Vísir - 13.03.1978, Side 5
5
■ rritwvvi
.. or»vría
Muw“ “ "
ÍMig £anSar UlsStahreyf-
iorystumenn k,avik hvort
%5 5““'“'“““"vlí
* Grensásveginn-
* Þar b^ast0g1ÖuígUn6ar
+ þvi aö bnrn 8á peningum
* roati mas^bVkiast svo vera
>til þes® aGs^rtta og drepa, á
aö berja, s^l l, kaUpa sér
>g otóur £oi:®1arlU,þetta ekki
,gfenmnu imns v börnin
^neÆÍokuöÞarna
inm ££1 rrréfuríafÍrrt
krækja i ar0n löur aögang->
°ugÞrva?S- {élagS^
skaP- , -lct ah torstjóri fyr;
Mér skdst a0 u maöur «v
irtækisms s Reykjavik-
Skatasambandi ^ þar uU1
ur, og sárpkftur sé formaö
dagiegan rfslkála£élags
ur stær Þa& stendur i aut
borgmm. Þaö s ^ Llflö ,
iýsingum £rá CannSki svon
ieikur .Er þaö^átahrey{ink
ieikur, sem Jeppllegasta-
sr- wygsaJsr
S4Asé.»«“”d8sv:
leiki'? “ é,r/
SKATAHREYFINGIN
EKKERT TENGD JÓKER
Lesendasiðunni hefur borist
eftirfarandi bréf frá forráða-
mönnum Jókers:
Agæta „húsmóðir i Háaleitis-
hverfi”!
Vegna bréfs þins um tengsl
skátahreyfingarinnar og Tóm-
stundasalarins Jókers h.f., ósk-
um við, eigendur Jókers,að taka
eftirfarandi fram:
Engin tengsl, hvorki fjár-
hagsleg né önnur tengsl, eru
miiii skátahreyfingarinnar og
Tómstundasalarins Jókers h.f.
Hinsvegar getum við uppiýst
yður um, að undirritaðir, Stein-
þór Ingvarsson, stjórnarfor-
maður Jókers hefur fram-
kvæmdastjórastarf Skátasam-
bands Reykjavikur að atvínnu,
og Þorsteinn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Jókers starfar
m.a. f skátahreyfingunni i sin-
um tómstundum og var fram að
siðustu mánaðamótum félags-
foringi i skátafélagi einu hér i
borg, en á nú sæti i stjórn
Bandalags islenskra skáta.
Meðlimir skátahreyfingar-
innar spanna án efa flestar
starfsgreinar, sem fyrirfinnast
hér á landi, i sinni atvinnu, og
hefur skátahreyfingin hingað til
ekki haft afskipti af þvi hvort
starfsfólk hennar eigi hlutabréf
i fyrirtækjum, né hvaða atvinnu
framámenn hennar stunda.
Skátahreyfingin er félags-
skapur áhugafólks og stundaður
i þess fritimum. Fráleitt er að
gera þvi skóna, að þótt tveir
menn eða fleiri reki I félagi
fyrirtæki og séu jafnframt I sín-
um tómstundum meðlimir i
sama áhugamannafélagi að
áhugamannafélagið sé tengt
fyrirtækinu og áróður fyrir þvi
hljóti því að fara þar fram.
Þá koma i bréfinu fram full-
yrðingar um starfsémi Jókers,
sem furðulegt er að blað sem
gefur sig út um ábyrgt og heið-
virt fréttablað skuli birta án
undirskriftar.
Tómstundasalurinn Jóker við
Grensásveg er hreint afþrey-
ingarfyrirtæki, þar sem allir,
ungir og gamlir, eru veikomnir
til að leika sér að sjálfsöluleik-
tækjum, sem þar eru á boðstól-
um. Þarna getur fólk spilað fót-
boltaspil, kúluspil, barið i bolta,
skotið í mark, leikið billiard,
hlustað á músik eða bara hitt
vini og kunningja. Leiktækja-
salir sem Jóker þykja sjálf-
sagðir í flestum löndum úti i
heimi og kannast sjáifsagt
margir tslendingar við að hafa
komið við i slikum sölum, á
ferðaiögum sinum, og átt þar
ánægjulegar stundir án þess að
biða sálartjón af.
Efiaust má lengi deila um til-
verurétt afþreyingarfyrirtækja
eins og t.d. leiktækjasala, kvik-
myndahúsa, danshúsa og fl. En
það er okkar skoðun og sann-
færing, að slik fyrirtæki i einka-
rekstri eigi sannarlega tiiveru-
rétt i nútima þjóðfélagi, þar
sem frítimi fólks fer stöðugt
vaxandi og alltof litill hluti þess
er tilbúinn að starfa i skipulögðu
félagsstarfi.
Að endingu bjóðum við „hús-
móður i Háaleitishverfi” og öll-
um öðrum, sem áhuga hafa á
fyrirtæki okkar, að koma og
kynnast því og þeirri skemmtan
sem það býður upp á.
Virðingarfyllst,
f.h. Jókers hf„
Steinþór Ingvarsson,
stjórnarformaður,
Þorsteinn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri.
Var það
þorskurinn
sem samdi
þœr?
Ásgrimur Björnsson
hringdi:
Við vinnufélagarnir vorum að
ræða þorskveiðibannið um
páskana. Maður hefur heyrt að
frystihúsin séu að segja upp
sinu starfsfólki, þannig að ekki
komi til launaútgjalda á meðan
á banninu standi.
En hvernig vita fiskifræðing-
arnir að heppilegast sé að banna
veiðar um páskana? Er kannski
verið að spara þorskinn. Og
fyrst við erum farnir að ræða
um að spara gætum við þá ekki
lika farið að spara bensin og
banna ferðaiög.
Þessar þorskveiðibannsregl-
ur eru hálffáránlegar. Það er
eins og þorskurinn hafi sjálfur
samið þær. Það er ekkert hug-
sað um sjómennina. Þeim er
ætlað að taka upp öll net fyrir
ákveðin tima. Það er hverjum
og einum Ijóst að allra veðra er
von á þessum árstima. En það
virðist ekki valda þeim áhyggj-
um sem sömdu reglugerðina.
Nei, upp með netih, hvað sem
tautar og raular. Þegar sjó-
menn Islands verða að draga
inn netin verða reglugerðasmið-
irnir i hlýju bólinu heima. ,
Ypim
YZ
GLANSSKOL
Margir litir.
Gefur hárinu skemmtilegan blœ.
Hargreiðslustofan
■f jb | u g Oðmsgötu 2
VALHOLL - Sími 22138
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 74. ,75. og 76 tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1977 á eigninni Dalsbyggð 2, Garðakaupstað, talin eign
Hafsteins Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Baldvins
Jónssonar, hrl„ Svans Þ. Vilhjálmssonar hdl. og Inn-
heimtu rikissjóðs, á eigninni sjálfri fimmtudaginn 16.
mars 1978 kl. 4.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á eigninni Strandgötu 37, 2. hæð og risi,
Hafnarfirði, þingl. eign Grensáss h.f. fer fram á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 16. mars 1978 kl. 2.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Verkfrœðingur -
Byggingatœknifrœðingur
Ólafsvikurhreppur óskar eftir verkfræð-
ingi eða byggingatæknifræðingi til starfa
hjá Ólafsvíkurhreppi — íbúðarhúsnæði til
boða.
Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k. Nán-
ari upplýsingar veitir oddviti í sima 93-
6153.
Rœsting
Veitingahúsið Ask, Suðurlandsbraut 14,
vantar starfskraft til ræstinga.
Æskilegur vinnutimi er að morgni. Upplýsingar veittar á
staðnum, ekki i sima.
Askur,
Suðurlandsbraut 14.
SKÁKSAM BAINID
Skókþing íslands 1978
Skákþing íslands verður haldið sem hér
segir:
Landsliðs- og áskorendaflokkur 16/3—27/3
’78
Meistara- og opinn flokkur 18/3—27/3 ’78
Drengja- og telpnaflokkur 24/3—27/3 ’78.
Þátttöku skal tilkynna i sima 75893 eigi
siðar en 16/3 ’78 kl. 22.00.
Stjórn Skóksambands íslands
UPPBOÐ
Eftir kröfu Hestamannafélagsins Fáks fer fram opinbert
uppboð fimmtudaginn 16. mars 1978 kl. 17.00 við efri hest-
hús Fáks að Viðivöllum við nýja Skeiðvöllinn og verða
eftirtalin hross seld:
1. Rauðblesóttur hestur, ca. 3 vetra, mark: fjöður aftan
hægra.
2. Hvitur hestur, gamall.
3. Brúnn hestur, 8-9 vetra, mark: heilrifað hæera.
4. Leirljós hestur, ungur.með langri stjörnu.
5. Leirljós hestur.ca. 5 vetra.mark: stig framan hægra.
6. Dökkjarpur hestur, styggur.
7. Jarpur hestur ca. 3 vetra.
8. Jarpur hestur, ca. 10-12 vetra.
9. Jarpt mertryppi með stjörnu.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
Bifreiðastillingin
Smiðjuvegi 38, Kópavogi,
simi 76400.
Nú stendur yfir hin árlega bifreiðaskoðun. Við undirbúum
undir skoðun og önnumst einnig allar aðrar viðgerðir.
Björt og rúmgóð húsakynni. Fljót og góð afgreiðsla.
Bifreiðastilling,
Smiðjuvegi 38, Kópavogi, .
Simi 76400.