Helgarpósturinn - 30.11.1995, Page 28

Helgarpósturinn - 30.11.1995, Page 28
FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1995 I iíx'UiiiVpoltítLir H Jakob Bjarnar Grétarsson fletti ígegnum Plötutíðindi og bar bækur sínar saman við sérfræðinga á hönnunarsviðinu. Þeir reyndust furðu sammála um Ijótleika og flottheit í hönnun diskaumslaga. Flottustu & liótustu 1. Ýmsir — Partyzone 2 Hönnunin er nýstár- leg, ekkert harðplast er notað í útgáfunni, heldur grófur pappi. Hugmyndin: Að stinga í stuð virkar. Gefur til- finningu fyrir rafmagn- aðri danstónlist. Góð- ur heildarpakki. plötu - umslögin Ljótustu 1. Kristín Eysteins- dóttir — Litir „Kristín Eysteins- dóttir er bæði engill og algjör tík,“ segir í Plötutíðindum. Eng- illinn virðist hafa ver- ið skilinn eftir heima þegar umslagið var gert, því það er væg- ast sagt ákaflega óviðfelldið og mar- traðarkennt. Stephen King gæti notað þetta á bókarkápu segjum „Pet Cemetary 4“. 2. Gusgus — tónlist úr kvikmyndinni Nautn nr. 1 Ef þú ferð til Kidda kanínu í Hljómalind og flettir í hipp- hoppkassanum hans kemstu að því að hér er ekkert nýtt á ferð. Erlendir hipphopphönn- uðir sítera gjarnan í gamlar djassplötur frá Blue Note-út- gáfunni. Hér er ekki vikið frá þeirri hefð og um hreint ágæta útfærslu að ræða. Það er bít í þessu. Og appelsínu- bleiku nærbuxurnar utan um pakkann eru ekki til að draga úr hippinu. 3. Hilmar Jensson — Dof- inn Hér er um umdeildasta um- slagið að ræða að þessu sinni en sérfræðingarnir fá að ráða. Þegar þú labbar inn í plötu- búð þá virkar einföld sjónræn myndhugsun oft best. Þetta umslag er óneitanlega stíl- hreint og týpógrafían skemmtileg. Óvenjulegur hlut- ur á plötuumslagi og rímar vel við titilinn. Hins vegar minnir þessi Lazyboystóll óneitan- lega á auglýsingu frá Hús- gagnahöllinni fremur en lif- andi tónlist? Eru þeir styrktar- aðilar? 5. Cigarette — Double talk Hún Heiðrún Anna er bara svo mikið babe og svo fótó- genísk að það er ekki hægt annað en taka ofan hattinn fyrir hönnuðinum: Að koma auga á hið augljósa og nota hana sem aðal á umslaginu. Ljósmyndarinn hefði hugsan- lega mátt láta hana vera reykj- andi á myndinni. Nei, alveg rétt. Hún reykir ekki. Letur og annað í ágætu meðallagi. 6. Ham — Dauður hestur Ham er látin dauðarokk- hljómsveit og það verður ekki betur séð en þetta hross sé að hneggja sitt síðasta. Titillinn er í góðu samræmi við mynd- ræna útfærslu. lilSii W! RLOSIOrxlS M f 7. Kolbeinn Bjamason — Implosions Enn ein skemmtileg síter- ingin í eldri plötuumslög. Maður fær reyndar frekar til- finningu fyrir reykmettaðri blús-djass-búllu a la Charlie Parker en Skálholtskirkju en samt. Töffaralegt, auk þess sem skemmtilegar barrokklín- ur koma vel út. 4. KK — Gleðifólkið Skemmtilegur hallærisgang- ur, skemmtileg mynd af aug- ljóslega skemmtilegu fólki. Öll hönnun skemmtilega gamal- dags. Gefur góð fyrirheit. 8. Bubbi Morthens — í skugga Morthens Sannur sjálfum sér plús það að vera trúr minningu Hauks frænda. Umsiagið styður vel við þá hugsun. Svo er Bubbi bara svo djöfulli flottur svona ber að ofan með hattinn. Smekkleg týpógrafía. 9. Rúnar Júlíusson — G-hliðin Þessi fær kannski ekki mjög háa einkunn sérfræðinga, en þar sem Halla Reynis tekst ekki að fara hringinn — þar klikkar Rúni Júll svo sannar- lega ekki. Rúni er fremstur ís- lendinga í að búa til vöru- merki úr sjálfum sér og þótt víðar væri leitað. Það er helst Keith sem tekur honum fram í þeim efnum. Hvað annað kem- ur til greina á umslagið en Rúni í rokkstellingunni? 10. Zebra — Zebra Einhvern veginn fær maður það á tilfinninguna að þetta prójekt þeirra Guðmundar Jónssonar og Jens Hanssonar verði ekki í toppslagnum um þessi jól. En þetta eymingja- lega Zebrakvikindi verður ör- ugglega ekki til að draga úr samúð með verkefninu. Fær gamlar frænkur til að tárast og gauka þessu undir jólatréð til handa yngri meðlimum fjöl- skyldunnar. Skemmtilega lítil fókusvídd í ljósmyndinni. 2. Papar — í góðum sköpum „Hver vill ekki eiga plötu með skemmtilegustu tónlistar- mönnum í heirni?" er spurt í Plötutíðindum. HP spyr á móti: Hver vill eiga plötu sem er svona æpandi ljót? Jameson- auglýsingin er að vísu ágæt en nær á engan hátt að vega upp á móti ljótleikanum. 3. Fjallkonan — Partý Þetta er eitt af fáum umslög- um þetta árið sem vinna út frá einhverri hugmynd. Það er í sjálfu sér jákvætt. Gallinn er bara sá að hugmyndin gengur ekki upp. Það er voðalega lítið partý eða gleði í þessu. Stilli- myndin er ekki krassandi sjón- varpsefni. Þetta er svona hálf- gert „turn off“. 4. Sniglabandið — 1985- 1995 Nákvæmlega ekkert að ger- ast. Þeir hönnuðir sem rætt var við voru sammála um að þetta hefði líkast til verið unnið í tímahraki, rubbað upp á kort- eri með því að finna einhvern photoshop-grunn og láta vaða. Gefur ekki til kynna hvað þarna eru lífsglaðir og góðir drengir að gefa út afmælisdisk. 5. Tryggvi Húbner — Betri ferð Hvað er þessi ámátlegi máv- ur að gera á plötuumslagi? Ef það er einhver ídea að baki þessu þá er hyldjúpt á henni. Kannski þýðir Húbner mávur á einhverri mállýsku sem ekki er lengur til? Hallærisleg fríhand- tölvutrix notuð í stafagerðinni sem gerir minna en ekkert til að hjálpa þessum einmanalega mávi að taka flugið. 6. Geirmundur Valtýsson — Lífsdansinn Það verður seint sagt um hann Geirmund okkar að hann sé snoppufríður náungi. Sú tækni að láta ljósmynd af and- liti tónlistarmannsins þekja allt umslagið gagnast helst slíkum tónlistarmönnum (eins og Páli Óskari?) en dugar þó sjaldnast til að halda uppi heilu umslagi. Þessi smekkur fyrirfinnst hvergi nema hér á landi, nema ef vera kynni einhvers staðar í Norður- Noregi og Færeyjum. 7. Halli Reynis — Hring eft- ir hring Hugmyndin að baki hönnun- inni er hugsanlega sú að fara hringinn: Að gera svo ljótt um- slag að það verði flott, og ríma þannig við titilinn, sem er góðra gjalda vert. En það nær ekki hringinn. Það er bara ljótt. Halli Reynis er ósköp einmana- legur á umslaginu, sem er í ágætu samræmi við eðli trúba- dorsins, en það má ekki virka þannig að einmanakennd grípi hlustandann. (Af hverju bera allir trúbadorar nöfn á borð við Halli Reynis, Siggi Björns, Bjarni Tryggva, Orri Harðar og Bubbi Morthens í staðinn fyrir til dæmis Bubbi Morthens- son?) 8. Ásgeir Óskarsson — Ver- öld stór og smá Þetta útlit ætti frekar heima í útgáfumynstri Guðrúnar Berg- mann. Gefur fremur tilfinningu fyrir einhverju nýjaldarvafstri en popptónlist. 9. Ævintýraóperan Sónata Verulega ósmekkleg kápa, einkum með hliðsjón af efninu: „Barnaóperan Sónata er fyrir fólk á öllum aldri." Kannski ekki slæm hönnun í eðli sínu en... maður verður bara skít- hræddur. Myndin af þessari brúðu hennar Messíönu færi betur í einhverri Alien-mynd- inni en að gefa fyrirheit um æv- intýr. 10. Serðir Monster — Tekið stórt upp í sig Hreint út sagt ógeðslega ósmekklegt. Það þarf enginn að fara í grafgötur með að Sverrir ætlar sér að sjokkera (og vel á minnst — er þetta kúk og piss-tal ekki orðið ágætt Sverrir?) en það er hægt að sjokkera vel og sjokkera illa. Á því er munur.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.