uday spurði hann allt í einu hvort
hann vildi ekki verða sonur Sadd-
ams. Uday var skilningsvana og
svaraði: „Við erum allir synir Sadd-
ams.“
Þá sagði Uday honum að sig
vantaði tvífara. Yahia spurði hvað
myndi verða um sig ef hann játaði -
eða ef hann neitaði. Uday sagði að
ef hann segði já myndi hann fá pen-
inga, þjóna, konur hús. Ef hann'
segði nei, þá myndu þeir vera vinir
eins og áður.
Yahia hugsaði sig lengi um. Loks
þóttist hann hafa fundið undan-
komuleið. Hann svaraði: „Allir Ir-
akar vilja þjóna forseta sínum. Ég
þjóna honum sem hermaður og
æski einskis umfram það.“
Pyntaður
tíl undirgefni
Við þetta svar varð Uday vitstola
af reiði. Hann reif borðana af ein-
kennisbúningi Yahia og kallaði ör-
yggisverði á vettvang. Þeir fluttu
hann á brott og lokuðu hann inni í
klefa sem var málaður í blóðrauð-
um lit.
Þarna sætti Yahia verstu pynt-
ingum. Hann var barinn með raf-
magnssnúrum, hengdur upp á
höndunum og fékk enga næringu
nema vatn og ögn af brauði og hrís-
grjónum. Honum var sagt að ef
hann neitaði myndi hann dvelja í
fangaklefa til æviloka. Eftir viku var
honum öllum lokið.
Nokkrum dögum síðar undirrit-
aði hann skjöl þar sem hann hét því
að vera framvegis staðgengill Uday
og láta ekkert uppi um þetta athæfi.
I niðurlaginu var klásúla; þar stóð
að öll brot á þessum samningi
þýddu að Yahia yrði tekinn af lífi
með hengingu. Tveimur dögum
síðar var hann kominn í hendur
skurðlækna í einkaspítala Saddams
í höllinni. Þeir fjarlægðu framtenn-
ur hans og settu í staðinn tennur
sem líktust tönnum Uday. Að því
loknu skáru læknar í andlit hans og
útbjuggu hökuskarð.
Þá hófst langt og strangt nám.
Hálfu og heilu sólarhringana horfði
hann á myndbönd af Uday þar sem
hann dansaði, keyrði bíla, kveikti
sér í vindlum og drakk viskí.'Allt
þetta þurfti hann að apa eftir dag
eftir dag þar til þjálfarar hans úr
leyniþjónustunni voru ánægðir.
Eftir sex mánuða þjálfun kom
hann opinberlega fram í fyrsta
skipti. Það var á fótboltakappleik
og til vonar og vara var hann um-
kringdur fólki sem þekkti son for-
setans. Hann stóðst prófið. Á þeirri
stundu segist hann hafa hugsað: „-
Latif Yahia er ekki lengur til.“
Vellystingar og ótti
I fjögur ár kom Yahia fram í
gervi Uday. Hann ferðist með hon-
um til helstu borga Evrópu. Þegar
Uday keypti sér föt, helst frá Dior
eða Yves St. Laurent, keypti hann
önnur nákvæmlega eins föt handa
Yahia. Eitt mátti hann þó alls ekki
og þar var Uday afdráttarlaus: Ya-
hia var harðbannað að koma ná-
lægt neinni hjákonu Udays.
Þegar kom fram í Persaflóastríð-
ið var Saddam farinn að hafa svo
mikla tröllatrú á Yahia að hann
ákvað að nota hann til að leika á
þjóð sína. Hvert mannsbarn í írak
man eftir því þegar sjónvarp sýndi
myndir af Uday þar sem hann var í
félagskap hermanna á vígvellinum í
Kúveit. Þetta var í raun Yahia sem
Saddam notaði þannig til að kveða
niður fréttir um að fjölskylda hans
færi huldu höfði.
Þótt Yahia segist hata Uday svo
mikið að hann vildi helst skera
hann í smábita og gefa hundum að
éta fer því fjarri að Ííf hans hafi ver-
ið samfelldur táradalur. Hann hafði
þrjár lúxusvillur til umráða, pen-
inga eins og hann kærði sig um og
fagrar konur á hverjum fingri. Það
var þó ekki nóg til að sefa óttann;
óttann við að Uday myndi drepa
hann eða að hann myndi verða fyr-
ir einhverju banatilræðinu sem ætl-
að væri Uday. Eins og áður kom
fram segist hann sjálfur hafa lifað af
níu tilræði. Stundum voru þar á
ferð ættingjar og vinir sem héldu
því fram að Uday hefði misnotað
konur þeirra. Hann segir frá því að
eitt sinn hafi hann orðið vitni að
því að óður maður réðist inn á
skrifstofu Uday. Hann hrópaði að
sonur forsetans hefði nauðgað
barnungri dóttur sinni og vildi að
sér yrði bættur skaðinn. Uday dró
upp skammbyssu og skaut mann-
inn án vífillengja. Það kom hvorki
Yahia né öðrum úr hirð Uday á
óvart.
I höllinni ríkti ótti og enginn
þorði að segja hug sinn. Við einn
mann gat Yahia þó talað öðrum
fremur, Fawaz al-Emari, staðgengil
Saddams. Emari hafði þurft að
gangast undir miklu viðameiri
skurðaðgerð en Yahia. Andliti hans
hafði verið gjörbreytt í Júgóslavíu
og rússneskir læknar höfðu breytt
raddböndum hans svo rödd hans
hjómaði eins og rödd Saddams. En
þrátt fýrir vináttuna sem myndað-
ist milli þessara tveggja manna sem
áttu svo margt sameiginlegt fór því
fjarri að þeir ræddu opinskátt um
hlutskipti sitt. Til þess voru þeir of
hræddir við gagnkvæm svik.
Flóttinn
Loks ákvað Yahia að leggja á
flótta. Tvívegis hafði kastast í kekki
með honum og Uday. Af eðlislægri
tortryggni fór forsetasoninn að
gruna fyrirætlanir Yahia. Einn
morguninn þegar hann var staddur
í anddyri Babýlon-hótelsins í Bagd-
ad steig Uday fram og hleypti af
byssu. Kúlan hitti hann í brjóstið
en snerti engin mikilvæg líffæri.
Yahia segir að þrátt fýrir að sér
hafi blætt ákaflega hafi sér tekist að
komast út í bíl. Hann keyrði í átt til
griðasvæðis Sameinuðu þjóðanna í
Kúrdistan.
Þótt hann væri ekki stöðvaður
við vegatálma var áhyggjum hans
ekki lokið. Hann óttaðist að ef upp-
reisnarmenn Kúrda kæmu auga á
Honum var sagt að
efhann neitaði
myndi hann dvelja
í fangaklefa til ævi-
loka. Eftir viku var
honum öllum lokið.
sig myndu þeir ekki sýna neina
miskunn í þeirri trú að hann væri
Uday. Loks yfirgaf hann bifreið
sína og komst fótgangandi að húsi
vinafólks síns, en sem fyrr segir er
Yahia af kúrdískum ættum.
Að lokum komst hann í hendur
Bandaríkjamanna. Þeir trúðu sögu
hans mátulega í fýrstu en sendu þó
eftir fjórum leyniþjónustumönn-
um. Fyrir þeirra tilverknað var
konu og ungri dóttur Yahia smygl-
að út úr írak og loks fékk fjölskyld-
an pólitískt hæli í Vínarborg.
Þar eru búsettir margir Irakar og
Yahia lifir í stöðugum ótta um að
einhver þeirra hafi verið gerður út
til að myrða sig. Ekki minnkaði ótt-
inn í september þegar hann fékk
símbréf frá sendiráði íraks þar sem
honum var heitið griðum og sagt
að hann skyldi snúa aftur til Bagd-
ad. Bréfið kom á óskráða faxvél og
númerið átti ekki að vera í fórum
neinna nema náinna vina Yahia.
En erfiðast á hann þó með að ná
einhverjum sáttum við sjálfan sig
og undir það tekur kona hans:
„Viðmót hans gjörbreyttist,“ segir
hún. „Áður var hann venjulegur
maður, en allt í einu varð hann
harður og ofstopafullur. Hann
barði mig og sparkaði í mig og oft
hugleiddi ég skilnað. En nú veit ég
að hann er að reyna að finna sjálfan
sig á nýjan leik.“ -eh
(endursagt úr The Sunday Times)