Vísir - 13.03.1978, Side 19
Mánudagur 13. mars 1978
Maðurinn á þak-
inu
(Mannen pa
taket)
Sérstaklega spenn-
andi og mjög vel gerð
ný sænsk kvikmynd i
litum, byggð á hinni
þekktu skáldsögu eftir
Maj Sjöwall og Per
Wahlöö en hún hefur
verið að undanförnu
miðdegissaga út-
varpsins.
Aðalhliitverk: Carl
Gustaf Lindsted, Sven
Wollter.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
Hækkað verð.
28*2-21-40
Mánudagsmyndin
Eglantine
Ljómandi falleg
frönsk litmynd.
Leikstjóri: Jean-
Claude Brialy
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Berlingske Tidende
gaf þessari mynd 5
stjörnur og Ekstra
Bladet 4
m\\
EP 19 OOO
— salurA—
My Fair Lady
Aðeins fáir sýningar-
dagar eftir.
Sýnd kl. 3 — 6,30 — 10
- salur
Eyja Dr. Moreau
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 3,05 — 5,05 —
7,05 — 9 og 11
salur'
Klækir kastala-
þjónsins
Islenskur texti
Bönnuð innan 16 ára
Sýndkl. 3.10,5.10, 7.10,
9.10, 11.10
salur O
Persona
Hin fræga mynd Ingi-
mars Bergmans með
Bibi Anderson og Liv
Ullmann
íslenskur texti
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 3.15, 6, 7, 8.50,
11.05
Crash
Hörkuspennandi ný
bandarisk kvikmynd.
Aðalhlutverk: Jose
Ferrer, Sue Lyon og
John Carradine.
Isl. texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Bönnuð börnum innan
16 ára.
gÆJARBiP
*■■■ Simi .50484
Ný,djörf, itölsk kvik-
mynd um kinversku
Emmanuelle á valdi
tilfinninganna. Enskt
tal, isl. texti. Bönnuð
börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.
'S 1-15-44
Svifdrekasveitin
Æskispennandi ný
bandarisk ævintýra-
mynd um fifldjarfa
björgun fanga, af svif-
drekasveit. Aðalhlut-
verk: James Coburn,
Susannah Yorkog Ro-
bert Culp.
Bönnuð börnum innan
14 ára.
Synd kl. 5, 7 og 9.
"lonabíö
21*3-1 1-82
Gauragangur í
gaggó.
Það var siðasta skóla-
skylduárið .... siðasta
tækifærið til að sleppa
sér lausum.
Leikstjóri: Joseph
Ruben
Aðalhlutverk: Robert
Carradine, Jennifer
Ashley.
Sýnd kl. 5 7 og 9.
hafnarbía
28*16-444
n n se m
óttaðist sólarlag
eða
Hettumorðinginn
Sérlega spennandi ný
bandarisk litmynd
byggð á sönnum at-
burðum.
Islenskur texti
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11
28*1-89-36
Odessaskjölin
tslenskur texti.
Æsispennandi ný
amerisk-ensk stór-
mynd. Aðalhlutverk:
Jon Voigt, Maximilian
Schell, Maria Schell.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10
Bönnuð innan 14 ára.
Ailra siðasta sinn.
Umsjón: Arni Þórarinsson <»g Guðjón Arngrímsson
..... .i. . ............. . -------
1
Nýr, upprennondi
leikstjóri í Sviþjóð:
MARIANNE
AHRNE
Upp á siðkastið, og
þá einkanlega í
tengslum við kvik-
myndahátíðir
norrænu kvik-
my nd.a vikuna í
haust og kvik-
myndahátíðina fyrir
nokkrum vikum,
höfum við fengið að
fylgjast með því
sem er að gerast í
kvikmyndagerð
norrænna nágranna
okkar, t.d. Svía.
Reyndar hafa verið
athyglisverðar
sænskar myndir i
vetur á mánudags-
sýningum
Háskólabiós. Og um
þessar mundir gefst
kostur að sjá
framúrskarandi
sænska mynd í
Austurbæjarbíói þar
sem er Maður uppi á
þaki eftir Bo Wider-
berg, byggða á sögu
Wahlöö og Sjöwalls.
Vonandi verður
framhald á þessu.
Fyrrnefndur Wider-
berg (sem hér er kunn-
astur fyrir Elvira Madi-
gan og Aadalen) varð fyr-
ir þeirri reynslu í vetur,
ásamt öðrum heista kvik-
myndaleikstjóra Svia um
þessar mundir (að frá-
töidum Bergman og Jan
Troell), að biða lægri hlut
fyrir óþekktum ieikstjóra
við verðlaunaafhendingu
fyrir bestu leikstjórn árs-
ins 1977. Það ótti ekki
minni tiðindum sæta að
þessi leikstjóri er kona og
umrædd mynd er hennar
fyrsta kvikmynd. Hvað
sem jafnréttisfólk segir
hefur hlutur kvenleik-
stjóra (ef nota má slikt
orð, sem auðvitað ekki
má) i norrænni kvik-
myndagerð verið harla
litill.
Hún heitir Marianne
Ahrne, er 37 ára og hefur
ofnæmi fyrir þvi hve
fjölmiðlar einblina á kyn-
ferði hennar. ,,Mér finnst
fjölmiðlar einlægt velta
sér upp úr þvi að ég er
kona”, sagði hún nýlega i
blaðaviðtali. ,,Þeir hafa
meiri áhuga á kynferði
minu en verkum minum,
og reyna að gera úr þvi
sensasjón. Ég reyni að
skrifa MANNESKJULEG
hlutverk fyrir
MANNESKJUR, sem ég
treysti til að leika, þau
burtséð frá kynferði
þeirra”.
Myndin hennar sem sló
i gegn heitir „Langt borta
och nara” (Langt i burtu
og nálægt), og segir frá
ungri stúlku sem kemur
til starfa i geðveikraspit-
ala og verður fyrir
miklum áhrifum af kynn-
um sinum við ungan
mann sem hefur hætt að
tala. Milli þeirra tekst
sérstætt s imband. ^Það
var lifsnauðsynlegt fyrir
mig að gera þessa
mynd”, seg r Marianne
Ahrne.
Aður en hún gerði sina
fyrstu kvikmynd, 37 ára
að aldri, fékkst hún við
sitt af hverju. Hún stund-
aði háskólanám heima og
erlendis, var i stúdenta-
leikhúsi háskólans i
Lundi, flutti fyrirlestra I
Bandarikjunum, var leik-
ari i Frakklandi, tamdi
hesta I Danmörku, hefur
skrifað kvikmyndagagn-
rýni og bókmenntagagn-
rýni, var hippi i San
Francisco o.s.frv. Hún
telur það mikið lán að hún
skyldi ekki fara út i kvik-
myndagerð fyrr en nú,
þvi fyrr hefði hún ekki
haft nægilegan þroska til
að gera marktæka
Og nú hefur hún fengið
tækifæri til að gera eina
kvikmynd enn til að
sanna að frumraunin var
ekki bara slembilukka.
Sú kvikmynd heitir
„Múrar frelsisins”. En
hvað gerir hún ef hún tap-
ar baráttunni i hinni
miklu samkeppni sem
rikir I kvikmyndagerð i
Sviþjóð^sem viðast ann-
ars st^ar?
„Þá myndi ég reyna að
skrifa skáldsögu i stað-
inn”. segir hún. „Það er
ekkert höfuðatriði fyrir
inig að gera kvikmyndir
hvað sem það kostar.
Miklu fremur vil ég reyna
að leita svara við spurn-
ingum og reyna að fá fólk
til að uppgötva þá mögu-
leika sem þeir ráða yfir.
Minn miðill i þessu
augnamiði er kvikmynd-
in, en hún er ekkert tak-
mark i sjálfu sér. Ef ég
gæti ekki haldið áfram að
gera kvikmyndir þá
myndi ég vissulega
harma það, en samt leita
að öðrum miðli fyrir
sama efni”. , —AÞ
23
€»móðleikhúsib
ÍTl 1-200
STALIN ER EKKI
HÉR
fimmtudag kl. 20
TÝNDA TESKEIÐIN
föstudag kl. 20
Næst siðasta sinn.
Litla sviðið:
FRÖKEN MARGRÉT
þriðjudag kl. 20.30
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13.15-20. .
Simi 1-1200,
GRÆNJAXLAR
á Kjarvalsstöðum
þriðjudag kl. 20 og 22.
Allra siðustu sýningar
á Kjarvalsstöðum.
Þ.Jónsson&Co.
SKEIFUNNI 17 REYKJAVIK
SIMAR: 84515/ 84516
BELLA
Oh. Loksins skrifar
maður villulaust bréf og i
stað þess að senda það,
rammar forstjórinn það
inn og setur það upp á
vegg.
Visir f. 65 árum
13. mars 1913.
ÚR BÆNUM
Alþýðufyrirlest-
ur heidur sjera
Meulenberg I Iðnaðar-
mannahúsinu á
sunnudaginn kl. 15
siðd. Efnið er bibliu-
rýningin og mun
marga fýsa að heyra
til hans, þar sem hann
er kunnur að vandaðri
rökfærslu.