Vísir - 08.07.1978, Síða 13
Laugardagur 8. júli 1978
Vikivaki hefur tvisvar átt lög sem hafa náö langt í European Song Contest
[p> f 4- wBkSí' I
b w- * m
komst i annað sæti vinsældalista
European Song Contest. Það lag
fékk einnig góða dóma i popprit-
inu New Musical Express.”
Hans: „Sá sem stjórnaði
upptöku Cruisin var Clais af
Gejerstan, sem er hljóðstjóri
ABBA á hljómleikaferðalögum.”
Björn: „Hann er þekktur fyrir
ýmislegt i Sviþjóð. T.d. spilar
hann sjálfur inná hljómplötur,
stjórnar poppþáttum i sjónvarpi
og útvarpi auk þess sem hann er
vinsæll upptökustjórnandi.”
— Hvernig gekk svo þessi
plata?
Jón: „Hún seldist mun betur en
sú fyrsta.”
Björn: „Hún var stórt skref
frammávið fyrirhljómsveitina en
eins og Jón segir engin metsölu-
plata.”
Enn í Englandi
Jón: „Vorið '77 förum við svo
aftur til Englands. Sú ferð var
mjög svipuð hinni fyrstu, en stóð
viku lengur. Þá var Kenny kom-
inn til sögunnar. Gunni byrjaði
hinsvegar ’75 sem bassaleikari og
hóf að leika á gitar þegar Kenny
gekk i hljómsveitina.”
Hans: „Þegar við lékum á
Speakeasy i þessari ferð, kom
eigandi staðarins að máli við okk-
ur og spurði hvort nokkrir strákar
mættu ekki „jamma” meö okkur.
Við játtum þvi. Þá kom i ljós að
þessir „strákar” voru ekki ófræg-
ari menn en Jimmy Bain sem var
i hljómsveit Ritchie Blackmore,
Rainbow, Brian Robertson gitar-
leikari Thin Lizzy, Gene Parsons
sem var i Byrds. Við
„jömmuðum” með þeim hálfa
nóttina. Eftir þessa ferð spiluð-
um við vitt og breitt um Sviþjóð
og vorum með hljómplötu i sigti,
en við töldum okkur ekki vera
með nógu mörg góð lög i takinu
þá stundina, þvi að næsta plata
okkar verður að vera likleg til
vinsælda á heimsmarkaði.”
CBS
— Hvernig komst hljómsveitin
á samning hjá CBS?
Björn: „Þegar Vikivaki var að
hljóðrita „Cruisin” heima i
KungSlv i Sviþjóö, fór Lengstrand
hjá Bohusfyrirtækinu með nokkur
lög til Cannes á hina kunnu
Midem-ráðstefnu. Þar voru mörg
fyrirtæki sem sýndu áhuga á
Vikivaka og þetta endaði þannig
að það var geröur samningur við
CBS sem gaf svo plötuna út. En i
haust ætlum við að segja þessum
samningi upp þar sem hann bind-
ur okkur of mikið.”
Til Japan?
— Björn, hvað er að frétta af
þinum sólóferli?
Björn: „Ég er um þessar
mundir aö ljúka við sólóplötu sem
áformað er aö komi út i ágúst. Aö
þvi loknu er ætlunin að við gerum
plötu saman. Maður að nafni
Roland Ferneborg, sem hefur
mikil sambönd útumallan heim,
vill gefa plötuna mina út i Japan
og sennilega i Frakklandi lika. t
kjölfar þess höfum viö i hyggju að
fara til Japan i vetur og reyna
einhverjar nýjar leiðir til að
koma okkur á framfæri. Þess
vegna er einmitt ætlunin að rifta
samningnum við CBS, þvi að
þessi stóru fyrirtæki eru alltaf svo
treg og hægfara og það er slæmt
að verða innlyksa hjá þeim. Það
er miklu réttara að hljóðrita plöt-
ur hjá litlu fyrirtæki en láta siðan
þau stóru sjá um dreifinguna og
sá háttur er raunar orðinn mjög
algengur.”
Ekki eingöngu spila-
mennska
— Hafiö þið getaö lifað sæmi-
lega á spilamennskunni?
Björn: „Ég hef ekki lifað á þvi
að spila. Ég hef verið i skóla. Nú,
Gunni var að klára Menritó og
Kenny var i lýðháskóla, þannig að
það hefur nú verið gert ýmislegt
með spileriinu. En núna stendur
hinsvegar til að viö snúum okkur
eingöngu að tónlistinni. Viö von-
um að eitthvað gerist i haust. 1
gegnum Roland ættum við að
komast til ýmissa landa. Og það
er nú þegar ákveöið að við mun-
um spila á hljómleikum meö Dr.
Hook&The Medicine Show i haust
og það kemur jafnvel til greina að
viö förum með þeim i hljómleika-
ferðalag um Skandinaviu.”
íslendingar hlusta
— Nú, hafið þið leikið viða, —
hvernig finnst ykkur islenskir
áheyrendur vera i samanburði
við aðrar þjóðir?
Hans: „Mér finnst Islendingar
hafa mikið vit á tónlist og þeir
fylgjast vel með þvi sem er aö
gerast i þeim efnum.”
Björn: „Fólkið hérna hlustar
meira á það sem hljómsveitin
hefur fram að færa, en i Sviþjóð
vill það bara dansa.”
Hans: „Ja, hér dansar fólkið nú
mikið úti á landsbyggðinni.”
— En hvað viljið þið segja um
islenska vinmenningu?
Björn: „Fólkið hér drekkur allt
öðruvisi en i Sviþjóð. Það er að
visu mikið drukkið i Sviþjóð, en
ekki eins sterkt og mikið i einu.”
Hans: „Þar eru allir i bjórn-
um.”
— Og böllin — er mikill munur
að leika á islensku og sænsku
balli?
Jón: ,,Við spilum nú ekki mikið
á böllum i Sviþjóö. Þar er meira
um diskótek og við spilum á þeim
sem skemmtiatriði, „Scene
show” eins og það kallast. Það
eru auðvitað til danshljómsveitir
i Sviþjóð, en þær eru á dálitið
annarri bylgjulengd en viö.”
Björn: „Mér finnst nú fólk á
sænskum klúbbum yfirhöfuö
daufara og áhugalausara gagn-
vart þvi.sem er að gerast i kring-
um það en hér. Hér sýnir fólkið
t.d. mikinn áhuga þegar ný
hljómsveit er að koma fram.
Jón: „Mér hefur fundist, af
þeim stöðum sem ég hef spilað á,
vera best að spila i Englandi. Þar
hefði maður nú kannski haldiö aö
erfiðast væri að koma fram þvi
þar er úrvalið svo mikið en þar er
fólkið mjög jákvætt á tónlist og i
rauninnier það mjög svipað hér á
Islandi.”
Islenskar hljómsveitir
— Hvað finnst ykkur um
islenskar hljómsveitir og hljóð-
færaleikara, — eiga þeir erindi á
heimsmarkaðinn?
Björn: „Mér finnst hér vera
margir mjög góðir tónlistarmenn
en af einhverjum ástæðum — ég
veit ekki hverjum — þá spila þeir
bara ekki saman, heldur dreifast
á milli hljómsveita. Fólksfæðin
hér hefur örugglega mikið að
segja, þvi hún krefst þess að
hljómsveitirnar skipti stöðugt um
andlit. Hér rikir mikið skipulags-
leysi I þessum efnum.”
Hans: „Maður heyrir oft i
Sviþjóð fólk segja aö það hafi
heyrt góða tónlistá Islandi, ef það
hefur heimsótt landið.”
Björn: „Eins og ég segi, þá eru
hér tvimælalaust hæfileikar og
gæði fyrir hendi, en það sem
vantarer góð hljómsveit,sem hef-
ur fengið góðan tima til að æfa
saman. Og ef ég á að nefna ein-
stakling, þá á Gunnar Þórðarson.
sem lagasmiöur og gitarleikari
að minum dómi mikla framtið
fyrir sér.”
Island á iandakorti
poppheimsins
— Hvernig er þaö, —■ eruð þið
alltaf kynntir sem sænsk/islenska
hljómsveitin Vikivaki?
Björn: „Já, þeir vilja gjarnan
gera það, bæði i Sviþjóð og
Englandi. Það þykir svo sérstakt
að heyra getið um hljómsveit
ættaða frá Islandi, kannski svipað
þvi og og Grænlendingum þætti
skritið að heyra um snjóhús i
Sahara-eyðimörkinni.”
— Að lokum, — eruð þið bjart-
sýnir á framtiðina?
Björn: „Já, við bindum miklar
vonir við samstarf okkar og
Rolands eins og fram kom hér
áðan. Við höfum núna undan-
farna daga verið aö gera prufu-
upptökur i Hljóðrita og vonum aö
þar komi okkur að gagni við að fá
góðan samning.
Það má gjarna koma fram að
okkur likar mjög vel hérna og
gætum vel hugsað okkur að gera
Island að höfuðbækistöðvum okk-
ar. Við bræðurnir erum jú allir
islenskir rikisborgarar og svo er
mjög gott aö prófa sig áfram
hérna við að finna hvernig íólki
likar iögin okkar þvi það er mjög
gagnrýnið. Það veit hvað þaö
vill.” —PP
^Skallinn,
-þaócr
staðurínn
Ótal tegundir af ís. Gamaldags ís,
shake og banana-split.
Mjólkurís meó súkkulaöi og hnetum.
Ummm
Gamaldags ís
Lækjargötu 8
Reykjavikurvegi 60 Hf.