Vísir - 13.03.1978, Page 6
TUNGSTONE
RAFGEYMAR
c
Mánudagur 13. mars vism
Kúbumenn i Miami eiga erfitt meðað má Castro úr huga sér.
LITLA HAVANA
Fidel Castro hefur veriö
Washington-stjórninni óróðin
gáta i hartnær tuttugu ár. Það
þarf þvi litt að undrast það, þótt
stór hluti kúbönsku útlaganna i
Miami eigi erfitt með að gleyma
honum.
En af þeim Kúbumönnum, sem
sest hafa að i Bandarikjunum
(sumir hverjir búið þar lengi og
nokkuðvel),erufáir eftir sem ala
með sér nokkrar vonir um, að
Kúba verði frelsuð af Castro.
Samt ætlar þeim seint að takast
aðslita augunfrá þessarieyju, og
beina heldur sjónum sinum að
félagsmálum i sinu nýja föður-
landi.
Yngri kynslóð þessa fólks, sem
hlotið hefur mesta sina menntun i
nýja landinu, er þó farin að snúa
sér að stjórnmálum i Miami og
sækjast eftir embættum hjá þvi
opinbera. Hugsjónir þeirra eru
jarðbundnari en innrásar- og
byltingardraumar gömlu mann-
anna. Það eru hversdagsverkefni
eins og fjárveitingar til mennta-
mála, oghverniglifga eigi við at-
hafnalifið i Miamiborg, sem hefur
farið dofnandi. Framtiðardraum-
ar þeirra yngri lúta að þvi að gera
Miami að miðstöð verslunar við
Suður-Amerikulöndin.
En meðal þessara Kúbu-
Amerikana eru margir enn, sem
stöðugt horfa um öxl. Utanrikis-
mál vekja meiri áhuga hjá þeim
en venjuleg heimstjórnarmál
þessára nýju ( og þó ekki svo
nýju) heimkynna. Það eru rétt
tvær vikur siðan aðstoðarborgar-
stjóri Miami, maður af kúbönsk-
um ættum, flutti opinberlega
ræðu i Managua i Nicaragua og
færði einræðisherranum, Somoza
hershöfðingja, „árnaðaróskir og
baráttukveðjur hálfrar milljónar
Kúbumanna”. —Þetta fólk fylgir
flest öfgameiri armi hægrimanna
i hatri sinu á Castro og kommún-
isma hans.
Eins og jafnan þegar öfgarnar
eru annars vegar er grunnt á of-
beldinu, og hefur borið á hryðju-
verkum i Miami. Ekki eru fátið
sprengjutilræði á borð við það, er
reynt var fyrir framan Marco
Polo-hótelið á Miami Beach i
byrjun mánaðarins. Sumt af
þessu eru innbyrðis átök meðal
útlaganna sjálfra. Fikniefna-
smygl ( sem er sérgrein glæpa-
hringanna i Miami) liggur i
sumum tilvikum að baki þessu.
En i mörgum tilvikum er um að
ræða einbert pólitiskt ofstæki. Á
þessum slóðum leynist hryðju-
verkahópur, sem lýst hefur á
hendur sér ýmsum sprengjutil-
ræðum, mannránum og að
minnsta kosti tveim morðum.
Versta illvirkið var þó, þegar
kúbönsk farþegaþota var
sprengd upp, og allir innanborðs
fórust með henni.
Að undanförnu hefur ýmislegt
komið fram, sem þykir benda til
þess, að Kúbumenn i Miami hafi
gerst flugumenn, eins konar
leigumorðingjar, erlendra aðila.
að er grunur yfirvalda i einu
morðmáli að minnsta kosti.
Nefnilega þegar Orlando Leteli-
er, fyrrum utanrikisráðherra
Allendes i Chile, var myrtur i
Washington i september 1976.
YESTUR-ÞÝSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
Talið við sölumennina
HEKLA HF.
Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21 240
Nýkomnir loftlistor,
margar gerðir
Auðveldir í upp-
setningu
Verðið miög hagstœtt
MÁLARABÚÐIN
Vesturgötu 21 S: 21600