Vísir - 13.03.1978, Síða 3
V .4
3
VISIB Mánudagur 13. mars 1978
Bílaumferðin
jókst mikið á
árínu 1977
Bifreiðaumferð jókst verulega á síðasta ári um allt
land/ eða að meðaltali um 13%, samkvæmt umferðar-
talningu, sem fram fór á vegum Vegagerðar ríkisins.
Umferðin var talin allt árið á 47
stöðum um landið, en auk þess
var gerð viðtæk könnun á sumar-
umferð á Suðurlandi og Reykja-
nesi.
Sumarumferðin jókst i heild
nc-kkru minna en ársumferðin,
eða um 7%. Hún var hins vegar
misjöfn eftir landshlutum. A
Austurlandi jókst sumarumferðin
langmest, eða um 17%.
Ársumferðin jókst hins vegar
einna mest á Suðurlandi og
Reykjanesi, eða um 13-14%.
—ESJ.
Sverrir Guðjónsson, Kristln Magnús, Ilalldór Sverrisson og Þór-
oddur Þóroddsson fengu margar og skemmtilegar gjafir, sem
komið var með upp á svið að loknum sýningum.
FERÐALEIKHÚSINU
VEL TEKIÐ í USA
— boðið að koma aftur með sýningu
„Ferðin heppnaðist i alla staði mjög vel og eftir sýningar kom fólk
upp á svið til okkar og færði okkur ýmislegt skemmtilegt að gjöf”,
sagði Kristin Magnús hjá Ferðaleikhúsinu i samtali við Vísi.
Ferðaleikhúsið er nýkomið úr Bandarikjaferð, þar sem það sýndi
isex leikhúsum, samtals átta sinnum. Sett var á svið islensk kvöld-
vaka og sviðsmyndin var islensk baðstofa.
„Fólkið tók okkur mjög vel, bæöi i (Jhicago og annars staöar þar
sem við sýndum. Alls komu um 2400 manns á sýningarnar, sem fóru
flestar fram i leikhúsum sem eru I tengslum við háskóla. Sum
þeirra voru alveg ný, en önnur tvö til þrjú hundruð ára gömul”,
sagði Kristin, en hún vildi einnig geta þess að ef velvild Flugleiða
hefði ekki komið til, þá hefði þessi ferð aldrei verið farin. Flugleiðir
gáfu þeim fjórum sem fóru utan, Kristinu, Sverri Guðjónssyni,
Halldóri Sverrissyni og Þóroddi Þóroddssyni mikinn afslátt af far-
gjöldum.
„Það er búiðað bjóða okkur að koma aftur til Bandarikjanna með
sýningu eftir tvö ár. Þá verður með okkur hópur frá Hawai, ef til
kemur,og talað var um að nefna sýningu okkar ts og eldur. Það væri
mjög skemmtilegt að geta tekið þessu boði, og við vonumst til
þess”, sagði Kristin.
Ferðaleikhúsinu hefur verið boðið að taka þátt i Edinborgarhá-
tiðinni, sem haldin verður bráðlega, en svar verður að berast innan
fárra daga. Kristin sagði, að ef fjárstuðningur fengist til ferðar-
innar myndu þau fara utan með tvo einþáttunga.
—KP.
Kynning ó stoppuðum teppum
Listgrein sem nýtur siaukinna
vinsælda i Bandarikjunum, en
fáir tslendingar eru kunnugir,
verður kynnt hér á landi i næstu
viku. Frú Linda Schápper,
bandarisk listakona búsett i
Paris, mun kynna gerð stopp-
aðra teppa (quilts) hjá
Menningarstofnun Bandarikj-
anna, Neshaga 16, fimmtudag-
inn, 16. mars kl. 8:30.
Fyrir tveim árum voru
bandarisk hjón hér á ferð og
kynntu að nokkru leyti þessa
listgrein sem vakti geysimikla
athygli.
I þetta sinn mun frú Schápper
sýna áhugamönnum hér hvern-
ig teppin eru hönnuð.
Frú Schápper kemur hingað
til landsins i sambandi við
sýningu sem hún heldur á stopp-
uðum teppum að Kjarvalsstöð-
um.
Linda Schápper
Stendur sem hœst, í kjallaro
Iðnaðarhússins, Hallveigarstíg
STÓRKOSTLEGA GOn VERÐ!
Kuldafatnaður - Vinnufatnaður
• Kemputeppi - Efni - Smáhlutir
POLARULPUR FULLORÐINNA
plussfóðraðar
No. 38-44 kr.8.200,-
No. 46-56 kr.9.700,-
Vattfóðraðar
stuttar
No.38-44 kr. 6.100.-
No.46-56 kr. 6.900,-
Sloppar
stuttir/síðir
Samfestingar
og ýmis
annar
vinnu-
fatnaður
PÓLARÚLPUR BARNA
plussfóðraðar
No. 30-36 kr. 6.800.-
Vattfóðraðar
stuttar
No. 30-36 kr. 5.200.-
Plussfóðraðar
stuttar.
No. 30-36 kr. 5.700,-
Allskonar
vinnujakkar,
sportjakkar
og
hálfsíðir
kuldajakkar
★ Kemputeppi -KKerrupokar -K Gœruúlpur (íslandsúlpur)
★ Allskonar efni og bútar og margt, margt fleira
BELGJAGERÐIN