Helgarpósturinn - 26.01.1995, Side 40
BíMríkisskattstjóra
itrekao skemmdur
Samkvæmt traustum heimild-
um MORGUNPÓSTSINS hefur
Garðar Valdimarsson ríkis-
skattstjóri neyðst til þess að
selja bíl sinn þar sem ítrekað
voru framin skemmdarverk á
honum. Þegar Garðar varð fyrir
því í fjórða sinn að ráðist var á
bíl hans mun honum hafa verið
nóg boðið og ákveðið að losna
undan þessum óþægindum
með því að losa sig einfaldlega
við bílinn. Lögreglunni hefur
ekki tekist að hafa hendur í hári
spellvirkjanna en þeir munu
vera úr hópi óánægðra skatt-
greiðenda.
Heimildir blaðsins segja að
Garðar hafi það nú fyrir sið að
ferðast með almenningsvögn-
um borgarinnar til og frá vinnu
sinni.
STEBBI stal hárgreiðslu Helga. GUÐMUNDUR ÁRNI tapaði fyr-
ir fíannveigu sem er sigur fyrir Jón Baldvin.
Getur Helgi Björns far-
ið í mál víð Stebba
Hilmars?
A morgun gangast laganemar fyr-
ir áhugaverðu málþingi um höfund-
arrétt á Hótel Nesjavöllum. Eiríkur
Tómasson lagaprófessor er frum-
mælandi þingsins en auk hans flytja
erindi: Páll Sigurðsson iagapró-
fessor, Erla Árnadóttir hæstaréttar-
lögmaður ög tónlistarmennirnir
Áskell Másson og Helgi Bjöms-
son. Umræðan hefur alla burði til
þess að verða hin líflegasta jafnt fyrir
Íöglærða sem aðra. Það er til að
mynda spurning hvort Helgi Björns
noti ekki tækifærið og fái lögfræði-
legt álit á því hvort hann geti stefht
Stefáni Hilmarssyni íyrir stuld á
„lúkki“, en stæling Stefáns á hár-
greiðslu Helga heflir vakið mikla at-
hygli.
Formannsdraumur
Guðmundar fyrir bí
Afhroð Guðmundar Árna Stef-
ánssonar í prófkjöri krata á Reykja-
nesi um síðustu helgi kom nokkuð á
óvart. Nokkrum vikum fyrir próf-
kjörið var mikil sigling á ráðherran-
um fyrrverandi á meðan Rannveig
Guðmundsdóttir fór sér hægt og
skrapp meðal annars til útlanda í
miðri kosningabaráttunni. En um
leið og úrslitin lágu ljós fyrir voru
draumar Guðmundar Árna um leið
fyrir bí. Það verður lengri bið effir
því en hann vonaði að hann endur-
heimti krónprinstitilinn í flokknum.
Og formennska í Alþýðuflokknum
er ekki í sjónmáli í náinni framtíð.
Þær sögur eru háværar að bjartsýni
Guðmundar Árna hafi verið svo
mikil fyrir prófkjörið að hann hafi
verið að gæla við þá hugmynd að
sækjast eftir kjöri sem formaður á
aukaflokksþinginu ef Jón Baldvin
Hannibalsson segði af sér, eins og
nokkrar líkur voru taldar á. Á Guð-
mundur Árni að hafa þreifað fyrir
sér um stuðning meðal héraðshöfð-
ingja krata víða um land...
Prófkjörið styrkir stöðu
Jóns Baldvins
Meira um eftirmál prófkjörsins.
Altalað er að Jón Baldvin hafi verið
ánægður með að Rannveig hafði
Guðmund Árna örugglega. Staða
hans sjálfs í formannsstóli styrktist
verulega við það og Guðmundur
Árni getur ekki á nokkurn hátt sótt
að honum og krafist þess að verða
veitt uppreisn æru af formanninunr
og flokknum í heild, en eins og
menn muna var Guðmundur Árni
afar ósáttur við hve lítinn stuðning
formaðurinn veitti honum í orra-
hríðinni á síðasta ári. Þá kemur ör-
ugg kosning Petrínu Baldursdótt-
ur í Grindavík sér ákaflega vel fyrir
formanninn. Eftir að hún kom inn á
þing hefiir hún stutt Jón Baldvin
dyggilega án þess að krefjast nokkurs
á móti. Hún beitti sér mjög í fjöl-
miðlum þegar uppgjör Jóns Baldvins
og Jóhönnu Sigurðardóttur stóð
sem hæst og réðst harkalega að þeim
Alþýðuflokksmönnum sem tóku
upp hanskann fýrir Jóhönnu. Flestir
eru þó enn þeirrar skoðunar að for-
maðurinn víki eftir kosningar en það
verður ólíkt þægilegra fýrir hann að
gera það sjálfviljugur en vera neydd-
ur til þess...
Ekki hægt
að væna Rannveigu
um siðspillingu
Það hefði verið erfitt fyrir Alþýðu-
flokkinn að fara í kosningabaráttuna
á Reykjanesi með Guðmund Árna í
fararbroddi vitandi það að Mathie-
sena-klanið myndi hamra á sið-
spillingu hans alla kosningabarátt-
una. Rannveig hefur allt aðra ímynd
sem mun fara betur saman við þær
línur sem kratar hyggjast leggja í
kosningabaráttunni. Búist er við að
lögð verði megináhersla á árangur
ríkisstjórnarinnar en siðspillingar-
umræðan verði sniðgengin eins og
kostur er. TJrslit prófkjörsins þýða að
hægt verður að halda Guðmundi
Árna til hlés en beita Rannveigu fyrir
vagninn. Ef íhaldið mun nota sið-
spillingarvopnið á Reykjaneskrata
gæti það auðveldlega snúist í hönd-
unum á þeim þegar þeir mæta Rann-
veigu. Enginn hefur vogað sér fram
að þessu að efast um heiðarleika ráð-
herrans og sá sem myndi kasta fyrsta
steininum gæti fengið glerhýsið yfir
sig...
Landsfundur Þjóðvaka verður haldinn í Reykjavík
um helgina. Þar ræðst endanlega hverjir munu skipa
forystusveitina í kringum Jóhönnu Sigurðardóttur
Svanfríður líklega
kjörin varaformaður
Nokkrir af forystumönnum Þjóðvaka samankomnir á skrifstofu hreyfingarinnar í Hafnarstræti. Svanfríður
Jónasdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Ágúst Einarsson, Jón Daníelsson og Katrín The-
ódórsdóttir.
Á laugardaginn verður formlega
gengið frá stofnun Þjóðvaka -
hreyfingar fólksins, þegar blásið
verður til landsfundar í Reykjavík.
Þá verður gengið til kosninga um
forystumenn flokksins en öllum er
ljóst að Jóhanna Sigurðardóttir
er sjálfkjörinn formaður. Innan
Þjóðvaka hefur sú skoðun nrikið
fylgi, ekki síst af taktískum ástæð-
um, að fulltrúi af landsbyggðinni
verði við hlið Jóhönnu sem vara-
formaður. Síðustu daga hafa eink-
um tvö nöfn verið ofarlega í þeirri
umræðu, það eru þau Svanfríður
Jónasdóttir, forseti bæjarstjórnar
Daivíkur, og Sigurður Pétursson,
sagnfræðingur.
34 manna stjórn
Drög að lögum Þjóðvaka, senr
kynnt verða í upphafi landsfundar-
ins, gera ráð fyrir að kosnir verði 32
fulltrúar í stjórn flokksins ásamt
formanni og varaformanni. Annað
hvert ár verður helmingnum skipt
út og kosið um þau sextán sæti sem
losna með því móti. Kosning í
stjórnina nær því til tveggja ára og
það sama gildir um formann og
varaformann.
Allir gildir félagsmenn verða í
kjöri en búist er við að einstakling-
ar verði tilnefndir til formennsku,
varaformennsku og í stjórnina en
öllum er ffjálst að lýsa yfir fram-
boði sínu.
Allir félagsmenn í Þjóðvaka eiga
rétt til setu á landsfundi. „Skipulag
Þjóðvaka er að því leyti ólíkt því hjá
gömlu flokkunum að það er byggt á
beinu lýðræði en ekki fulltrúalýð-
ræði,“ sagði Katrín Theodórs-
dóttir, framkvæmdastjóri Þjóð-
vaka, í gær. „Við höfum mælst til
þess að fólk skrái sig á landsfund-
inn og þátttakan er fín. Nærri 300
manns hafa tilkynnt þátttöku og
við vonum að fleiri komi.“
Undanfarna daga hefur svoköll-
uð ritnefnd verið önnum kafin við
að fara í gegnum vinnu einstakra
málefnahópa og vinna úr því drög
að stefnuskrá.
Svanfríður sterkari
en Sigurður
Það kom mörgum á óvart þegar
MORGUNÓSTURINN upplýsti
hverjir völdust í nánasta ráðgjafa-
hóp Jóhönnu, svokallaða uppstill-
ingarnefnd. Það voru þær Lára V.
Júlíusdóttir, Ólína Þorvarðar-
dóttir og Katrín Theodórsdóttir.
Þar sem fjöldi Alþýðubandalags-
manna hefur gengið til liðs við
Þjóðvaka, og margt af því fólki
mun leiða framboð í kjördæmun-
um, bjuggust menn við að þeir
fengju áhrif í samræmi við það, en
stuðningsmenn Jóhönnu, sem eiga
pólitískar ættir sínar að rekja til Al-
þýðuflokksins, einokuðu ekki
áhrifastöður.
Heimildarmenn blaðsins sögðust
ekki hafa teljandi áhyggjur af þessu
þar sem búast mætti við að I stjórn
flokksins veldist fólk víða að af
landinu og úr fleiri pólitískum
kreðsum.
Þá kom nafn Svanfríðar Jónas-
dóttur aftur og aftur upp í tengsl-
um við varaformennskuna en
margt er talið vinnast með kosn-
ingu hennar. I fýrsta lagi mun hún
leiða listann á Norðurlandi eystra, í
öðru lagi er hún fýrrverandi vara-
formaður Alþýðubandalagsins
og í þriðja lagi er hún kona.
Þannig væri hún fulltrúi lands-
byggðarinnar og fyrrum Alþýðu-
bandalagsfólks, auk þess sem hún
þykir með sterkari frambjóðendum
Þjóðvaka á landsvísu. Þá þykir
sterkt að tefla tveimur konum sam-
an í forystusveitinni.
Einnig hefur Sigurður Pétursson,
fyrrverandi formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna og eiginmað-
ur Ólínu Þorvarðardóttur, verið
nefndur sem kandídat í varafor-
mennskuna. Hann verður að öllum
líkindum í efsta sætinu á Vestfjörð-
um og á hann ættir sínar að rekja
þangað. Búseta Sigurðar í Reykja-
vík til margra ára þykir þó vinna
gegn honum, sömuleiðis að hann
komi úr Alþýðuflokknum eins og
Jóhanna. Þess utan þykir hann síð-
ur líklegur til að draga að kjósendur
og vekja athygli í kosningabarátt-
unni, eins og búist er við af Svan-
fríði. Á móti kemur að Sigurður
hefur verið einn dyggasti stuðn-
ingsmaður Jóhönnu í gegnum árin
og barðist við hlið hennar með
kjafti og klóm í deilunum við Jón
Baldvin Hannibalsson og hægri-
kratana í Alþýðuflokknum.
Að öllu samanlögðu eru þó flest-
ir heimildarmenn blaðsins innan
Þjóðvaka þeirrar skoðunar að
Svanfríður verði fýrir valinu og fái
rússneska kosningu.
Ekki er búist við að koma þurfi
til eiginlegra kosninga um varafor-
rnann og mun vera nánast þegjandi
samkomulag um að það verði á
valdi Jóhönnu hver velst við hlið
hennar. „Mér skilst að Jóhanna
muni ekki gera upp hug sinn fýrr
en aðfaranótt laugardagsins,“ sagði
náinn ráðgjafi hennar. -SG
Veðrið í dag Norðan og norð-
austan átt, gola eða kaldi víð-
hvar. Um landið sunnan og
verður léttskýjað en
yrðra. Frost verður á bilinu
10 stig, kaldast norðvestan
Veðurhorfur næstu daga Á
föstudag og laugardag verður
norðaustlæg átt, él norðan og
austan lands en skýjað með
suðvestan til. Frost 4 til
12 stig. Á sunnudag verður
austan og norðaustan átt, úr-
komulítið vestan lands en él í
öðrum landshlutum. Frost 1 til
8 stig.
Vedrið um helaina
Á lögreglan að rannsaka
ásokanir um ofbeldi
lögreglunnar?
Greiddu atkvæði!
99 15 16
39,90 krónur mínútan
\
Tap
54,5%
Síðast var sþurt:
Er niðurstaða prófkjörsins
sigur eða tap
fytir Guðmund Árna?
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.