Alþýðublaðið - 17.12.1988, Page 5
Laugardagur 17. desember 1988
» (
5
Fjárlögin eftir aðra umrœðu
Fjárveitinganefnd vill 515 milljónir
Atkvœðagreiðsla um frumvarpið og breytingartillögurnar í dag. Niðurskurðardllögur upp á
1,2 milljarða boðaðar við þriðju umræðu
Atkvæöagreiöslur fara
fram í dag um fjárlagafrum-
varpið og breytingatillögur
viö þaö eftir aöra umræöu af
þremur í sameinuðu þingi i
gær. Þegar liggja fyrir tillög-
ur fjárveitingarnefndar um
breytingar á frumvarpinu, en
tillögur þessar ef samþykktar
leiöa af sér 515 milljón króna
aukin útgjöld rikissjóðs frá
því sem frumvarpið gerir ráð
fyrir.
Önnur umræða fór fram
um fjárlagafrumvarpið í sam-
einuðu þingi i gær. Atkvæða
greiðsla fer hins vegar ekki
fram fyrr en í dag og að jafn-
aði er atkvæðagreiðsla eftir
aðra umræðu stefnumark-
andi um niðurstöðutölur
frumvarpsins.
Önnur frumvörp ríkisstjórn-
arinnar er lúta að almennum
efnahagsmálum og ríkissjóði
eru sum hver langt komin. Á
fimmtudag voru samþykkt
sem lög breyting á lögum um
viröisaukaskatt, sem er ein-
faldlega frestun á gildistöku
laganna. Þrjú frumvörp voru
samþykkt milli deilda í fyrra-
,dag. Þetta eru frumvörpin um
hækkun á skatti á skrifstofu-
og verslunarhúsnæði úr 1,1%
í 2,2%, um staðgreiðslu opin-
berra skatta, sem er að
mestu tæknilegs eðlis, og
frumvarpið um lántökugjald-
ið. Öll þessi frumvörp eru
komin frá neðri deild til efri
deildar.
Fyrstu frumvörpin um stað-
festingu á bráðabirgðalögum
aðgerðir í efnahagsmálum,
viðkomandi breytingar á
bráðabirgðalögum og frum-
varpið um frestun á hækkun
launa og búvöruverðs eru
staðsett í fjárhags- og við-
skiptanefnd neðri deildar eft-
ir fyrstu umræðu. Frumvarp
til lánsfjárlaga er hjá fjár-
hags- og viðskiptanefnd efri
deildar eftir fyrstu umræðu.
Á fimmtudag fór frumvarpið
um vörugjald í nefnd eftir
fyrstu umræðu í neðri deild,
en frumvarp um skattskyldu
fjarfestingalánasjóða og veð-
deilda (innlánsstofnana) er i
nefnd eftir fyrstu umræöu í
efri deild. Frumvarpið um
tekju- og eignaskatt (2ja
prósentustiga hækkun tekju-
skatts, stóreignaskattur og
fleira) fór á fimmtudag í
nefnd eftir fyrstu umræðu í
neðri deild.
Hvað fjárlögin varðar er úr-
slitadagurinn því í dag. Fyrir
utan breytingatillögur ein-
stakra þingmanna kveður
auðvitað mest á breytingatil-
lögum fjárveitinganefndar.
Meirihluti nefndarinnar legg-
ur fram tillögur sem fela í sér
alls tæplega 515 milljón
króna útgjaldaaukningu, en
við þriðju umræðu um fjár-
lagafrumvarpið munu koma
fram niðurskurðartillögur rik-
isstjórnarinnar, sem alls eiga
að draga útgjöld saman um
1.218 milljónir króna.
Tillögur fjárveitinganefndar
um aukin útgjöld upp á 515
milljónir samsvara 0,7%
hækkun á niðurstöðutölu nú-
verandi frumvarps. Af þess-
um 515 milljónum eru 60,3
milljónir til komnar vegna
aukins launakostnaðar vegna
viðbótarheimilda og leiðrétt-
inga. Hækkun vegna annars
rekstrarkostnaðs hljóðar upp
á 89 milljónir og viðbótarút-
gjöld vegna stofn- og við-
haldskostnaðar hljóðar upp á
365,5 milljónir króna. Ef sam-
þykktar hækka tillögur þess-
ar rikisútgjöldin úr 76.131
milljónum króna í 76.646
milljónir króna. Auk hreinna
útgjalda er gert ráð fyrir því
aó sértekjur ýmissa fyrir-
tækja og stofnana rikisins
lækki frá því sem ráð er fyrir
gert í frumvarpinu.
í krónum talið eru mestu
hækkunartillögurnar til
menntamálaráðuneytisins
eða um 186 milljónir króna,
en þar á eftir kemur heil-
brigðis- og tryggingaráðu-
neytið með 92,3 milljónir
króna. Hlutfallslega er hækk-
unin hins vegar mest hjá
æðstu stjórn ríkisins, 2,8%
og hjá landbúnaðarráðuneyt-
inu, 2,6%. Af einstökum
áberandi liðum má nefna að
fjárveitinganefnd vill 85 millj-
ón króna hækkun til bygg-
inga grunnskóla og íbúða fyr-
ir skólastjóra, 40,3 milljón
króna hækkun vegna bygg-
inga sjúkrahúsa, heilsu-
gæslustöðva og læknisbú-
staða, 46,3 milljón króna
hækkun vegna hafnarmann-
virkja, lendingarbóta, lands-
hafna og sjóvarnargaröa, 23,6
milljón króna hækkuri vegna
landgræðsluáætlunar, 21
milljón króna hækkun vegna
mötuneytis Fjölbrautaskól-
ans á Akranesi, 15 milljón
króna hækkun vegna sauö-
fjárveikivarna og loks má
nefna 13,6 milljón króna
hækkun vegna endurskipu-
lagningar Búnaðarfélagsins.
I niðurskurðartillögunum
er meðal annars gert ráð fyrir
aö framlag til Vegagerðar
lækki um 90 milljónir, fram-
lag til Ríkisábyrgðarsjóðs um
78 milljónir og til bygginga-
sjóðanna um 150 milljónir.
Launakostnaður á að lækka
um 320 milljónir, rekstrar-
framlög um 80 milljónir og
rekstrargjöld um 250 milljónir
króna.
DRAUMAR í LIT
Þegar tveir jafn miklir dæg
urlagarisar og Bubbi og Meg-
as leiða saman hesta sína,
þá er eðlilegt að álykta sem
svo að útkoman úr því sam-
spili verði meiriháttar meist-
. araverk og ekkert annað. Blá-
ir draumar heitir þessi sam-
runi félaganna, ég segi sam-
runi vegna þess að á plötu-
umslaginu er andlitum þeirra
skeytt saman og er útkoman
vægast sagt stórskemmtileg.
Besta umslag ársins að mínu
mati. En þessi plata er ekki
það frábæra meistaraverk
sem ég bjóst við, kannski
maöur hafi gert sér alltof
miklar vonir? En hversvegna
ekki? Það er ekki vegna tón-
listarinnar, jassópusanna,
blúsanna eða yfirvegaðra en
tregablandaðra lagasmíða
þeirra Bubba og Megasar. Á
bláum draumum skipta þeir
samviskusamlega með sér
verkum, syngja ýmist sér á
báti eöa saman. Það er ein-
mitt lag sem þeir syngja
saman, Ég bið að að heilsa,
eftir Inga T. Lárusson við
texta Jónasar Hallgrímsson-
ar, sem mér finnst draga úr
mætti Blárra drauma. Mér
finnst í lagi með hljóðfæra-
leikinn og útsetninguna en
söngur Bubba virkar mjög til-
gerðarlegur á mig og finnst
mét Bubbi hafa gert betri
hluti en þetta. í enda lagsins
V laumar hann svo asnalegu
Jeee-i, fáránlegt að enda lag-
ið á einhverju búkhljóði!
Megas og telpnakór Öldu-
túnsskóla standa sig mun
betur. Filterlaus kamel blús
Bubba fær svipaða útrreið
hjá honum og finnst mér
hann með söng sínum
skemma þennan ágæta blús
sinn. Það er fyrst og fremst
þetta sem ég hef út á Bláa
drauma að setja. Bubbi virkar
á köflum eins og hann sé að
rembast við að syngja ein-
hvernveginn öðruvísi en hans
náttúrulega rödd gefur tilefni
til. Það sama er ekki hægt að
segja um Megas. Framlag
Bubba er þó langt frá þv( að
vera alvont því mér finnst
lögin Seinasti dagurinn, saga
um gamlan, látinn vinnufé-
laga Bubba og Hann er svo
blár (blúsinn, innskot, G.H.Á)
alveg þrælgóð. Lagasmíðin
Menn að hnýta snörur er ögr-
andi, hrollvekjandi og hrein-
skilin blanda af syntapoppi,
jassi og vestramúsik. Sannur
textinn er óhugnanlegur,
sóttur í íslenskan veruleika:
„Sjaldan þú heyrir um hryll-
inginn þann / hengdan út í
bílskúr sinn föður barnið
fann / með skilaboð á miða
skráð ég get ei meir / skuldin
er hjá mér og þér á því lifa
þeir.“ Sannarlega köld vatns-
gusa frá Bubba framan í
stjórnendur þessa lands.
Þáttur Megasar í Bláum
draumum er öllu jafnari og
frammistaða hans ekki eins
sveiflukennd og hjá Bubba.
Lagið Flæðarmál er drunga-
legt en fallegt, með voldug-
um píanóhljómum spiluðum
af Kenneth Knudsen, sem
m.a. hefur spilað með danska
kontrabassakónginum Nils
Henning 0rsted Pedersen.
Megan styðst eingöngu við
píanóundirleik í laginu Tvær
stjörnur og kemur það vel út.
Textinn er fullur af söknuði
og sársauka:
„Eg sakna þín í birtingu að
hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn
þegar sólin brosir við mér
og ég sakna þín á kvöldin
þegar dimman dettur á
og ég sakna þín mest á nótt-
unni þegar svipirnir fara á
sijá.“
Vatnsrennibraunin er léttur
ópus frá Megasi og gæti lag-
ið alveg eins verið af Loft-
mynd Megasaren hefði
væntanlega skorið sig meir
úr þar en á Bláum draumum.
Það er fjörleg Karnival
stemmning sem hviliryfir
laginu og inniheldur þaö
geysifallegan óbóleik sem
Olafur Flosason sér um og
leikur óaðfinnanlega.
Ég er ekki frá því aö þetta
sé eitt besta lag Blárra
drauma. Af þeim lögum sem
Bubbi og Megas syngja sam-
an líkar mér einna best vió
Einum of heví en i laginu fer
Hammond-snillingurinn Karl
Sighvatsson fimum höndum
yfir nótnaborð orgelsins,
hann klikkar aldrei á Hamm-
ondinu.
Það er sagt að alltaf hafi
stefnt í svona plötu hjá þeim
félögum. Nú er hún komin en
er að mínu mati ekki há-
punktur á ferlum þeirra sem
listamanna. Bláir draumar
eru þó vissulega þrælgóð
plata, meö firnagóðum hljóð-
færaleik frá landsins bestu
jassspilurum, vel unnum lög-
um og textum en hnökrarnir
finnast mér liggja aðallega i
söng Bubba.
Þrátt fyrir þessa hnökra
verða Bláir draumar aldrei að
martröð, langt, langt frá þvi.
ROKKPRESSAN
T O P P F 1 M M T Á N
1. (—) BLÁIR DRAUMAR /i i . . BUBBI OG MEGAS
2. (1 ) 12 ÍSLENSK BÍTLALÖG . BÍTLAVINAFÉLAGID'.'
3.(10) TUNGLIÐ TUNGLIÐ TAKTU MIG . AGNESJOHANESEN
4. ( 6 ) SÍÐAN SKEIN SÓL \ ... SÍÐAN SKEIN SÓL
5.(2) COCKTAIL i ÚR KVIKMYND
6. ( 5 ) GÓÐIR ÍSLENDINGAR vi ^LGEIR GUÐJÓNSSON
7.(3) RATTLE AND HUM U2
8.(7) VOLUME ONE THE TRAVELLING WILBURYS
9. (—) ÍTALSKAR ARÍUR KRISTJÁN JÓHANNSSON
10.(11) JÓLAFRÍ . . . . ELLY VILHJÁLMS
11.(14) GREATEST HITS . . . FLEETWOOD MAC
12.(9) FROSTLÖG . ÝMSIR FLYTJENDUR
13.(8) BUSTER ÚR KVIKMYND
14. (—) ER ÁST í TUNGLINU? . GEIRI SÆM OG HUNANGSTUNGLIÐ
15.(4) NOW 13 . ÝMSIR FLYTJENDUR |
| Listinn er byggöur á smásölu úr verslunum Steina hf., Sklfunnar og Grammsins.