Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1945, Blaðsíða 38
688
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
.l lrVniin^* maiina í flaltiskii Iniiduiiuin
og látnar voru vinna undir umsjá
G. P. U., að skógarhöggi, í sögun-
armyllum, við vegagerð o. s.frv. og
3. Fjölskyldur, er settar voru nið-
ur í Mið-Asiu (aðallega í Kasakst-
an og Kirgísa- og Yakuts- lýðveld-
unum)j og látnar voru vinna hjá
bændunum þar, og voru frjálsar
að kalla, en var þó algjörlega bann
að að flytja vistferlum.
1 pólsk-rússneska sáttmálanum,
er undirritaður var í London 30.
júlí 1941 var tekið fram, að pólskir
útlagar úr öllum flokkum yrðu
látnir lausir. Pólsku stjórninni
tókst, með aðstoð Rauða Krossins
og ensk-amerísku hjálparstarfsem-
innar, að finna um 500 þúsund
fanga, eða um helming útlaganna.
Mikill hluti þeirra, þar með talinn
pólski herinn, sem stofnaður hafði
verið í Rússlandi, var fluttur heim
um Teheran. Þeir, sem urðu eftir í
Rússlandi, voru, eftir að Rússar
slitu stjórnmálasambandi við Pól-
verja 1943, skoðaðir sem rússnesk-
ir borgarar og var farið með þá
samkvæmt því. Áætlað er að um
20% af útlögunum hafi látizt í
fangabúðunum norður við íshaf
eða á leið þangað.
Fjölda-útlagaflutningurinn frá
Eystrasaltslöndunum fór fram
með svipuðum hætti. Reglugerð
gefin út af Gusevitius innanríkis-
málaþjóðfulltrúa Lithauga-ráð-
stjórnarríkisins (Nr. 0054, 28.
nóvember 1940)] skipar þeim Lit-
hauga-borgurum, sem flytja í út-
legð, í fjórtán flokka. 1 1. flokki
eru „allir meðlimir rússneskra
stjórnmálaflokka, er voru starf-
andi áður en byltingin hófst:
Þj óðbyltingarmenn, mensevikkar,
trotskysinnar og stjórnleysingjar“.
1 2.—6. flokki eru starfandi með-
limir í öðrum stjórnmálaflokkum
í Lithaugalandi (Valdemarasinn-
ar, kristilegir jafnaðarmenn,
menn úr þjóðernissamtökum stú-
denta, Shaulistar)] og ennfremur
lögregluforingjar, vopnaðir lög-
regluliðar og fangaverðir þeir,
sem verið höfðu liðsforingjar í
keisarahernum, rússneska hvíta-
hernum og í pólska- og lithauga-
hernum. 1 7. flokki eru „þeir, sem
reknir hafa verið úr kommúnista-
flokknum.“ I 8. flokki: „Pólitískir
flóttamenn, sem horfið hafa heim
aftur, og smyglarar". í 9. flokki:
Borgarar erlendra ríkja og full-
trúar erlendra verzlunarfyrir-
tækja. 1 10. flokki: Menn sem ferð-
ast hafa erlendis eða eru á ein-
hvern hátt riðnir við erlenda utan-
ríkismálastarfsemi, menn sem eru
í félögum esperanto-manna eða
frímerkjasafnara." í 11. flokki:
Starfsmenn í fyrri ráðuneytum
Lithaugalands. I 12. flokki:
„Starfsmenn pólska Rauða-kross-
ins og flóttamenn frá Póllandi."
13. og 14. flokkur: Prestar, aðals-
menn, landeigendur, bankastjórar,
iðjuhöldar, auðugir kaupsýslu-
menn og gildaskála- og gistihúsa-
eigendur.
Flokkun þessi sýnir, að uppræta
á úr þjóðfélaginu:
1. Alla þá, sem hafa stjórnmála-
skoðanir eða taka virkan þátt í
stjórnmálum, fyrst og fremst
alla, sem eru í vinstriflokkunum,
aðra en kommúnista.
2. Allar æðstu stéttir og embætt-
ismenn undir fyrri stjórnar-
háttum.
3. Öll alþjóðaöfl.
I Austur-Póllandi náði þessi
útrýmingarstarfsemi einnig til
menntamanna (kennara, lögfræð-
inga, blaðamanna o. s. frv.)', hver
sem stjórnmálaskoðun þeirra var.
Athyglisvert er, og einkennandi, að
meðal manna í fjórðu brottflut-
ningslotunni (júní 1941)], var all-
mikill fjöldi úr sjálfum kommú-
nistaflokknum, einkum þeir, sem
meðan á byltingunni stóð, höfðu
unnið að því að setja á laggirnar
ýmsar staðbundnar framkvæmda-
nefndir, er fóru með völd meðan
allt var á ringulreið, áður en em-
bættismenn ráðstjórnarríkisins
tóku við, — og ennfremur þeir,
sem höfðu verið í verkamarma-
hernum.
Venjulega náði útlegðin til allr-
ar fjölskyldu þeirra, sem hlut áttu
að máli. Ungbörnum var komið
fyrir á barnaheimilum. Þessi
fjöldabrottflutningur fór fram án
grimdar af yfirlögðu ráði, en við
svo hörmulegar aðstæður, — allt
að þriggja vikna ferðalög í lokuð-
um vögnum, sem annars voru not-
aðir til stórgripaflutninga, —
enda dó mikill hluti útlaganna á
leiðinni.
Utlagarnir voru sóttir að nætur-
lagi og fluttir á brott frá heimilum
sínum af N.K.V.D. (stjórnardeild
innanríkismálaráðuneytisins, sem
tekið hefir við starfi O.G.P.U.
leynilögreglunnar. f daglegu roáli
er N.K.V.D. og G.P.U. eitt og hið
sama)'. og fengu aðeins eina
klukkustund til þess að búa sig og
taka saman föggur sínar.
Farangur sá, er hverri fjöl-
skyldu var leyft að hafa með sjer,
mátti ekki vera þyngri en 200
pund. Járnbrautarlestirnar héldu
af stað fyrir dögun. Allir gluggar
þeirra voru lokaðir og dyrum öll-
um vandlega læst, en þó voru á
þeim op til þess að fleyja út um
þau saur og rétta matinn inn um
þau. Ekki voru gluggar né dyr
opnáðar fyr en komið var á
áfangastaðinn — í heimskauts-
hjeruðunum eða í Mið-Asíu.
Aðgerðir þessar miðuðu að því,
að losa þessi iandsvæði, sem sam-
einast höfðu Ráðstjórnarríkjunum,
við þá menn, sem á máli komm-