Helgarpósturinn - 06.04.1995, Qupperneq 4
FIMMTUDAGuR 6T7vPRIin 995
HVERJAR
ERU REGL-
URNAR?
Fyrir kosningar í Frakklandi
bernsku minnar voru pla-
köt uppi um alla veggi,
sem skiptu um lit á nverj-
um degi, dreifirit úti um
allt, fólk sem hrópaði í há-
talara og mikill hávaði úti
á götum eftir að kosninga-
úrslit voru kunn.
Talning fór fram fyriropn-
um tjöldum. Almenningur
tók þátt í að opna umsTög
og telja atkvæðaseðla.
Heilu fjölskyldurnar mættu
á staðinn. Hatursaugnaráð
flugu yfir borðið. Mer
fundust ógildu seðlarnir
alltaf skemmtileqastir.
Hrútalvarlegir teTjararnir
drógu stunaum sundur-
tættar myndir af frambjóð-
endum upp úr umslögun-
um, notaoan klósettpappír
og ýmislegt fleira.
Daginn eftir komu síðustu
tölur úr Karíbahafinu og
Kyrrahafinu, frá Tahítí eða
Wallis og Futuna. Þessar
tölur voru alltaf skrýtilega
Sirvaldinu í hag.
orsíkumenn voru alltaf
með skemmtilegar uppá-
komur. Bæjarstiórar
gleymdu að strika dauða
menn út af kjörskrá og
héldu áfram að biðja um
álit þeirra. Úrillir kjosend-
ur, sem ekki höfðu fram-
liðna á sínu bandi, köstuðu
eitt sinn fullum kjörkassa í
sjóinn. Það er auðvitað
Ijótt að láta þá látnu kjósa
en sumir frambjóðendurnir
voru varla líflegri.
Kosningar á Isíandi eru
öðruvísi. Þær byrja á því að
kosningum er hótað aður
en kjörtímabilinu lýkur.
Auðvitað trúir því enginn
og allra síst veðurguoinn.
Og svo eru það kosning-
arnar fyrir framan sjón-
varpið. I hvert skipti krefst
ég pess að kerfið sé út-
skýrt fyrir mér en engum
hefur hingað til tekist það.
- Er uppbótarsæti það
sama og jöfnunarsæti?-
Ekki spyrja mig.
-Hvað eru mörg jöfnunar-
sæti? -Ekki hugmynd.
- Uss, nú koma nyjartölur.
-En hver er munurinn á
flakkara og jöfnunaársæti?
- Það þarftu ekkert að vita
til að qeta fylgst með.
-En þio mynduð ekki spila
handbolta án þess að
kunna reqlurnar! -Það er
allt annað mál. I handbolt-
anum eru þeir bara 14 en
þingmenmrnir eru 63.
Gérard Lemarquis
Island er skrifað af
hringborði fóiks sem á
rætur sínar að rekja til
útlanda en býr hér á
landi.
vsyjs» Jlflf
V J
Baldvin Jónsson lögmaður tók við á síðasta kjörtímabili sem formaður Landskjörstjórnar og
hefur nú setið í henni í alls 12 ár. Á árunum frá 1942 fram á miðjan sjöunda áratuginn stjórnaði
svo Baldvin kosningabaráttu Alþýðuflokksins. Að hans mati:
rrStefhir í i
kosningar
Í12ár1'
/ hverju felst starf formanns
Landskjörstjðmar, þarftu að vera
innilokaður d kjörstað alla nótt-
ina?
„Þetta er ekkert stórmerkilegt
starf sem maður hefur með
höndum, en þetta er þó ná-
kvæmnisvinna, mjög mikil ná-
kvæmnisvinna. Það má ekkert út
af bregða. Eftir að yfirkjörstjórn
á hverjum stað hefur skilað
gögnunum þurfum við að fara
gegnum þau öllsömul. Starf okk-
ur hefst reyndar á því að við tök-
um við kjörgögnum frá yfirkjör-
stjórnum, röðum þeim upp, aug-
lýsum listana og sendum þá til
baka. Þegar því verki er lokið er
eiginlega stopp hjá okkur þar til
kosningum er lokið. Þá tökum
við til höndum, skoðum gögnin,
hverjir hafa verið kjörnir og að
lokum gefum við út kjörbréf
bæði fyrir aðalmenn og vara-
rrienn. Þetta þýðir með öðrum
orðum að ég get dvalið heima
hjá mér á kosninganóttina og
fylgst með sjónvarpinu, reyndar
bara Ríkissjónvarpinu því ég
þori ekki að sleppa því sem ég
þegar hef. Annars verða úrslit
sennilega ekki ljós fyrr en á
sunnudagskvöldið því ég á von á
því að þeir noti heimildina og
hafi kjördagana tvo vegna ófærð-
ar víða úti á landi.“
Hvað kom til að þú varst skip-
aður íLandskjörsstjórn?
„Ég var kosinn af Alþingi á sín-
um tíma. Ég held að Alþýðuflokk-
urinn hafi staðið að því, síðan
hef ég verið endurkjörinn."
Eftir að hafa verið svo lengi
viðriðinn kosningar, hverjar eru
þœr eftirminnilegustu að þínu
mati?
„Mér finnst alltaf komandi
kosningar mest spennandi. Sum-
ar hafa reyndar verið upplagðar
og jafnframt ekkert spennandi,
en ég held að þær verði mjög
spennandi núna, allvega mest
spennandi kosningar í 12 ár, ef
þessar skoðanakannanir hafa
eitthvað að segja.“
Hverju spáir þú fyrir um úrslit-
in?
„Eitt eða tvö sæti niður á við
muna mjög miklu, því tel ég
sennilegt að stjórnin sé fallin. Ég
er helst á því að Framsókn og
Sjálfstæðisflokkur taki saman,
það er ekki síst vegna yfirlýsinga
Davíðs um að hann vilji tveggja
flokka stjórn.“
Nú stjórnaðir þú
kosningum hjá Alþýðu-
flokknum í mörg ár,
eða frá 1942 fram á
miðjan sjöunda áratug-
inn, er ekkert eftir-
minnilegt frá þeim ár-
um?
„Það eru náttúrlega
einstaka úrskurðir og
annað. Hins vegar sit-
ur mest í mér þegar
gömul kona hringdi í
mig ofan af Landakots-
spítala og vildi kjósa.
Ég sinnti auðvitað
konunni og fór uppeft-
ir með mannskap til
að láta bera hana, en
þegar ég kom á spítal-
ann sá ég að þetta var
afskaplega grönn
kona svo ég rak alla
hina burtu og tók
hana í fangið. Þar sem
við göngum eftir gang-
inum segir sú gamla: Ég ætla að
fella helvítis íhaldið. Ég bað hana
vinsamlegast að segja þetta ekki
þegar við kæmum á kjörstað því
þá fengi hún ekki að kjósa. „Þú
Baldvin Jónsson, formaður Landskjörstjórnar, er helst á því að Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur taki saman eftir kosningar, enda segir
hann að eitt til tvö sæti niður á við muni ansi miklu.
verður að þegja,“ sagði ég. Hún
lofaði því. Á kjörstað gekk allt
vel, hún fór í kjörklefann og kem-
ur út aftur og segir hátt og skýrt:
Nú er ég búin að kjósa! en síðan
hækkar hún róminn og hrópar
yfir allan ganginn: Fellið íhaidið!.
Það munaði minnstu að ég færi
niður úr ganginum."
GK
Spekingar spá í kosningarnar
Annars staðar í þessu blaði birtast niðurstödur umfangsmikillar skoðanakönnunar sem pósturinn lét vinna fyrir sig. Það þótti hins
vegar ekki úr vegi að leita einnig út fyrir galdra tölfræðinnar til að spá í kosningaspilin og því leitaði pósturinn einnig til nokkurra
valinkunnra kosningaspekúlanta og fékk þá til að spreyta sig á því að segja fyrir um úrslit kosninganna á laugar-
daginn kemur. Lesendur geta síðan borið saman spádómsgáfu þessara ágætu manna annars vegar og
tölfræðinnar hins vegar þegar úrslit liggja fyrir á sunnudagsmorgun.
DAVÍD ÓLAFSSOIU
Flokkur Fjöldi þingmanna
Alþýðuflokkur 7
Framsóknarflokkur 14
Sjálfstæðisflokkur 23
Alþýðubandalag 9
Þjóðvaki 8
Kvennalisti 2
HELGI SEUAIU
Flokkur Fjöldi þingmanna
Alþýðuflokkur 7
Framsóknarflokkur 14
Sjálfstæðisflokkur 23
Alþýðubandalag 10
Þjóðvaki 6
Kvennalisti 3
JOIU ARMAIUIU HEDIIUSSOIU
Flokkur
Alþýðuflokkur
Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur
Alþýðubandalag
Þjóðvaki
Kvennalisti
Fjöldi þingmanna
7
14
24
9
6
3
BJAJRIUI GUÐIUASOIU
Flokkur Fjöldi þingmanna
Alþýðuflokkur 6
Framsóknarflokkur 16
Sjálfstæðisflokkur 22
Aljjýðubandalag 9
Þjóðvaki 7
Kvennalisti 3
■UDRKHG. PORSTEHUSSOIU*
Flokkur Fjöldi þingmanna
Alþýðuflokkur 7
Framsóknarflokkur 15
Sjálfstæðisflokkur 24
Alþýðubandalag 8
Þjóðvaki 7
Kvennalisti 2
* Það skal tekið fram að Indriði var sá
eini, sem kaus að spá í prósentum og
útreikningurinn á þingmannatölu ein-
stakra flokka út frá þeim tölum var
gerður af blaðamanni.