Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 22
SIGRÍÐARSTOFA er upplýsingamið- stöð fyrir ferða- menn við Gullfoss. Þar er aðgengileg- ur fróðleikur um Hvítá, GuIIfoss og gljúfrið og þar er í stuttu máli sagt frá baráttu Sigríðar. Sigríður sagði við yfírheyrslur sýslu- manns að hún væri þeirrar skoðunar að Brattholt yrði óbyggilegt ef girðingin kæm- ist upp en þá yrði faðir hennar að flæmast burt frá Brattholti, þar sem hann hefði dvalið nær allan sinn aldur. Hún sagði einn- ig að ef ekki hefði verið hætt við fram- kvæmdir girðingarinnar hefði hún haldið áfram skemmdarverkum. Sigríður hafði talið líklegt að athæfi sitt varðaði við lög og forðaðist því að láta heimilisfólk í Bratt- holti vita. Sýslumaður gerði Sigríði ljóst að það mætti búast við að sakamál yrði höfðað gegn henni. Hann gaf henni kost á að fá sér skipaðan talsmann en hún hafn- aði því. Guðríður Þórarinsdóttir segir í ritinu Inn til fjalla að málinu hafi lokið með því að Sigríður hafí gengið með skjal á milli bænda og óskað eftir að málið yrði látið falla niður. Flestir bændanna skrifuðu und- ir það og ekki var meira hreyft við því. GULLFOSS SELDUR Um síðustu aldamót fóru ferðamenn að venja komur sínar að Gullfossi og lá leiðin í gegnum hlaðið í Brattholti en fossinn var að hálfu í landi þess. Árið 1907 falaðist Englendingur nokkur eftir fossinum til kaups eða leigu í nafni erlends félags. Tómas, faðir Sigríðar, vildi ekki leigja eða selja fossinn og því bauð Englendingurinn 50.000 krónur í alla jörðina sem var gríðar- mikið fé. Tómas bóndi neitaði að selja og er sagt að hann hafí svarað því til að hann seldi ekki vin sinn. Samkvæmt vátrygg- ingamati árið 1908 var íbúðarhúsið í Bratt- holti metið á rúmlega 1.000 krónur. Það má því nærri geta að boð Englendingsins hafí verið margfalt virði jarðarinnar. Kauptilboðið vakti mikla athygli og varð til þess að landstjórnin tók fossinn á leigu til 5 ára, frá 1. september 1907 til 1. september 1912, gegn 300 króna árgjaldi. Geigan skiptist jafnt á milli eigenda foss- ins, Tómasar í Brattholti og Halldórs Hall- dórssonar á Vatnsleysu í Biskupstungum, en hann átti þá Tungufellstorfuna. Það voru fleiri en stjómvöld sem höfðu áhuga á Gullfossi. Skömmu eftir að land- stjórnin tók fossinn á leigu falaðist Þorleif- ur Guðmundsson kaupmaður, Stóru-Háeyri á Eyrarbakka, eftir fossinum til leigu. Hinn 20. febrúar 1909 gerðu Tómas í Brattholti og Halldór á Vatnsleysu samning við Þor- leif um leigu á Gullfossi til iðnreksturs. Samningurinn, sem var til 150 ára, gilti frá 1. september 1912 og átti Þorleifur að greiða 300 króna ársleigu fyrstu fimm árin. Leigan átti að greiðast í einu lagi við gildistöku samningsins, alls 1.500 krónur, en síðan var gert ráð fyrir áfangahækkun- um. Tveimur vikum síðar, hinn 9. mars, gerðu Þorleifur, Tómas og Halldór með sér nýjan samning. Þar var ákvæði fyrri samn- ings, um að landsjóði yrði gefinn kostur á að ganga að samningnum ef leigurétturinn yrði framseldur, fellt út. Eftir því sem Tómas sagði síðar, við réttarhöld í málinu, vissi hann ekki betur en að seinni samning- urinn hafi verið samhljóða þeim fyrri. Þor- leifur hafi gefið þá ástæðu fyrir gerð seinni samningsins að hann yrði ekki þinglesinn þar sem hann hefði verið ritaður á ómerki- legt blað. Tómas treysti orðum Þorleifs og skrifaði undir samr.inginn án þess að lesa hann fyrst yfir. að greiða leigu fyrir fyrstu fimm árin sam- kvæmt samningnum. Friðrik Jónsson kaup- maður, bróðir Sturlu, fór ásamt Einari Arnórssyni prófessor í Brattholt til að greiða Tómasi helming leigunnar, 750 krónur. Tómas neitaði að taka við pening- unum og lýsti því yfír að hann tæki einung- is við þeim frá þeim manni sem hann hafði leigt fossinn í upphafi, þ.e. Þorleifi. Tveim- ur dögum síðar komu Einar og Friðrik aftur að Brattholti í sömu erindagjörðum og var þá þriðji maður með þeim, Stefán Stephensen frá Hróarsholti. Tómas var ekki heima en Sigríður neitaði að taka við leigunni fyrir hans hönd. Mælti hún á þá leið að hvorki hún né faðir hennar tækju við peningum fyrir fossinn nema frá þeim sem fyrstur hefði tekið hann á leigu. Málaferli Sturla höfðaði mál fyrir Gestarétti Ár- nessýslu til að fá úr því skorið hvort kaup hans á samningi Þorleifs hafí verið lögleg og einnig til að fá viðurkennt að tilboð hans um greiðslu á leigu fyrir fossinn frá 30. ágúst og 1. september 1912 hafí verið löglegt. Sýnt var að Tómas þyrfti á lögfræðingi að halda og tók Sigríður sér ferð á hendur til Reykjavíkur til að útvega einhvern sem vildi taka málið að sér. Hún þekkti aðeins einn lögfræðing af afspurn, Einar Bene- diktsson skáld, og þá meira af skáldskap hans en lögfræðistörfum. Er hún kom í höfuðstaðinn fór hún á Laugaveginn og litaðist um til að spyija einhvem hvar Ein- ar byggi. Áður en hún fékk ráðrúm til þess vatt sér að henni kona nokkur og spurði hvers hún leitaði. Sigríður sagði henni erindi sitt og ástæðu þess að hún sóttist eftir lögfræðingi. Kona þessi var Elísabet Sveinsdóttir, móðir Sveins Björns- sonar málafærslumanns og síðar forseta. Hún bauðst til að biðja Svein um að taka málið að sér og varð úr að hann gerði það. Hinn 25.febrúar 1916 var gefin út stefna og fýrsta réttarhald var 9. mars sama ár. Af óþekktum ástæðum mætti Tómas ekki fyrir réttinn, né heldur nokkur á hans veg- um. Næst var réttað í málinu hinn 26. apríl og var Tómas þá mættur. Eiríkur Einarsson sýslumaður leitaði eftir sáttum milli aðila en án árangurs. Hinn 29. ágúst 1917 var réttað í Brattholti og Páll Lýðs- son bóndi í Hlíð viðstaddur fyrir hönd hluta- félagsins Skjálfanda en það var gefið upp sem eigandi að leigurétti Þorleifs. Hinn 3. nóvember 1917 var enn réttað og sam- þykktu báðir aðilar að leggja málið í dóm. Hinn 21. febrúar 1918 kvað Gestaréttur Árnessýslu upp þann dóm að leigusamning- urinn frá 9. mars 1909 væri fullgildur og bindandi fyrir Tómas og tilboð um greiðslu leigunnar löglegt. Tómasi var gert að greiða Sturlu 100 krónur í málskostnað. Tómas og Sigríður vildu ekki una dómn- um og ákváðu að áfrýja honum til lands- yfirréttar. Þar byggði Sveinn Björnsson málflutning sinn fyrst og fremst á því að dómari í héraði hefði ekki tekið mark á vitnisburði tveggja manna sem sáu Tómas skrifa undir seinni samninginn, frá 9. mars, í þeirri trú að um sama samning væri að ræða og hann hafði áður skrifað undir. Þessi málflutningur bar ekki árangur og hinn 21. október 1918 lauk málinu með því að yfirréttur dæmdi dóm Gestaréttar Árnessýslu gildan og var Tómasi gert að grejða Sturlu 30 krónur í málskostnað. Á meðan málaferlin stóðu yfir var árleg leiguupphæð lögð inn í banka og beið niður- stöðu dómsins. Samkvæmt Jóhanni Kr. Ólafssyni notaði Tómas féð til að greiða málskostnað eftir að dómur landsyfírréttar var upp kveðinn. Eftir það tók Tómas við leigunni og fór Jóhann sjálfur eitt sinn með peningabréf til hans. í því voru 350 krónur sem var hálf ársleiga. Eftirmáli Málaferlanna Þótt Sigríðar sé sjaldan getið í sjálfum málaferlunum er ljóst að það var hún sem stóð bakvið aðgerðir Tómasar í málinu. Hún fór margar ferðir til Reykjavikur vegna þeirra en hver ferð tók að meðaltali vikutíma. Eitt sinn á útmánuðum gekk Sigríður af stað til Reykjavíkur og lagði að heita mátti nótt við dag. Á heimleið fór hún yfir Mosfellsheiði og er hún kom af Lyngdalsheiði, fór hún beinustu leið austur mýrar milli bæjanna Austureyjar og Úteyj- ar í Laugardal. Tíð hafði verið góð en þenn- an dag var komið norðanrok og frost. Á leið Sigríðar var Hólaá sem var jafnan hættulítil. Þennan dag hafði bóndi í Áustu- rey komið að ánni milli klukkan 16-17 og talið hana með öllu ófæra en hún var þá farin að ryðja sig og í henni talsverður MINNISVARÐI um Sigríði við GuIIfoss. Andlitsmynd Ríkarðs Jónssonar er byggð á minni því sjálf brenndi Sigríður frumteikninguna. Ætla má að árið 1909 hafí verið fjár- hagslega erfitt fyrir Tómas í Brattholti. í september 1909 fór Landsbanki íslands fram á uppboð á jörðinni vegna vanskila. Tómas hafði ekki greitt af Iáni hjá bankan- um í tæpt ár og var skuldin komin í 313 krónur auk vaxta og dráttarvaxta. Skömmu síðar dró Landsbankinn uppboðs- beiðnina til baka þar sem Tómas hafði gert upp skuldina. Það er sennilegt að vanskil þessi hafi hvatt Tómas til að taka tilboði Þorleifs um langtímaleigu á fossin- um. Samningurinn gat þó ekki gengið í gildi fyrr en haustið 1912, þegar samning- urinn við landstjórnina yrði laus, en þá var gert ráð fyrir fyrstu greiðslu. Það mun því ekki hafa verið tilhugsunin um skjótfenginn gróða sem lokkaði Tómas en hafa ber í huga að Þorleifur var mikilsvirtur og valda- mikill kaupmaður sem betra hefur verið að hafa með sér en á móti. Ellefu dögum eftir seinni samningsgerð- ina, hinn 20. mars 1909, framseldi Þorleif- ur Sturlu Jónssyni kaupmanni í Reykjavík samninginn. Eftir því sem Gils Guðmunds- son segir í ævisögu Einars Benediktsson- ar, Væringjanum mikla, var Sturla erind- reki Einars og má því ætla að réttindanna hafi beinlínis verið aflað til að fá þau síðar í hendur fossafélögunum Skjálfanda eða Islandi. Skömmu eftir að Sturla öðlaðist umráðaréttinn yfir Gullfossi varð Einar viðskila við félaga sína í fyrrnefndum félög- um. Samkvæmt Dómsmálabók Árnessýslu lofaði Sturla félaginu Mendel og Cooper í London leiguréttinum yfir Gullfossi en pró- fessor Einar Arnórsson var umboðsmaður þess. Þessu loforði var þinglýst á manntals- þingi fyrir Biskupstungnahrepp hinn 26. júní 1913. Ári síðar var hins vegar þingles- in yfirlýsing frá Sturlu að loforð hans til Mendel og Cooper væri fallið úr gildi en ástæður þessa eru ekki tilgreindar. Sam- kvæmt Dómsmálabók Ámessýslu árið 1917 var hlutafélagið Skjálfandi eigandi að leiguréttindum Gullfoss. 1 Gripið Til Aðgerða Sigríður harmaði að Tómas skyldi upp- haflega leigja Þorleifi fossinn. Eftir að þeim feðginum varð ljóst að Þorleifur hefði selt Sturlu leiguréttinn tóku þau þá afstöðu að síðari samningurinn væri ógildur og því væri framsal Þorleifs til Sturlu ekki mark- tækt. Lítið var hægt að aðhafast í málinu að sinni og því var ekki hreyft fyrr en 30. ágúst 1912. Þá áttu leigutakar Gullfoss

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.