Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1955, Síða 25
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
71?
EYAN HELGA ICOLMKILL
SVO KÖLLUÐU forfeður vorir eina
af Suðureyum. Áður höfðu írar
kallað hana Innis nan Druidhneak, eða
Drúíða-eyna, og má af því marka að
hún hafi verið helg áður en kristm
kom á þessar slóðir. Nú kallast hún
lona eða Icolmkill, en seinna nafnið
nafnið þýðir „eva guðsmannsins Col-
umba“. Columba er getið í fornritum
vorum, og er hann þá stundum nefnd-
ur Kolumkilli. Eftir siðaskiftin varð
það nafn á inum illa, alveg eins og
goðanöfnin urðu nöfn á illum öndum
eftir kristnitöku.
Heilagur Columba var fæddur í ír-
landi 7. des. 521. Hann var konung-
borinn í báðar ættir og fekk ágæta
menntun. Hann tók prestvígslu árið
551 og vegna ætternis síns var hann
sá áhrifamaður, að fyrir hans orð voru
margar kirkjur reistar í írlandi. En
árið 563 fór hann ásamt 12 lærisvein-
utn sínum til eyarinnar Iona og settist
þar að. Lét hann reisa þar klaustur
og kirkju. Hann hafði einsett sér að
kristna Pikta og tókst þetta svo vel,
að hann kom kristni á um allt Skot-
land og norðurhluta Englands. Lét
hann reisa þar mörg klaustur, en höf-
uðklaustrið var þó eftir sem áður i
lona og prioramir þar voru æðstu
menn kristninnar.
Conran III. var konungur á Argyll
á Skotlandi þegar Columba kom til
Iona. Eftir ósk Columba lét konungur
flytja inn kunna „Jakobsstein", eða
krýningarsteininn til kirkjunnar á
Iona. Þar var hann um nær 300 ára
skeið og voru allir Skotakonungar
krýndir á honum um þann tíma. En
Kenneth Mac Alpin, seinasti konungur
í Argyll, lét flytja steininn til Scone
í Perth, sem þá var gerð að höfuðborg.
Þar var steinninn enn um 400 ára
skeið. En 1296 gerði Játvarður I. Engla-
konungur innrás í Skotland, tók þar
mikið herfang, og þar á meðal stein-
inn, flutti hann með sér til Englands
og lét setja hann í Westminster Abbey.
Þar er hann enn í krýningarstól Breta-
konungs.
Heilagur Columba andaðist 8. júní
597. Þegar hann lá banaleguna og fann
að hverju fór, lét hann bera sig út £
kirkju og leggja sig þar þannig að
höfuð hans hvíldi á steininum. Gerði
hann síðan bæn sína og andaðist
kristilega. Var hann tekinn í heilagra
manna tölu og bein hans flutt til ír-
lands seint á 9. öld.
Klaustrið í lona varð á hans dögum
miðstöð alls kristniboðs á Vesturlönd-
um. Þaðan fóru trúboðar um alla álf-
una. En klaustrið var einnig in fræg-
asta menningarstofnun á sinni tíð.
Munkamir skrifuðu mikið og á 8. öld
var bókasafnið þar ið merkasta í
heimi. Mörg handrit þaðan eru nú
geymd í skjalasöfnum sem inir mestu
dýrgripir. „Um 200 ára skeið var Iona
inn bjarti viti vestrænna þjóða, og
þaðan fóru trúboðar í allar áttir".
(Elder: Celt, Druid and Culdee).
Klaustrið varð og frægt um alla álf-
una, og þangað sóttu námsmenn frá
mörgum löndum. Og þar sem eyan
var heilagur staður, streymdu þang-
að pílagrimar til þess að deya þar,
svo að þeir gæti fengið leg í inni he>"u
mold. Þangað voru og flutt til greftr-
unar lík margra höfðingja. í kirkju-
garðinum þar, sem á írsku nefnist
„Reilig Oiran“ en það þýðir konunga-
grafreitur, er talið að hvíli 48 Skota-
konungar, 4 írakonungar og 8 konung-
ar frá Danmörk og Noregi. En grafir
þeirra þekkjast ekki lengur, því að
bautasteinunum var varpað í sjóinn
við siðaskiftin. Þó eru þar enn nokkr-
ir steinar fagurlega úthöggnir.
---o----
Svo segir í Landnámu:
örlygur hét son Hrapps Bjarnarson-
ar bunu, hann var að fóstri með Pat-
reki biskupi í Suðureyum. Hann fýst-
ist að fara til íslands og bað, að biskup
sæi um með honum. Biskup lét hann
hafa með sér kirkjuvið og járnklukku,
og plenaríum og mold vígða, er hann
skyldi leggja undir hornstafi og hafa
það fyrir vígslu. Þeir Örlygur létu
í haf og fengu útivist harða og vissu
eigi hvar þeir fóru. Þá hét Örlypur
á Patrek biskup til landtöku sér, að
hann skyldi af hans nafni gefa ör-
nefni þar sem hann tæki land. Þeír
voru þaðan frá litla hríð úti, áður
þeir sá land og voru komnir vestur
um landið. Þeir tóku þar sem heitir
Örlygshöfn, en fjörðinn inn frá köll-
uðu þeir Patreksfjörð..... Örlygur
nam land á Kjalamesi frá Mógilsá