Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 8
ÞEGAR síminn hringdi var eins víst að Björn þyrfti að bregðast við skjótt. j~-r- LANGUR Vinnudagur Vinnudagurinn hjá Bimi var oft mjög lang- ur. Bjöm taldi það aldrei eftir sér að koma sjúklingum til aðstoðar. Hann flaug á nóttu sem degi, og ekki setti hann það fyrir sig þó um helgidag væri að ræða. Ætli ég að koma að einhverju liði, þýðir mér ekki að stelast út á sunnudögum eins og ég sé í venjulegri skrifstofuvinnu ... Ef ég fer eitthvað út í bæinn, verð ég að láta vita, hvert ég fari. Ég hef verið sóttur í leik- hús, kvikmyndahús og kirkju, og allt eftir þessu. Ég væri trúlega löngu hættur, ef mér félli ekki starfíð svo vel, að égget ómögulega slitið mig frá því. Kona Bjöms, Sveina Sveinsdóttir, tók virk- an þátt í starfí manns síns. Hún annaðist alla símavakt í fjarveru Björns, en afgreiðsla sjúkraflugsins var í mörg ár á heimili þeirra hjóna. Lengst af hafði Björn ekki aðra í þjónustu sinni en konu sína. En eftir að hann eignað- ist sína fyrstu tveggja hreyfla vél TF-VOR árið 1960 varð þó breyting á. Tveir ungir flugmenn, Guðjón Guðjónsson og Kristján Gunnlaugsson, réðust til starfa hjá Birni. Fram að þessu hafði verið erfitt að fá flug- menn í sjúkraflugið. Það þótti ekki eftirsókn- arvert að fljúga vanbúnum flugvélum, oft í myrkri og verstu veðrum. Flugmenn vildu heldur fljúga vélum hjá stærri flugfélögunum, það var þægilegra og öruggara. Auk þess var sjúkraflugið kostnaðarsamt og gaf lítið í aðra hönd. Árið 1965 urðu breytingar í starfí Bjöms Pálssonar, en þá stofnaði hann Flugþjón- ustuna hf. í samstarfí við Flugfélag íslands. Það má segja að Flugfélag Islands hafi komið í stað Slysavamafélagsins þar sem eignahlut- ur Flugfélagsins var 60%, sá sami og hlutur Slysavamafélagsins hafði áður verið. Eigna- hlutur Bjöms var 40% enn sem fyrr. Slysa- vamafélagið var þó ekki hætt öllum afskiptum af sjúkrafluginu, því félagið veitti árlega nokkum styrk til reksturs þess. Starfsemi Flugþjónustunnar var töluvert umfangsmikil. Auk sjúkraflugsins rak fyrir- tækið almenna flugþjónustu. Flugþjónustan hf. skuldbatt sig þó til að láta sjúkraflug ávallt ganga fyrir og gefa afslátt af greiðslu, þegar um slíkt flug væri að ræða. Sjúkraflugið Óarðbær Atvinnugrein Sjúkraflugið var mjög kostnaðarsamt og oft var erfitt að fá nægar tekjur til að greiða útgjöldin. Ríkið veitti sjúkrafluginu lítinn stuðning. Fyrirtæki Björns fékk á hveiju ári ríkisstyrk, sem var svo lágur að hann hrökk ekki upp í tryggingariðgjöld af einni flugvél. Viðkomandi sjúklingur var sjálfur ábyrgur fyrir borgun. Síðar fékk hann þó endurgreitt að hluta frá sjúkrasamlaginu. Osjaldan gerð- ist það að engin borgun kom fyrir flugferð, þar sem sjúklingurinn eða vandamenn höfðu ekki efni á að greiða veitta þjónustu. Slysavarnafélagið styrkti sjúkraflugið líti- lega ár hvert og veitti stundum lán til varahlu- takaupa í vélamar. Ekkert fjármagn var til að kaupa fullkomnari tæki eins og ratsjá og afísingarbúnað og í viðtali sagði Bjöm eitt sinn: Ekki er neitt gamanmál að veita sjúkraþjón- ustu með ófullkomnum tækjum, vitandi það að tæknin hefur upp á miklu betra að bjóða. Það er blátt áfram ábyrgðarhluti að fljúga við slíkar aðstæður. Hér gæti þjóðfélagið ósköp vel komið til hjálpar, því sjúkraflug hef ég stundað árum saman íþágu þjóðarinn- ar og án nokkurra eiginhagsmuna. Hér á landi var sjúkraflugið ekki að fullu viðurkennt sem þáttur hinnar almennu heil- brigðsþjónustu. Á hinum Norðurlöndunum var þessu öðruvísi farið. í Noregi studdi ríkið rekstur sjúkraflugsins með háum styrk ár- lega, auk þess sem sjúkrasamlagið borgaði strax allar sjúkraferðir tvöföldu verði. Bjöm þurfti greinilega að heyja harða bar- áttu við íslenska kerfíð í rekstri sjúkraflugs- ins, engu að síður en válynd veður á sjálfum flugleiðunum. Flugslysið Þann 26. mars árið 1973 lagði TF-VOR með fímm manna áhöfn upp í flugferð. Lagt var af stað frá Akureyri kl. 14.06 og var áætlaður komutími til Reykjavíkur kl. 15.37. Flugáhöfnin hafði samband við flugtuminn kl. 14.38 og tilkynnti staðarákvörðun. Flug- vélin var þá þvert af Löngumýri í Skagafirði í ellefu þúsund feta hæð á réttri flugleið. Tæplega stundarfjórðungi síðar kallaði flugturninn vélina upp og spurði hvort áhöfn- in hefði orðið var við ísingu á leiðinni. Svarið var neikvætt. Flugumferðarstjóri tilkynnti þá að vél frá Flugfélagi Islands hefði lent í ís- ingu í tólfþúsund feta hæð yfir Mýmm í Borgarfírði. Samræðurnar flugumferðar- stjóra og áhafnar urðu ekki lengri. Eftir þetta fréttist ekkert til vélarinnar. Klukkan 15.40 tilkynnti flugumferðarstjóri að hann hefði áhyggjur af sambandsleysi við Vorið og vora þá flugvélar í grennd við flug- leið þess aðvaraðar. Um þetta leyti voru veðramót að ganga yfír og var TF-VOR ein- mitt í veðraskilunum. Á þessum slóðum var suðvestanátt og slydduhríð. Þegar sú fregn barst að flugvélar Björns Pálssonar sem var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur væri saknað, gat fólk ekki trúað því að vélin hefði farist. Allir vonuðu í lengstu lög, að Vorið hefði nauðlent á hálendinu. Flestir trúðu því að Björn Pálsson færist ekki í flugslysi, svo marga tvísýna ferðina hafði hann farið á sínum langa flugmannsferli. En í þetta sinn var gæfan ekki með Birni og samferðamönnum hans. Flak vélarinnar fannst kl. 8.40 að morgni næsta dags í Búr- fjöllum, skammt norður af Langjökli. Allir mennirnir fimm vora látnir. Þeir sem létust auk Bjöms Pálssonar voru Knútur Óskarsson flugmaður, Haukur Claessen settur flugmála- stjóri, Ólafur Júlíusson byggingafræðingur og Hallgrímur Magnússon trésmiður, starfs- maður flugmálastjómar. Menn töldu að orsök slyssins væri sú að snögg og mikil ísing hefði valdið því að vélin missti flugið og hrapaði. Flugvél Björns var aðeins útbúin ísvarnartækjum á skrúfunni, en ekki vængjum. Jafnframt hefði flugvélin lent í niður- streymi af jöklinum, sem gerði ástandið enn verra. Alla vega vildu menn ekki trúa öðra en að fleira en eitt hefði gerst. Annars hefði flug- maður á borð við Bjöm Pálsson getað ráðið við vandann, reyndasti flugmaður íslendinga og jafnframt dýrkaður víða um sveitir fyrir sjúkraflug sitt. Hann átti að baki um 15 þúsund klukkustundir í flugi, oft við hinar erfíðustu aðstæður í 35 ár. Höfundur er sagnfræðingur. FRIEDERICH HÖLDERLIN Opnir gluggar himinsins (Línur úr ófuligerðu Ijóði) Hannes Pétursson þýddi opnir gluggar himinsins og anda næturinnar sleppt lausum, ofsafullum, þeim er land vort espað hefur með margyrðum, lausfengnum, og mulið laust og fast til líðandi stundar. Samt er það í vændum sem ég vil ... Friedrich Hölderlin (1770-1843), þýzkt skáld. Ljóðbrotið hér að ofan var ort skömmu eftir 1800. RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON frá Vaðbrekku Aðventuljóð I myrkrinu aðventuljósin loga sem lýsandi bæn um grið. Þessi veröld erfull af skammdegis- skuggum það skoiiir á gleði og frið. Það er margt sem vakir í vitund okkar sem við höfum þráð og misst. Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun að hugsa um Jesú Krist. Við ’ifum á uppgangs- og umbrota- tíð þar sem allt á að gerast strax. Og andlegir sjóðir eyðast ogglatast í erli hins rúmhelga dags. En samt er ein minning sem brenn- ur svo björt eins og brosandi morgunsól, um hann sem var sendur frá góðum Guði og gaf okkur þessi jól. Og jólin nálgast í hverju húsi og hjarta hvers trúaðs manns. Það er eins og við fáum andartaks- hvíld á afmælisdaginn hans. En eitt er það þó er í sál minni svíður sárt eins og þyrnikrans, að mennirnir halda markaðshátíð í minningu Frelsarans. Hann boðaði hamingju, frið og - frelsi og fögnuð í hverri sál. Hann kenndi um guðdóminn, kraft- inn ogljósið og kærleikans tungumál. Ogsamt eru jólin hjá sumum haldin í svartnættismyrkri og kvöl, í skugga eymdar og ofbeldisverka við örvænting, skort og böl. Við lifum í dimmum og hörðum heimi með hungur, fátækt og neyð þar sem einn er að farast úr ofáti og drykkju en annar sveltur um leið þar sem einn er þjakaður andlegu böli en annar ber líkamleg sár. Og samt hefur lausnin frá þjáning og þraut verið þekkt í tvöþúsund ár. En þrátt fyrir mannkynsins mistök og syndir og myrkvuðu tímabil og þrátt fyrir allt sem hann þurfti að líða og þjást hér og finna til hann bíður samt ennþá með opinn faðm þar sem alltaf er skjól og hlíf, og biður um meiri mátt til að gefa mönnunum eilíft líf. í myrkrinu aðventuljósin loga sem lýsandi himnesk rós. Ognþrungnir skammdegisskuggar víkja við skínandi kertaljós. Á jörðinni fölskvast hin andlegu efni og oft er hér þungbær vist. Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun að hugsa um Jesú Krist. Höfundur býr í Bandaríkjunum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.