Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1967, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1967, Qupperneq 3
Matfhías Johannessen RAUÐ JÓL .,Sverð mun jajnvel nísta þína eigin sálu, til þess að hugsanir margra hjartna veröi opinberar“. Úr jólaguðspjöllunum, Lúkas 2, 35. Á landakortinu íagurlega boginn austurlenzkur rýtingur. Þeim var trúað fyrir laufgrænrii jörð heitrar sólar og saklauss fólks undir stráhöttum. Víetnam blóðugt sverð í brjósti okkar. Ó, Evtúsjenkó, við sem gætum skilið hvor annan tölumst aldrei við, meðan þeir kasta sverðum og blóð drýpur í stríðsplægðan hrísgrjónaakur. Hverjum blæðir út ? Samvizku okkar, samvizku okkar . . . Evtúsjenkó. einö og hann hélt friði í hmu viðlenda ríki sínu með hervaldi — hikaði hann ekki við að beita valdi til þess að koma í framkvæmd hugmyndum sínum um siðgæði og halda listamönnum í skefj- um. Þelr, sem i þá daga héldu uppi gagn- rýni á rómverska keisaravaidið, létu þó iítt á sig fá hörkulegar aðferðir eða grimmd. Þeir voru afsprengi grimmi- iegs tíðaran.da — grimmd og harka blöstu við, hvar sem litið var í heimin- um. Sem dæmi um tíðarandann má nefna, að í lista þeim, sem birtur var, að Ágústusi látnum, yfir það, sem hann lét gera í góðgerðarskyni eða fyrir ai- menning, er þess getið, að nann hafi lát- ið halda átta óhemju mikiar skemmti- sýningar, þar sem tíu þúsund Skylm- ingaþrælar bárust á banaspjót. Þetta voru vinsælustu skemmtanir þessa tima — menn og konur þyrptust í tug þúsundatali til þess að horfa á menn murka lífið hver úr öðrum eða viHidýr rífa þá á hol. Því fór fjarri, að menn kipptu sér upp við það, þótt keisar- inn beitti stundum hörkulegum aðferð- um gegn þeim, sem ekki vildu hlýða boðuim hans og bönnum. Á hinn bóg- inn sætti gagnrýni hið algera vald keis- arans og dýrkunin og smjaðrið, sem því var samfara. í nýlendunum, einku.m austan til, tóku þegnar hins rómverska keisara að iíta á hann sem velgjörðarmann sinn og frelsara og dýrkuðu hann sem guð, með sama hæiti og þeir höfðu tekið í guða- tölu Ptolemeana og aðra fyrri vald- hafa. Rómverjar sjálfix biðu með að taka Ágústus í guðatölu, þar til hann var fallinn frá, árið 14 eftir Krist. Með- ar, hann var ennþá iifs, gátu þeir ein- ungiis dýrkað snilld hans og ódauð- iega andagift. En í Austurlöndum, þar sem siðir og erfðavenjur voru með öðr- um hætti voru reist hof til dýrðar Ágústusi keisara. Þessa dýrkun á valdhafanum skyldu menn hvor'ki vanmeta né ofmeta. Hér var um að ræða dýrkun : strangasta skilningi þess orðs, en var þó engin sönnun þess, að valdhafinn nyti óskor- aðrar hylli fólksins vegna persónuleika sins. Það var einungis eitt af lögmálum lífsins að tiibiðja valdhafana, hvort sem var keisarinn eða náttúru öflin og aðr- ir guðir, svo sem örlaga-, hamingju-, vizku- eða fésældarguðir. Að láta und- ir höfuð leggjast að dýrka pessa guði og færa þeim fórnir, var talið heimskulegt — það færði mönnum óhamingju og leiddi yfir þá refsingu. Hinsvegar tryggði staðföst dýrkun og fórnir þeiim engin laun, a.m.k. ekki þessa heims. Langmestur meiri hluti manna var næsta vonlaus um að sja nokkru sinni fram á annað en aumustu fátækt — svo ekki sé talað um líf þrælanna —- og sú stjórn, sem þegnar Rómaveldis lutu, var nánast harðstjórn. Má því nærri geta, að það var fyrst og fremst ótti, sem knúði menn til dýrk- unarinnar. En keisaradýrkunin var áhrifamikið afl í heimsveldinu og Ágústus, keisari, ráðgjafar hans, embættismenn og eft- irkomendur gerðu sér fyllilega ljóst, hvers virði það var. Þeir, sem gerðust ötuiastir við að útbreiða og efla keis- aradýrkunina, voru smákonungarnir og harðstjórarnir í nýlendunum, sem hímdu . valdastólum fyrir náð Róm- verja og voru háðir vopnum frá þeim. Þeirra á rneðal var Herodes konungur í Judeu. En i Júdeu urðu viðbrögðin önr.ur en víðast annars staðar og höfðu ma: gvíslegar afleiðingar. -I. löndum, þar sem fyrir voru fjöin'argir guðir, munaði ekkert um að bæca keisaranum á guðastallinn. Þar höíðu menn verið að bæta við guðum, breyta til og sameina og skipta um trúarsiði í mörg þúsund ár. Þeir and- atis menn, sem forystu höfðu litu jafn- vel á þessa margvíslegu guði sem hin- ar ýmsu hliðar á einum allsherjarguði, en hinn almenni borgari valdi sér þá guði til átrúnaðar, er hann taldi væn- legasta fyir sig og sína — því að eng- inn komst yfir að dýrka alla þá, sem völ var á. En Gyðingum var öðru vísi farið. Margir þeirra bjuggu nú utan Júdeu, flestir í Egyptalandi, aðrir á ýmsum stöðum í Litlu-Asíu, Grikklandi og jainvel í sjálfri Rómaborg. En hvar sem Gyðingar voru niður komnir, og hxerjum áhrifum, sem þeir höfðu orð- ið fyrir af öðrum þjóðum, varðveittist kjsrni trúarbragða þeirra óbreyttur. . . . „Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig. . . Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér né nokkrar myndi eftir þvi, sem er á himnum uppi, eður því, sem er á jörðu niðri, eður því, sem er í vötnunum undir jörðunni .... Þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær, því að ég er Dott- inn, Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á börnunum, já í þriðja og fjórða lið, þeirra, sem mig hata, — en auð- sýni miskunn þúsundum, þeirra, sem elska mig og varðveita boðorð mín . . . Framhald á bls. 62 24. desember 1967 * ■LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 35

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.