Vísir - 13.03.1978, Qupperneq 13
13
VtSIH'Mánudagur
rsx,_____
13. mars 1978
Stórgóð útfærsla á farangursrými, og meira aðsegja „leynihólf” undir gólfinu.
bíl með þverstæðri vél á markað-
inn.
Fiesta: T-módel nútím-
ans?
Sjaldanhefur nokkur bilafram-
leiðandi lagt eins mikið fé i að
hanna nýjan bil og Ford-verk-
smiðjurnar i hönnun Fiesta.
Verksmiðjurnar hafa aldrei fyrr
framleitt svo litinn bil, og aðeins
einu sinni framleitt framhjóla-
drifinn bil, en það var Ford
Cardinal árið 1962. Verksmiðj-
urnar settu markið mjög hátt við
hönnun Fiesta: þessi bfll átti að
verða framleiddur i mörgum
löndum, beggja vegna Atlants-
hafs, og verða helst mest seldi bill
heims!
Þótt Fiesta hafi fengið mjög
góða dóma hjá bflasérfræðingum
viða um lönd og hafi selst mjög
vel, varð hann þó ekki fyrir valinu
sem bill ársins á sinum tíma, og
þessi bíll hefur einhvern veginn
vakið m inni athygli en efni standa
til.
Hér veldur kannski miklu hin
gifurlega samkeppni i þessum
stærðarflokki og það, hve likir
bilarnir eru. Þannig er Fiesta að-
eins þremur sentimetrum breið-
ari og f jórum sentimetrum styttri
en Fiat 127 og Pegeut 104.
Heldur lágt undir bflinn, einkum
púströrið
Kannski vekur Fiesta einnig
minni athygli vegna þess að útlit-
ið er ekki ósvipað og á Fiat 127,
neðri gluggalinan örlitið sveigð,
sem er dálitið broslegt, þvi að nú
hefur linan verið rétt á fyrir-
myndinni.
Viðhald og viðgerðir
auðveldar
í hönnun Fiesta hefur tvennt
greinilega verið höfuðatriði, ann-
ars vegar að notfæra sér sem best
þá reynslu, sem fengist hefur i
gerð svipaðra bila, og hins vegar
að bæta um betur. Og vissulega
hefur um margt verið bætt um
betur.
Til dæmis hefur í allri hönnun
bilsins verið lögð mikil áhersla á
það, að sem best yrði og auðveld-
ast fyrir hvern sem er að
annast sjálfur einfaldasta viðhald
ómar Ragnarsson
skrifar um bíla:
-------y——
á honum og viðgerðir, og hefur
þetta tekist mjög vel, ef marka
má umsagnir erlendra sérfræð-
inga um það. Gluggarnir á Fiesta
eru óvenjulega stórir og útsýni út
úr honum þvi i einu orði sagt frá-
bært i hvaða átt, sem litið er, auk
þess, sem bíllinn sýnist enn rýmri
en hann raunverulega er. Enn er
eitt atriði, þar sem Ford-hönnuð-
irnir hafa náð góðum árangri, en
það eru stýriseiginleikar. Með
tannstangarstýri og svonefndum
„neikvæðum stýrisradius” hefur
tekist að gera bilinn svo framúr-
skarandi léttan og nákvæman i
stýri, að aðeins Volkswagen Polo
Derby tekur honum fram. Einnig
er billinn ágætlega rásfastur og
betri að þvi leyti en Poló/Derby,
og tiltölulega litt næmur fyrir
hliðarvindi, og eru stýriseigin-
leikar Fiestunnar þvi einn helsti
aðall bilsins, alltfrá þvi að leggja
honum i stæði upp i langferðir á
slæmum vegum. Beygjuhringur-
inn er þar að auki sérlega þröng-
ur, þ.e. billinn leggur mjög vel á,
öllu betur en flestir keppinaut-
arnir.
Töluverð áhersla hefur verið
lögð á að gera girskiptinguna vel
úr garði, og enda þótt hér sé ekki
um Escort-skiptingu að ræða, er
hún þó ekki eins gúmmikennd,
eins og á mörgum keppinautun-
um með þverstæðri vél.
Sem sagt: það er bæði gott og
gaman að aka Fiesta, og ekki
dregur vélin úr þvi, þvi að kraft-
urinn er feikinógur. Billinn er
ekki nema um 16 sekúndur úr
kyrrstöðu upp i 100 kilómetra
hraða, enda þótt hestöflin séu að-
eins 53, og veldur þar að sjálf-
sögðu, hve léttur billinn er, aðeins
um 700 kiló.
Góð nýting rýmis
Þótt Fiesta sé aðeins 3,56 metr-
ar á lengd, er rými ágætt i biln-
um, eins og krafist er nú af bilum
i þessum stærðarflokki, eftir að
Fiat 127 kom mönnum á bragðið
fyrir sjö árum.
Innanbreiddin er allt að fimm
sentimetrum meiri en i Fiat 127
og rými fyrir fjóra stóra menn i
bilnum, en ekki geta allir bilar af
þessari stærð státað af þvi. Miðað
við Fiat 127 sitja allir um tiu
sentimetrum aftar i Fiesta. Betra
fótarými er þvi til hliðanna
frammi i, þar sem hjólskálarnar
að framan skaga ekki eins inn i
farþegarýmið og á Fiat 127.
Hins vegar skaga hjólskálarnar
að aftan nokkuð inn i aftursætið
og þvi þröngt um þrjá rassa þar.
Einnig er farangursrýmið nokkru
minna en á Fiat 127.
Innréttingin virkar nokkuð ein-
föld, dökkleit spjöld i hliðum og
hurðum. En enda þótt ekki sé um
CASITA
fellihýsi í ór
Nú er kominn timi til að tryggja sér Casita fellihýsifyrir sumarið. Það muna allir eftir töfrakerr-
unni á sýningunni Heimilið ’77 sl. hausten þá heillaði hún alla, sem fengu hana augum litiö, þegar
hún var i essinu sinu.
Væntanlegir kaupendur hafi samband við
okkur strax I dag. Munið að Casitaheillar
alla með sinni frábæru, snilldarlegu,
frönsku hugvitsemi. Þér eruð aðeins 30
sekúndur að reisa þak yfir höfuð fjöl-
skyldu yðar með Casita: Casita heillar
alla.
Hallbjörn J. Hjartarson h.f.
Skagaströnd, slmi 95-4629.
að ræða japanskan iburð, venst
þetta umhverfi ágætlega.
Gott er að lesa á mæla, ágætt að
sitja i framsætum og vasar i
hurðum og hólf til þess að leggja
frá sér smáhluti sæmilega Utilat-
in.
Sem áður sagði er ágætt rými i
aftursæti fyrir tvo, en bakið er
dálitið þunnt.
Útfærsla á farangursrýminu er
mjög góð. Billinn er skutbill með
afturhurð og mjög auðvelt að
leggja aftursætið niður og fjar-
lægja gluggahilluna fyrir aftan
það. Svo lumar Fiesta á auka-
geymslu við hliðina á varahjólinu
undir sjálfu gólfi farangurs-
geymslunnar, og þar er mjöggott
að geyma hluti, sem annars væru
á þvælingi i bilnu.
Fiesta er flutt þingað inn frá
Spáni, og er frágarigur að þvi er
virðist ágætur. Hins vegar er vél-
in hin margreynda 1100 rúmsenti-
metra vél úr Escort, sem nýtur
sin sérlega vel I þessum miklu
léttari bil, og má þvi búast við
mjög góðri sparneytni Fiesta,
sem raunar er lika hægt að fá
með 957 ccm vél, sem slær öll met
i sparneytni.
Billinn er mjög hljóðlátur, litið
heyrist i vélinni, og enda þótt
hljóðmælirinn sýndi 82—83 desi-
bela hávaða á grófum malarvegi,
virtist hávaðinn minni en mæl-
ingin sagði til um. Það er þvi ekk-
ert því til fyrirstöðu, að sæmilega
gott sé að ferðast i Fiesta á
malarvegum, svo framarlega, að
þeir séu ekki holóttireða slæmir.
Fjöðrunin ábilnum, sem reynslu-
ekið var, var þokkaleg, dálitið stif
Óvenjugott rými fyrir fætur og
höfuð I aftursæti
að aftan, þegar bíllinn var óhlað-
inn, en ekkert þó til baga, og bill-
inn er algerlega hrekklaus i
beygjum og furðu góður i lausa-
möl, miðað við það að vera á
radial-hjólb örðum.
En fjöðrunin er tvimælalaust of
grunn, þ.e., hún „slær saman” i
slæmum holum. Og lágt er undir
Fiestuna, aðeins 14 sentimetrar
undir púströr á óhlöðnum bil og
16 sentimetrar undir framvagn-
inn, sem er svipað og á Fiat 127.
Felgur eru aðeins 12 tommur,
og billinn þvi ekki til stórræða á
slæmum vegum, nema honum sé
breytt. Sem betur fer er hægt að
koma mun stærri hjólbörðum
undirhann oghækka hann þannig
og ef til vill einnig að setja undir
gorma, en framtak og fé þarf til.
Að lokum: Ford Fiesta er sér-
lega praktiskur og skemmtilegui;
sparneytinn borgar- og bæjar-
bill, sem létt og skemmtilegt er
að aka og býður upp á furðumikið
Einstaklega gott að komast að
öllu og helstu viðgerðir sérlega
auðveldar
farþegarými, miðað við stærð.
I Þýskalandi er Audi 50 að visu
álitinn betri smábill, en vegna
hins háa verðs á þýska markinu,
keppir sá billekkivið Fiesta hér á
landi.
Margir hafa tröllatrú á merk-
inu Ford, og þvi, að átak hins
mikla bilajöfurs hafi getið af sér
gott afkvæmi, þar sem Fiesta er.
En billinn er ekki til stórræða á
slæmum islenskum malarvegum,
nema með breytingum.
Keppinautar Fiesta eru liklega
helstannars vegar iburðarmiklir,
japanskir smábilar, vandaðir, en
þó oft hvorki eins rúmgóðir né
skemmtilegir I akstri. Hins vegar
er svo fyrirmyndin, Fiat 127, sem
nýlega hefur verið endurbættur
og gerður hljóðlátari og bjartari,
þótt ekki nái hann alveg hinum
bestu, nýjustu eftirlikingum i
þessu efni að sögn erlendra bila-
sérfræðinga.
Einnig er Lada skæður keppi-
nautur, sterkbyggðari malar-
vegajálkur, en þyngri i vöfum og
eyðslufrekari. Fleiri mætti nefna,
en enginn ætti að eyða rúmum
tveimur milljónum i bilakaup, án
þess að kynna sér nýfædda
Ford-erfingjann: Ford Fiesta.
PIÚS
Létt, nákvæmt stýri.
Gott rými fyrir far-
þega.
Framhjóladrif.
Stórir gluggar.
Leggur vel á.
Auðvelt að viðhalda og
gera við það helsta.
Góður vélarkraftur og
litil eyðsla.
Mínus
Lágt undir bilinn.
Litil hjól.
Fremur litii farangurs-
geymsla, þegar billinn
er fullsetinn.
Nvr
<s»glæsivagn
l.aprfl