Helgarpósturinn - 30.11.1995, Síða 30

Helgarpósturinn - 30.11.1995, Síða 30
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995 Frumlegt bragð Gusgus Hljómsveitin Gusgus Útgefandi: Kjól og Anderson Dreifing: Skífan ★ ★★ Gusgus eru: Daníel Ágúst Haraldsson, Emilíana Torrini, Magnús Jónsson, Haf- dís Huld og T-World, þ.e. Birg- ir Þórarinsson og Magnús Plötur Fríðhjönisson Guðmundsson. Gestur í einu lagi er Jón Ólafsson hljóm- borðsleikari. Lög og textar: Daníel Ágúst, Magnús Jóns- son, T-World, Emilíana, Sig- urður Kjartansson og Páll Garðarsson. Hijóðblöndun: Páll Borg. Upptökustjórn: Daníel og T-World. Hönnun umslags: Kjól og Anderson. Gus-flokkurinn, samsettur úr ólíklegustu hlutum, geysist fram á sjónarsviðið með sitt fyrsta verk að vopni og virkar vel. Tónlistarmenn úr nokk ólíkum áttum virðast hafa skellt efni frá sér í naglasúpu sem rafiðja T-World-drengj- anna sýður saman. Útkoman er í flesta staði frumleg og gríp- andi. Lögin eru að sjálfsögðu misjöfn að innihaldi en út- færslan fjölbreytileg og skapar oftast þá spennu sem þarf, ef lagið gerir það ekki sjálft. Anægjulegt er að heyra að kraftur tónlistarinnar er kall- aður fram með stilltum og ein- földum útsetningum til mót- vægis við bítmúsík og óróleg rafmagnsurr. Vesœli Catúllus Helgi Ingólfsson Letraö í vindinn — Þúsund kossar Mál og menning 1995 ★ ★ Hver var Lesbía?“ spurði pró- fessor Wilfried Stroh í Mú- nchen í frægum fyrirlestrum um samhengið í latneskum bók- menntum. Raunar sagði hann orðrétt: „Quis Lesbia erat?“ Bækur u l P" Jl Þórhallur “A vl Eyþórsson Hvers vegna er akkur í að vita hver Lesbía var? Það er vegna þess að kona sem er ávörpuð með þessu nafni er í aðalhlut- verki í ástarljóðum rómverska skáldsins Catúllusar. Þessi ljóð, persónuleg og þrungin til- finningu, eru dýrustu perlur lat- neskra bókmennta. Konan sem veitti Catúllusi skáldlegan innblástur hét að öllum líkindum Clódía, var upp á sitt besta á miðri fyrstu öld fyrir Krist og um skeið gift Met- ellusi Celer, umsvifamikium áhrifamanni í Róm. Hún var ekki beinlínis neitt lesbísk, eins og við skiljum það orð nú á dögum. Þvert á móti. Þar sem Clódía var yfirstétt- ardrós og þar að auki gift — áð- ur en hún drap eiginmann sinn á eitri — átti Catúllus óhægt um vik að nefna þessa mennta- gyðju sína og frillu réttu nafni. Þess vegna ávarpaði hann hana Lesbíu í ljóðum sínum. Eins og form kveðskaparins var dul- nefnið sótt í smiðju skáldkon- unnar Saffó frá Lesbos. Lífið í Róm til forna hefur þótt gráupplagt efni í skáldsög- ur allt frá því að Petróníus rit- aði „fyrsta skáldsöguna“, sem svo er kölluð, Satýrícon. Að auki má nefna verk vorra tíma eins og Quo vadis eftir Henryk Si- enklewicz og Ég, Claudíus eftir Robert Graves. Vegna landlægs sinnuleysis um klassískar menntir hafa ís- lenskir rithöfundar hingað til lítt sótt efnivið sinn til Rómar. Helgi Ingólfsson hefur nú tek- ist á hendur að fylla upp í þetta tóm — og það svo um munar. Sagan Þúsund kossar, sem hann sendir frá sér þessi dægrin, er sjálfstætt framhald bókarinnar Letrað í vindinn — Samsœrið sem hlaut bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar í fyrra. Titillinn er sóttur í eitt fræg- asta ástarljóð söguhetjunnar Catúllusar, þar sem kossaflensi hans og Lesbíu er lýst á áþreif- anlegan hátt. Helgi lætur ekki sitt eftir liggja þegar hann segir frá ástaratlotum Catúllusar og Lesbíu (alías Clódíu; höfundur ritar raunar Klódía, en það er ekki fullt samræmi í rithætti nafna í bókinni). Niðurstaðan er þó aðeins eins konar listi yfir kossategundir: „Þurrir kossar, blautir kossar, mjúkir kossar, harðir kossar, blíðir kossar, ákafir kossar, hamingjusamir kossar, sársaukafullir kossar, glaðir kossar, tregir kossar, himneskir kossar, jarðneskir kossar, kossar á varir, kossar á kinnar, kossar á augnlok, koss- ar á eyru, kossar á axlir, kossar á brjóst, kossar á nára, kossar á læri, kossar á tær.“ (138) Óþarfi er að taka fram að fyr- ir utan Catúllus á Clódía sér heila herskara af friðlum af öll- um stærðum og gerðum (um af- drif eiginmannsins hefur þegar verið getið). Sifjaspell eru þó toppurinn á tilveru þessarar rómversku púellu, sem girnist mest allra bróður sinn, Clódíus pulcher, hinn fríða. „Staðgóð þekking á sögulegum bakgrunni kemur ekki í veg fyrir að frásögnin verði á köflum í anáa gamaláags œvin- týrabókar fyrir árengi“ Clódía Metelli, ástir hennar og örlög, tvinnast saman við sögu Rómaveldis á viðsjárverð- um tímum, skömmu áður en Júlíus Caesar er myrtur. „And- rúmsloftið er lævi blandið,“ eins og það heitir, „og gjörðir flestra í opinberu lífi stjórnast af valdafíkn og fégræðgi.“ Cíc- eró, Pompejus, Crassus, Cató, divide et impera „deildu og drottnaðu“, panes et circenses „brauð og leikir", odi et amo „ég hata og ég elska“. Et cetera. Þessi stórbrotni efniviður sem höfundi er fenginn í hend- ur kynni að virðast Iofa góðu. En þrátt fyrir alla frásagnar- gleðina nær sönggyðja Catúll- usar aldrei að kvikna til lífsins á síðum þessarar bókar. Númer eitt — persónusköpunin er frumstæð: „í Klódíu Metelli komu saman allir verstu lestir kvenna. Slægð, hviklyndi, hjá- sögli, vergirni, meinfýsi, fé- græðgi, málgleði, hnýsni... Klódía var svo gegnsýrð hinu illa að hún átti sér eingöngu eitt til ágætis: Fegurð sína.“ (74) Clódía er dæmd til að hjakka í sama farinu: „Þú ert ill kona, Klódía," eru síðustu orð Catúll- usar við konuna sem maður á að trúa að hafi fyllt hann skáld- legum eldmóði. „Þú nýtur þess að kvelja aðra. Ég skil ekki hvernig ég get búið undir sama Það vill alltof oft brenna við, þegar menn úr dansgeir- anum fást við tón- smíðar annarra, að tónlistin víkur fyrir ófrumlegu, ómúsík- ölsku taktáleggi sem engin lyflaus maður situr lengi undir. Góðu heilli hefur tekist að forð- ast slík leiðindi hér. Þrátt fyrir að nær eingöngu sé notast við tölvutól fá lögin oftast að njóta sín til fulls. Misbrest á þessu má þó finna og kemur fyrir að ambient-lengjurnar teygist ögn úr hófi fram, svo lagið og langlokan fjarlægjast hvort annað. Síst tekst Gusunni upp í lögum þeirra T-World-manna „Mess- age from hell“ og „Purple“, himni og þú.“ (446) Staðgóð þekking á söguleg- um bakgrunni kemur ekki í veg fyrir að frásögnin verði á köfl- um í anda gamaldags ævintýra- bókar fyrir drengi. Stundum á maður jafnvel von á því að Chariton Heston stígi fram á sjónarsviðið í fullum herklæð- um. Annað veifið hyggst höf- undur þó hrista af sér slenið og sýna að talsvert vatn hafi runn- ið til sjávar frá því að sá frómi höfundur Lewis Wallace skap- aði Ben Húr. Útkoman er því miður sjaldnast í samræmi við markmiðið. í heljarinnar svallveislu stíg- ur einn ástmanna Clódíu, „stæltur og vel vaxinn niður“, trylltan „cordax“ og sveiflast í hringi á „tábergi“ annars fótar. „Eftir glæsta takta lauk hann rassaköstunum með því að renna kvið sínum upp að Am- fitrítu við ákafan fögnuð áhorf- enda. Stúlkan dillaði venusar- bergi sínu á móti með þokka- fullum mjaðmahnykkjum svo boðaföll Jónahafs virtust fara um kroppinn.“ (300) Dálítið kynlegt að tengja þarna saman „táberg“ og „venusarberg", eða hvað? Frásagnargleðin umtalaða leiðir höfund iðulega í hreinar og klárar ógöngur, eins og þeg- ar söguhetjur skjótast sem snöggvast inn á almennings- mígildi í Róm: „Á setu við frárennsli náð- hússins rembdist maður í hnipri, þrútinn í andliti, og gaut augum öðru hvoru á kverkflúr- ið í loftinu, líkt og hann væri að ákalla guðina. Við útskot, þar sem líkneski Cióacínu stóð, log- aði reykelsi, sumpart gyðjunni til dýrðar, ekki síður en til lykt- eyðingar. Skammt þar frá reifst þrællinn með skeinisvampana við ungan mann sem hafði ný- losað iðrin.“ (74) Að endingu verður því miður ekki komist hjá því að nefna al- varlegasta galla þessa verks: þýðingar höfundar á ljóðum Catúllusar, sem eru rauði þráð- urinn í bókinni. Vesœli Catúllus, hœttu að hrella þig, horfstu í augu við óljúfarstað reyndir... Áður vargleði íöllu sem gerðist, er blíðu þú þráðir og mœrin ei mótfallin. (302) Þýðingarnar eru raunar allná- kvæmar en fyrir bragðið svo flatneskjulegar að þær verða ekki annað en dauft endurskin skáldskaparins eins og hann birtist á frumtungunni. Höfund- ur hefði annaðhvort átt að fá slyngan ljóðaþýðanda til sam- starfs við sig eða láta það ógert að birta þýðingarnar. Það er ekki heiglum hent að glíma við list kjarnyrtasta skálds Rómar. sem líða mjög fyrir samanburð við annað efni plötunnar. Meistaralega tekst til með sum lög og má nefna „Believe“ sem dæmi um gott popp í grúví búningi sem þrælvirkar. Lögin ',,Gun“, „Why“ og „Polyester day“ eru ekki síðri og nokkuð ljóst að með svo mörgum sterkum lögum hefur platan sterka stöðu. Flutningur söngv- ara fellur og vel inn í myndina. Gaman hefði verið að sjá textana í annars fal- legu umslagi Kjól og Anderson, þar sem þeir eru á köflum ekki auðheyrðir. Páll Borg skilar ásamt Gusunum hljóðblönduninni nokkuð vel og á greinilega vel við hann að vinna með stafræna hljóðupp- sprettu, en söng- sándinu er stund- um ábótavant, hverju sem um er að kenna. Að lokum skai getið óvenju- legs svefnpoka sem geymir plötuna í frístundum og er það frumlegt bragð í takt við inni- haldið. um hina dularfullu Freyju sem kemur heim frá Ameríku með fullar töskur af glæsifatnaði, fögur og ósnertanleg og setur hið litla þorpssamfélag á ann- an endann. Hún er fegurri en orð fá lýst og dularfull í meira lagi, kannski álfkona eða tröll, og virðist ekki hafa nokkra mannlega tilfinningu í kroppn- um. Frá henni stafar ólýsanleg- um kulda og Agga skelfist hana og heillast af henni í senn. Inn í söguna fléttast svo ýmsir dularfullir atburðir, morð, framhjáhald, lausaleiks- börn, verkföll og barátta karla fyrir bættum kjörum alþýð- unnar, en konurnar láta sér fátt um þá baráttu finnast og skara óragar eld að eigin köku hvað sem allri stéttarvitund líður. Karlmenn virðast í þeirra augum einungis tæki til að fjármagna olíukyndingu og súkkulaðivindla og þær hika ekki við að ryðja þeim úr vegi þegar þeir gerast of uppá- þrengjandi og þar fer Freyja fremst í flokki. Veikasti hlekkur bókarinnar eru þessi köldu samskipti kynj- anna og næsta ótrúlegt að hjón sem ekki hafa sést mánuðum saman heilsist varla en byrji umsvifalaust að karpa um ol- íufýringu og kratablöð. Kannski má afsaka þessi sam- skipti með því að við sjáum hlutina eingöngu út frá sjónar- hóli Öggu, en ég held að bókin hefði orðið mun sterkari ef meiri alúð hefði verið lögð við persónusköpun karlmann- anna. Þeir eru óttalegar skuggamyndir. En konurnar eru hver annarri skemmtilegri persónur, allt frá hinni þroska- heftu Ninnu til hinnar pípu- reykjandi Kiddu í kjallaranum. Mér finnst þó fráleitt að kalla þetta kvennasögu, þetta er hæfilega raunsæ lýsing á lífinu í litlu sjávarþorpi þar sem karl- menn eru meira og minna fjar- verandi úti á sjó og lögmál kvennanna ráða. Sú lýsing er ein sú besta sem ég hef lesið í íslenskri skáldsögu og hrein unun að sjá hér öll þessi litlu smáatriði sem gera lífið í slík- um þorpum svo ólíkt öllu öðru. Og lesandinn hrífst með af frásagnargleðinni og skellir hvað eftir annað upp úr við Iesturinn. Stíllinn er léttur og leikandi og engir útúrdúrar í honum. Hér er verið að segja sögu og ekkert tóm fyrir Ijóð- rænar krúsidúllur og sálar- Iífspælingar. Og ekki nokkur vafi á því að íslensk skáld- sagnaritun hefur hér eignast nýjan höfund sem eftir verður tekið, liggur við að maður sé strax farinn að hlakka til næstu bókar Kristínar Marju. Hvort hún verður í framtíðinni flokk- uð sem hin íslenska Isabel Al- lende veit ég ekki, en eftir þessari sögu að dæma á hún þann titil fyllilega skilinn. Kampakœti kaldlyndra kvenna Mávahlátur Kristín Marja Batdursdóttir Mál og menning 1995 ★★★ Ertu búin að lesa nýju bókina eftir Kristínu Isabel Kára- son?“ spurði_ einn vinur minn um daginn. Ég tók þessu sem hverjum öðrum brandara og Bækur Friðrika Benónýs hugsaði ekki meira um það. En viti menn, eftir að hafa lesið bók Kristínar Maiju Baldurs- dóttur, Mávahlátur, varð ekki hjá því komist að viðurkenna að hann hafði hitt naglann á höfuðið. Mávahlátur iðar af lífsgleði og frásagnargleði og minnir óneitanlega bæði á bækur Isabel Allende og Ein- ars Kárasonar, án þess þó að höfundur sé að stæla þau á nokkurn hátt. Hér er lýst sam- félagi fólks í íslensku sjávar- þorpi á hressilegan hátt sem minnir á lýsingar Einars á íbú- um í Thulekampinum fræga en um leið svífur yfir vötnum andi dulúðar og óskilgreinanlegra atburða eins og hjá Allende. Sögumaður er unglingsstúlk- an Agga og eru allir atburðir séðir með hennar augum. Per- sóna hennar er mikið meist- araverk frá höfundarins hendi, hún er í senn yndisleg og óþol- andi, stendur sífellt á hleri og gremst ógurlega að vera ekki fullgild í samfélagi hinna full- orðnu. Hún býr í húsi afa síns og ömmu, ásamt fimm konum öðrum, og þótt afinn reki þar inn nefið annað slagið þegar hann kemur af sjónum er hann aldrei þátttakandi í þeim heimi sem konurnar hafa skapað sér. Heimilislífið hverfist að mestu

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.