Vísir - 13.03.1978, Síða 25
VISIR Mánudagur 13. mars 1978
29
Verslunar-
fulltrúi við
sendiróðið
í París?
,,Það er i undirbúningi að ráða
verslunarfulltrúa að sendiráði
okkar iParis, en engar ákvarðan-
ir hafa hins vegar verið teknar
þar að lútandi”, sagði Hendrik
Sv. Björnsson, ráðuneytisstjóri i
utanrikisráðuneytinu, við VIsi i
morgun.
í umræðum um markaðsmál á
Búnaðarþingi var frá þvi skýrt,
að utanrikisráðuneytið hefði hug
á að ráða slíkan versiunarfulltr.
til að greiða fyrir viðskiptum i
Mið- og Suður-Evrópu, og væri i
þvi sambandi von til að hægt væri
að selja kjöt á hagstæðu verði til
Frakklands.
—ESJ.
ÞRÍR BÓKAÚTGEF-
ENDUR HEIÐRAÐIR
Þrir kunnir bókaútgefendur
hafa verið kjörnir heiðursfélagar
Félags islenskra bókaútgefenda
og afhenti örlygur Hálfdánarson,
formaður félagsins, þeim
heiðursskjölin að viðstaddri
stjórn féiagsins og framkvæmda-
stjóra.
Þessir útgefendur eru Ragnar
Jónsson, bókaútgefandi, Ragnar
Jónsson, hæstaréttarlögmaður,
og Hilmar Ó. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri.
Þáttur Ragnars Jónssonar i
íslenskri bókaútgáfu er alþjóð
kunnur. Forlag hans, Helgafell,
hefur um áratuga skeið verið i
fremstu röð islenskra bókafor-
laaa og hefur annast útgáfu
flestra verka fremstu rithöfunda
þjóðarinnar um árabil.
Ragnar Jónsson, hrl., rak um
alllangt skeið umfangsmikla og
merka bókaútgáfu og var virkur
félagi i Bóksalafélagi íslands,
eins og Félag isl. bókaútgefenda
hét á þeim árum, sat lengi i stjórn
þess og gegndi formennsku i þvi
1952—1957. Atti hann mikinn þátt i
að móta störf félagsins og breyta
lögum þess i samræmi við kröfur
timans.
Hilmar Ó. Sigurðsson var um
aldarfjórðungsskeið starfandi i
félaginu og gjaldkeri þess i tiu ár.
Vann hann félaginu i þvi starfi
mikið gagn og átti hvað mestan
þátt i þvi að félagið festi kaup á
húsnæði fyrir starfsemi sina, og á
það án efa eftir að verða félaginu
traustur bakhjarl i framtiðinni.
Bókaútgefendurnir með heiðursskjölin: Hilmar Ó. Sigurðsson, Ragnar
Jónsson i Smára og Ragnar Jónsson hrl.
Nemendaleikhús 4-S, L.í.
frumsýnir leikritið „FANSJEN” eða
„UMSKIPTIN”
eftir David Iiare, i Lindarbæ mánudaginn 13. mars kl.
20.30. Uppselt.
2. sýning miðvikudag 15. mars kl. 20.30
3. sýning fimmtudag 16. mars kl. 20.30
4. sýning föstudag 17. mars kl. 20.30.
UTBOÐ
íslenska járnblendifélagið h.f.
óskar eftir tilboðum i byggingu 600 fer-
metra baðhúss á Grundartanga. Verkið
nær til jarðvinnu, uppsteypu og alls loka-
frágangs byggingarinnar og skal þvi lokið
fyrir 1. nóvember 1978.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verk-
fræðistofunni h/f, Fellsmúla 26, Reykja-
vik, gegn fimmtíu þúsund króna skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á föstudag-
inn 31. mars 1978.
Almenna verkfrœðistofan h/f
Kauptilboð óskast i eftirtaldar vinnuvél-
ar:
JCB-4C Traktorsgröfu árgerð 1965, á
Reyðarfirði, gangfæra.
JCB-4C Traktorsgröfu árgerð 1965, á ísa-
firði, ógangfæra.
2 Le Tourneau — Skófluvagna (Scraper)
10 Cu.Yd, árgerð 1963/i Borgarnesi.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá
Véladeild Vegagerðar rikisins, Borgar-
túni 5, Reykjavik, simi 21000, og hjá verk-
stjórum Véladeildar á ofangreindum stöð-
um.
Tilboðum sé skilað til Innkaupastofnunar
rikisins, Borgartúni 7, Reykjavik, fyrir 21.
mars n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Vörumarkaðurinn hf.
^^rmúlM^^^im^6n7
Electrolux
uux ritou x » #/.?/;
MOTTAITUX ÍS í ÍMÓÐ
1 árs
ábyrgö
Electrolux
þjónusta.
Hagstæð
greiðslu-
kjör.
Electrolux þv.ottavélin er til á lager
á þessum útsölustöðum:
AKRANES: Þóröur Hjálmarsson,
BORGARNES: Kf. Borgfiróinga,
PATREKSFJÖRÐUR: Baldvin Kristjánsson
ISAFJÖRÐUR: Straumur hf.,
BOLUNGARVIK: Jón Fr Einarsson,
BLONDUÓS: Kf. Húnvetninga,
SIGLUFJORÐUR: Gestur Fanndal,
ÖLAFSFJORÐUR: Raftækjavinnustofan sf.,
AKUREYRl: Akurvík hf.,
HÚSAVIK: Grlmur og Arni,
VOPNAFJORÐUR: Kf. Vopnfirftinga,
EGILSSTAÐIR: Kf. Héraftsbúa,
ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfirftinga
HOFN : KASK,
ÞYKKVIBÆR: Friftrik Friftriksson,
VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf.,
KEFLAVIK: Stapafell hf
• Sérstök stilling fyrir straufri efni — auðveldari notkun.
• BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott,
• Ryöfritt stál í tromlu og vatnsbelg —lengri endingartimi.
• 3falt öryggi á hurð — örugg fyrir börn.
• 3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni.
• Lósigti að framan — auövelt að hreinsa — útilokar bilanir.
• Vinduhraöi 520 snún/mín — auöveld eftirmeðferð þvottar.
• Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur.
• 60cm breið, 55 cm djúp, 85cm há.
• Islenskur leiöarvisir fylgir hverri vél.