Vísir - 13.03.1978, Qupperneq 9
V»V*«r •;*'í
vism Mánudagur
13. mars 1978
9
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
KOMIST A BRAGÐIÐ OG YKKUR MUN VEL LÍKA
lindltif
SIMI 16463
zmm mttm mmm amm smmm w
Prófkjör AlþýÖuflokksins á Akranesi um helgina:
RÍKHARÐUR í
FYRSTA SÆTI
Úrslit prófkjörs Alþýöuflokksins á Akranesi fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar, sem fram fór um helg-
ina, urðu þau að Rikharður Jónsson varð í 1. sæti.
I öðrusæti varðGuðmundur Vésteinsson og Rannveig
Hálfdánardóttir i þriðja.
Frambjóðendur voru sex og
buðu sig fram i misjafnlega
mörg sæti. Rikharður fékk lang-
flest atkvæði i fyrsta sæti eða
171. Guðmundur Vésteinsson
bauð sig eingöngu fram i annað
sæti og fékk 198 atkvæði og
Rannveig Edda Hálfdánardóttir
bauð sig fram i þriðja sæti og
fékk 237 atkvæði. Sigurjón
Hannesson fékk samtals 139 at-
kvæði og varð i fjórða sæti.
Aðrir frambjóðendur voru
SkúliÞórðarson, sem fékk 45 at-
kvæði i fyrsta sæti, 25 i annað og
47 i þriðja og Þorvaldur Þor-
valdsson, sem fékk 71 i fyrsta og
Rikharður
35 I annað sæti.
Þátttakendur I prófkjörinu
voru 367 sem er 94,83% af fylgi
flokksins við siðustu bæjar-
stjórnarkosningar. Einn seðill
var auður og 36 ógildir. Niður-
staðan er bindandi fyrir þá sem
fengu 20% af fylginu siðast.
— SG
Drœm þátttaka
á Siglufirði
Alþýðuflokksfélag Siglufjarðar éfndi til prófkjörs á Siglufirði um
helgina fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Talning atkvæða hefst ekki
fyrr en klukkan fimm i dag.
Þátttaka i prófkjörinu var fékk Alþýðuflokkurinn 270 at-
fremur dræm, þar sem aðeins 140 kvæði. Frambjóðendur voru átta
kusu, en við siðustu kosningar talsins. — SG
Ók á kyrrstœðan bíl:
£*••• # - • •
Sjo i steinmn
Sjö piltar voru settir i fangageymslu eftir að ekið hafði
verið á kyrrstæðan bíl á Skólavörðustíg á laugardags-
kvöld.
Það var um klukkan átta sem
ekið var á bilinn. Þeir sem þar
voru á ferðinni stungu af. Þeir
fundust skömmu siðar i húsi i
borginni og hafði bilnum verið
hálfekið inn i bilskúr. Þeir sem
inni voru vildu ekki opna fyrir
lögreglunni og varð að fá úrskurð
um að opna mætti húsið.
Voru þar fyrir 7 piltar allir
undir áhrifum og voru þeir i
fangageymslu um nóttina.
Morguninn eftir viðurkenndi einn
að hafa ekið. —EA
Senda fímm unglinga
til Danmerkurdvalar
i dag, mánudag, rennur út skilafrestur f ritgerðasam-
keppni um starfsemi þjónustuklúbba í landinu, sem
Lionshreyfingin á islandi efnir til meðal unglinga í skól-
um landsins.
Norrænar unglingabúðir fyrir
unglinga 15—17 ára verða starf-
ræktar á Norður-Jótlandi i
grennd við Alaborg, dagana
8.-29. júli n.k.
Lionshreyfingin á Islandi átti
rétt til þess að senda 5 unglinga i
þessar búðir, sem eru bæði fyrir
drengi og stúlkur, og var ákveð-
ið að láta fara fram ritgerða-
samkeppni i skólum landsins til
þess að velja þátttakendur og
hefur svo verið gert, og eru rit-
gerðir þegar farnar að berast.
Skólastjórar víðsvegar um
land voru beðnir að koma þessu
verkefni á framfæri i skólum
sinum, en siðar mun sérstök
nefnd Lionsmanna meta þær
ritgerðir, er þannig berast, en
verðlaun eru ókeypis ferðir og
dvöl i áðurnefndum unglinga-
búðum.
Lionshreyfingin greiðir allan
kostnað, þ.e. Unglingaskipta-
skiptasjóður greiðir fargjald og
tryggingar þátttakenda.
Danskir Lionsmenn greiða
dvalarkostnað, og gert er ráð
fyrir, að klúbbar i heimahéraði
þeirra unglinga, er valdir verða
til fararinnar, íeggi til skotsilfur
i ferðina.
Úrslit verða tilkynnt svo fljótt
sem verða má. Nánari upplýs-
ingar veitir unglingaskipta-
stjóri, óskar Sverrisson,
Réykjavik,simi, 71717.
Það er algjör óþarfi að láta flugur angra sig í fríinu -
heima eða érlendis.
Takið Shelltox flugnafæluna með í sólarlandaferð-
ina - og losnið þannig við óþægileg kynni af
framandi skorkvikindum.
Fæst á afgreiðslustöðum Shell.
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell
HEITIR LJUFFENGIR
DRYKKIR ALLAN
SÓLARHRINGINN
Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með
frá 2 upp í 6 tegundir í einu, svo sem kaffi, te, kakó og súpu, og það tekur
ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn.
Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í
handfangið og þá rennur efnið í bollann, síðan seturðu bollann undir
kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú ert búinn að hræra
i bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk.
Þetta er þrifalegt, einfalt og ódýrt, ekkert fer til spillis, enginn uppþvottur,
og drykkirnir eru alltaf nýjir og ferskir.
Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þær eru jafnvel ekki dýrari
en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar, sem óskað er
heitra ljúffengra drykkja.
Hringið í sima 16463 og fáið sölumann í heimsókn, hann mun gefa ykkur
að smakka og allar nánari upplýsingar.
Flokksþing Framsóknarflokksins:
Nefndarstörf í dag
Flokksþing Framsóknarflokksins var sett í gær í
Glæsibæ. Formaður flokksíns ólafur Jóhannesson#
ritari hans, Steingrímur Hermannsson og gjaldkeri
Tómas Árnason fluttu yfirlitsræður.
Þá var að sögn Þráins Valdi- þingsins saman og var þeim
marssonar framkvæmdastjóra skipt i fámennar undirnefndir
flokksins kosið i nefndir og síðan sem sitja nú að störfum eftir há-
voru almennar umræður til kl. degi. Aðrir þingfulltrúar mynda
6. Margir voru þá ennþá á mæl- þá umræðuhópa sem ræða
endaskrá og verða framhalds- ákveðna málaflokka. Um kl. 6 i
umræður i kvöld á Hótel Sögu. 1 dag koma aðalnefndirnar svo
morgun komu 4 aðalnefndir saman aftur til funda. _k<?
Prófkjör
ó Patró
Prófkjöri Alþýðuflokksins á
Patreksfirði fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar lauk i
gær. Fjórir voru i framboði og
109 tóku þátt i prófkjörinu eða
um 81% af kjörfylgi flokksins
við sfðustu kosningar.
Kosningin var bindandi og
urðu úrslit þau að Agúst H.
Pétursson varð i fyrsta sæti,
Björn Glslason i öðru, Gunnar
R. Pétursson i þriðja og Birgir
B. Pétursson i fjórða sæti.
—SG