Vísir - 08.07.1978, Síða 9
9
VISIR Laugardagur í. júli 1978
SPURT A
KRQSSGffTftN
GOTUNNI
Hvert fer sólin þegar hún sést ekki á himn-
um?
Elsa Nilsen, fjögurra
ára.
Hún er bara heima. Eg veit aö
sólin á heima I Sólheimum 35, þvi
aö mér hefur veriö sagt þaö. A
nóttunni fer hún þangaö og sefur,
en þegar rignir er hún bara heima
og leikur sér. Nei, annars.
Mamma hefur sagt mér aö hún
fari bak viö skýin þegar rigningin
kemur. Ég skil samt alls ekki af
hverju hún er aö fara aö heiman
frá sér i hellirigningu og á bak viö
eitthvaö ský. Mér. finnst alveg
ferlega leiöinlegt i rigningu. Ég
gæti kannski farið I Sólheimana
og vakiö sólina, en ég held bara
ég rati ekki.
Hafþór Árnason, fjög-
urra ára
Mamma sagöi mér, aö i
rigningu færi sólin bak við ský, og
ég hugsa aö þaö sé alveg satt. Ég
hef eiginlega litiö hugsaö um þaö
samt, svo aö ég er ekki alveg viss.
Ég held aö þetta sé bara svona, aö
á veturna fer hún bak viö ský, og
biður þangað til sumariö kemur. I
rigningu felur hún sig lika bak viö
ský.
Guðmundur Guðjóns-
son, fjögurra ára.
Sólin er núna á bak viö skýin, og
verður þar þangað til sumariö
kemur á morgun. Sumarið hlýtur
að koma á morgun þvi aö ég er
orðinn svo leiður á rigningunni.
Það er svo hryllilega kalt, og mér
finnst erfitt að vera úti i svona
veðri. Ég ætla líka aö hjálpa afa
minum að mála húsiö hans að ut-
an I sumar, en þaö er varla hægt
ef rigningin heldur áfram. A nótt-
unni fer sólin auðvitaö niöur á
jörðina og sofnar heima hjá sér.
Ég held ábyggilega að hún eigi
heima uppi I sveit, llklega fyrir
norðan af þvi aö þar er alltaf sól.
Elisabet Urbacic, fimm
ára
A nóttinni og á veturna fer hún
til annarra landa. Liklega fer hún
til Kina, þvi aö ég heyröi ein-
hverntlma aö það væri dagur I
Klna þegar nótt er hér, og sumar
þegar vetur er á tslandi. Þegar er
bara rigning er hún bak viö skýin.
Þau eru svo þykk, aö hún getur
alls ekki skinið I gegnum þau. Ég
fattaði þetta sjálf einhverntima,
en ég man ekki hvernig. Mig
minnir aö ég hafi séö hana gægj-
ast aðeins framundan skýi fyrir
nokkrum árum.
MJOLKURDRYKK-
IR „SHAKE"
Hér eru nokkrir hressandi og
ljúffengir drykkir á góöviöris-
dögum. Hver uppskrift er fyrir
2.
Hræriö eöa hristið hvern
drykk saman. Best er aö nota
sérstakan blandara (mixer)
Einnig má nota venjulegt hristi-
glas eða hljólþeytara eða
gormþeytara.
Banana-shake:
1- 2 bananar
1 msk sykur
1 msk sitrónusafi
3-4 dl isköld mjólk
2- 3 msk vanilluis
Merjið bananana meö gaffli ef
þið notiö ekki blandara (mixer)
Ananas-shake:
1 dl saxaður ananas
1 msk sitrónusafi
rifiö hýöi af hálfri sitrónu
4 dl köld mjólk
3-4 msk vanilluls
Mokka-shake
4 dl mjólk
1-2 tesk duftkaffi
2 tesk sykur
3-4 msk súkkulaðiis
Sitrónushake:
4 dl miólk
3/4 dl sitrónusafi
1—2 msk. sykur
4 msk vanilluls
Jaröarberja-shake
4 dl mjólk
1-2 msk jarðarberjasulta
4 msk jaröarberjaís
Súkkulaði-shake
4 dl mjólk
4 tesk kakó
2 tesk sykur
4 msk vanilluls
Sólberja-shake
4 dl mjólk
1 dl sólberjasaft
4 msk vanilluis
Aprikósu-shake:
4 dl mjólk
1-2 msk aprikósumauk
1/2-1 msk sltrónusafi
4 msk vanillu is
Notið einungis iskalda mjólk i
drykkina. Beriðdrykkinafram i
háum glösum. Setjiö i þau
sogrör eöa skeiöar