Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1994, Blaðsíða 9
í ÞESSARIskjalatösku fannst bréf Þóru Gunnarsdóttur og inni íþvílokkur úrhári hennar ásamt kniplingsborða. Ljósmyndir: Margrét Guttormsdóttir. Lokkur ástarinnar Nýlegur fundur í handritadeild Landsbókasafns henni einmitt gildi því notendur hennar eru einnig mjög margbreytilegir. Sumir koma til að leita að vísum, aðrir vegna ættfræðiá- huga og enn aðrir vegna háfræðilegra starfa. Gersemar í Handritadeildinni Handritadeildin geymir ósennilegustu hluti, m.a. sjálfsmynd Sölva Helgasonar sem einnig gekk undir nafninu Sólon ís- landus. Eftir að hafa skoðað hana voru Ögmundur Helgason forstöðumaður og Kári Bjamason handritavörður lokkaðir í kaffi á samnefnt veitingahús. Meðan þeir spjölluðu lék Magnús Blöndal Jóhannsson tónskáld á píanó staðarins. Þeir félagar hita sig upp með því að minnast Jóns Sigurðssonar forseta bók- menntafélagsins en þaðan fékk hann ein- mitt auknefnið forseti. Rithönd Jóns var feikilega falleg enda vann hann að hluta til fyrir sér með því að skrifa upp handrit, eins og t.d. Laxdælu. Safnið á honum mik- ið að þakka en ekki eru minna virði rituð gögn sem hafa borist frá alþýðufólki. Það var nefnilega mikið skrifað í landinu, t.a.m. dagbækur og bréf en ekki síður ættfræði og vísur. Ögmundur leiðir hugann að ger- semum deildarinnar. „Mesta gersemi safnsins og jafnframt mesta gersemi lútherskrar kristni í landinu em Passíusálmarnir í eiginhandarriti Hall- gríms Péturssonar. Það átti Jón Sigurðsson en hann fékk þá hjá Jóni Guðmundssyni ritstjóra Þjóðólfs. Harmonía er mikil gersemi. Hún er eitt frægasta nótnahandrit íslands með verald- legum og andlegum kveðskap. Séra Bjami Þorsteinsson frá Siglufirði notaði það þeg- ar hann skrifaði sín „þjóðlög" en meðal frægustu laga hans má nefna tvö, Sólset- ursljóð og Sveitin mín. Ein mesta gersemi safnsins hvað rithönd varðar er líka með nótum. Það em kvæði Ólafs á Söndum. Hjalti í Vatnsfirði, sá sami og teiknaði myndina af Hallgrími Péturssyni, skrifaði það handrit. Handritadeildin er einnig mjög rík af bréfasöfnum einstaklinga bæði íjáðra og snauðra. Nefna má t.d. bréfasöfn Hannes- ar Hafstein ráðherra og Stephans G. Step- hanssonar skálds. Svo era hér handrit nán- ast allra merkra skálda frá Jónasi til okkar daga. Dagbækumar era mikilvægar heimildir. Dagbók vinnukonu um aldamótin í Reykja- vík gefur t.a.m. innsýn í hvemig heimilislíf- ið var og hvað kona af hennar stétt hugs- aði.“ SJÁ BLS. 10 Allt er einstakt á handritadeildinni í Reykjavík, ekkert á sér hliðstæðu. Passíusálmar Hall- gríms Péturssonar hafa verið gefnir út allt að hundrað sinnum en aðeins er til eitt hand- rit skrifað af skáldinu sjálfu og það er varð- „Greiddi ég þér lokka við Galtará“ kvað Jónas forðum um ástina sína í ljóðinu Ferðalok. Margir Islendingar telja að elskan hans hafi verið Þóra Gunnarsdóttir í Laufási. Nýlega hafa starfsmenn handritadeildar Landsbókasafnsins fundið áður óþekktan lokk úr hári Þóru. Eftir GUNNAR HERSVEIN veitt í handritadeildinni. Þar er að fínna margar fleiri þjóðargersemar, t.d. ævisögu Jóns Steingrímssonar eldklerks, handrit að þjóðsögum Jóns Árnasonar, dagbækur Þór- bergs Þórðarsonar og handrita- og bréfa- safn Halldórs Laxness. Þar er kvæðahand- rit Jónasar Hallgrímssonar geymt og bréf hans. Einnig er þar að fínna merka muni, m.a. bókakistu Gísla Konráðssonar klædda selskinni og skrifpúlt Sighvats Borgfírðings. í brunanum í Kaupmannahöfn 1728 brann hluti handritasafns Árna Magnússon- ar. Tveimur áram síðar andaðist Ámi og markviss handritasöfnun á íslandi hófst ekki aftur fyrr en með stofnun handrita- deildar Landsbókasafns árið 1846. Það ár var handritasafn Steingríms Jónssonar bisk- ups keypt og greinarmunur handrita og bóka er gerður. Árið 1878 keypti ríkið hand- ritasafn Jóns Sigurðssonar forseta og litlu síðar handritasafn Hins íslenzka bók- menntafélags í Kaupmannahöfn og í Reykjavík. Alla þessa öld hefur jafnt og þétt bæst við safnið og 1. desember síðast- liðinn flutti handritadeildin í stærra rými í Þjóðarbókhlöðunni. Hlutverk handritadeildar er að safna gögnum sem engin lagaleg skylda er fyrir einstaklinga að afhenda til varðveislu. Þeir mega henda eigin dagbókum, skáldverkum, bréfasöfnum og fræðiverkum á haugana en þeir geta líka látið varðveita þetta á hand- ritadeildinni eða héraðskjalasöfnum víða um land. Starfsmenn deildarinnar verða því að vera á höttunum eftir óopinberam gögnum og leita að verðmætum á ólíklegustu stöð- um. Deildin hefur fengið margar góðar gjaf- ir frá ólíkum manngerðum og það gefur FERÐALOK Jónasar Hallgrimssonar varðveitt í Handritadeild. Ljóðið nefndi hann áður „ Gömul saga “ og „Ástin mín “. MESTA gersemi lút- erskrar kristni á ís- landi: Passiusálmar Hallgríms Pétursson- ar í eiginhandarrití. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1994 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.