Vísir - 08.07.1978, Qupperneq 12
12
Laugardagur 8. júli 1978 vism
Undanfarnar þrjár vikur hefur sænsk/islenska
popphijómsveitin Vikivaki dvalist hér á landi og
leíkið vítt og breitt. Er þetta í þriðja skipti sem þeir
heimsækja fósturlandið. Hljómsveitina skipa þeir
Hans, Jón og Gunnar Gíslasynir (allt bræður) og
Kenny Olsson. Einnig er í för með þeim stóri bróðir,
Björn Gíslason.
Vikivaki er stöðugt að þreifa fyrir sér á heims-
markaðnum og hefur orðið nokkuð ágengt. T.d.
hafa þeir tvisvar sinnum átt lög sem hafa náð langt
i European Song Contest: fyrra lagið hafnaði í
f jórða sæti og það síðara í öðru sæti. Og um þessar
mundir er ýmislegt á döfinni s.s. fram kemur í
eftirfarandi viðtali sem Helgarblaðið átti við þá á
dögunum.
Skólahljómsveit i byrjun
— Hvenær hóf Vikivaki feril
sinn?
Jón: „Við fluttum frá íslandi til
Sviþjóðar árið 1966 og það sama
ár byrjuðum við Hans að leika
meö skólahljómsveit. Tveimur
árum seinna vorum við farnir að
leika á klúbbum i Gautaborg og
uppfrá þvi urðu umsvifin meiri og
við fórum að spila viðsvegar um
Sviþjóð.”
Hans: „Við gáfum svo út
tveggja laga plötu ’73, en hún
gekk ekkert. Ari seinna komum
viö i fyrsta skipti til að spila hér á
landi. En áður en við lögðum af
stað ákváðum við að taka upp
nokkur lög og hugsuðum okkur að
fá þau leikin i Rikisútvarpinu. Sá
sem stjórnaði upptökunni varð
hrifinn af þvi sem við vorum að
gera og sendi nokkur lög til Leifs
nokkurs Carlquist sem starfar
hjá Polydor i Stokkhólmi. Hann
hafði svo samband við okkur og
kvaðst hafa mikinn áhuga á að
gera meö okkur plötu Þessi plata
var siöan tekin upp um haustið
eftir að við komum úr tslands-
ferðinni. Ber hún nafnið Olds-
mobile og kom út voriö ’75. Og eitt
lag af þeirri plötu, „Didn’t I”,
komst i fjórða sæti i European
Song Contest, sem er keppni sem
fer fram einu sinni i mánuði. Þar
er sent i beinni útsendingu til
flestra landa Evrópu og fer kosn-
ingin þannig fram aö i hverju
landi er u.þ.b. 100 manns saman-
komnir i útvarpssal og greiða lög-
unum atkvæði. Um svipað leyti
komum við fram á heljarmiklum
hljómleikum með hljómsveitinni
Black Sabbat i iþróttahöll i
Gautaborg.”
I Englandi
— Þið hafið farið til Englands
að spila, ekki satt?
Hans: „Jú, viö fórum um vorið
’76 i fyrsta sinn til Englands og
vorum þar i þrjár vikur. Þar lék-
um viö i Marquee, Speakeasy og
fleiri Lundúnaklúbbum auk þess
sem við ferðuöumst talsvert um
S-England. Þetta var mjög
skemmtileg ferö og við fengum
alls staðar góðar móttökur. Sér-
staklega var gaman að spila i
menntaskólunum.”
Jón: „Um leið og við fórum
bessa ferö gaf Sonet, sem er
sænskt/enskt hljómplötuíyrir-
tæki, út tveggja laga plötu með
okkur og var hún eitthvað spiluð i
útvarpinu, en gerði samt litiö,
enda erfitt að gnæfa yfir fjöldann
i Englandi.”
Meö hljóðstjóra ABBA
— Hvað geröuð þið svo eftir
Englandsferðina?
Jón: „Þá fórum við aö vinna og
semja íög á nýja plötu sem við
tókum upp um haustið. Hún heitir
Cruisin og kom út vorið ’77”.
Björn: „Aður en hún kom var
gefin út með Vikivaka litil plata
meö laginu „Crazy days” og það
„Islendingar
hafa mikið vit
á tónlist"
— Roett
við
SOMIsk-
íslensku
hljðm-
sveitina
Vikivaka
Viðtalt Páll Pálssen
Myndir Jens Alexandersson
erfitt að gnæfa yfir fjöldann i Englandi”.
„..næsta plata okkar veröur að vera lfkleg til vinsæida
á heimsmarkaði”.