Vísir - 08.07.1978, Síða 26
26
Laugardagur 8. júli 1978 VISIR
DAUÐINN OG
DJÖFULLINN
BÝR (
ÚTSUÐRI EN
LÍFIÐ OG
FÖGNUÐUR-
INN f
LANDNORÐRI
Texti:
Omar Þ.
Halldórzzon
Myndir:
Gunnar
Sigurgeirsson
Seinni hálfleikur viðtals við Guðmund
Daníelsson rithöfund á Selfossi
Viö Gunnar Ijósmyndari komum okkur vel fyrir í
sófanum i vinnuherbergi skáldsins. Ég dró upp skrif-
færin meðan Ijósmyndarinn skrúfaði saman tól sínog
beindi þeim að skotmarkinu. Það var auðséð að
Guðmundi likaði ekki meir en svo við þetta glampandi
hlaup myndavélarinnar og setti upp alvörusvip. Fyrri
hálfleik í þessu viðtali okkar var lokið og seinni hálf-
leikur að hefjast. Staðan í leikhléi nokkuð óljós og
aldrei að vita nema nýjum leikaðferðum yrði beitt.
Nei annars. Líklega var mitt hlutverk í leiknum ekki
annað en að þegja en fá þó viðmælandann til að leysa
frá skjóðunni. Kannski hafði ég þó byrjað of snemma
að þegja, a.m.k. gleymdist að bera upp spurningu svo
skáldið svaraði i sömu mynt og þagði sem fastast.
Ætluöum við ekki að ræða um lífsviðhorfin? spurði ég
loks en sást yfir að svona byrjar enginn blaðamaður
með sjálfsvirðingu viðtal. Ég held það sé best að þú
ráðir ferðinni/ bætti ég við og kórónaði skömmina.
Guðmundur hló og minnti mig á að ég hefði beðið um
þetta viðtal en ekki hann. Það væri mitt að spyrja.
Gáfusvipurinn sem ég hafði sett upp nokkru áður var
nú týndur eftir alla þessa byrjunarörðugleika. Það
var jafnvel dautt í vindlinum. En Guðmundur leysti úr
þessum vanda, iét sér nægja óburðuga spurningu
mína og flautaði til leiks.
Heilbrigö skynsemi
innan gæsalappa
„Ég skal segja þér að það þýðir
ekki fyrir mig að fara að tala eitt-
hvert spekimál, Það er annað
sem er miklu sterkara en öll vit
mannsins. Eitthvert afl sem um-
lykur mann, kannski erfðirnar,
þaö sem liggur i blóðinu og
kynslóöirnar á bak við mann sem
eru að verki i manni og ekki er
hægt aö komast frá. Heilbrigö
skynsemi er afstætt hugtak og
þótt þaö sé ijótt til frásagnar þá
er hún fjandmaöur manns.
Heilbrigð skynsemi, — þú mátt
gjarna hafa það innan gæsalappa
— er bara þetta sem maður hefur
lesiö, uppeldi og tiðarandinn. Aö
láta stjórnast af þessu er aö vera
rekald á lifsins ólgusjó. Hitt afliö,
það sem rnaður er, það er það
sem skiptir máli. Og þaö að hlýöa
þvi og komast að þvi hvað maður
er.
Ég geri ráð fyrir þvi að þú
hugsir sem svo: Nú, hann er
forlagatrúar. Heldur aö örlaga-
disirnar hafi ákveðið honum þetta
hlutskifti og vilji lúta þvi. Já og
þetta er aö nokkru leyti rétt. Ég
neyðist til að taka tillit til
heilbrigðrarskynsemi þótt hún sé
algjör fjandmaöur mannsins. Þá
á ég viö eðli hans, en þó fyrst og
fremst skáldskap. Heilbrigö
skynsemi i skáldskap er það að
búa til markaðsvöru, vöru sem
hægt er að selja. Og til að hægt sé
að selja verða að vera neytendur.
Til að þeir kaupi þarf varan að
falla þeim i geö, annars vilja þeir
ekki sjá hana. Æskilegast væri
það fyrir skáld að yrkja ekki
fyrir neytendur heldur aðeins
fyrir sjálfan sig og kannski allra
nánustu vinu. Ég held að það yrði
betri skáldskapur. Já, þaö væri
æskilegast aö geta leyft sér aö
yrkja með það fyrir augum að
loka handritiö niöur þegar maður
hefur gengið frá þvi og geyma
það. Þá gæti fundist góður skáld-
skapur í einni eöa tveimur skúff-
um hér og þar.
Náttúran bindur mann
— Viltu meina það að eðli
mannsins og heilbrigö skynsemi
sé eitthvað ósættanlegt?
„Það er hugsanlegt að það
veröi engir árekstrar á milli þess-
ara andstæðu afla i fólki. Sumir
eru svo hversdagslegir og veröa
aldrei varir við neitt sérstakt i
eðli sinu. Eru verksmiðjuvara
eins og allir hlutir i dag. Þessi
skyrta sem ég er i er eins og
milljón aðrar skyrtur og það er
heilbrigð skynsemi aö búa til
svona skyrtur. Það er lika
heilbrigð skynsemi aö afla sér
tekna sem nægja manni til viður-
væris. En viöleitni i þá átt getur
lika verið óvinur þess sem maöur
kysi sér til handa. Ég veit ekki
hvort ég er með þessu farinn að
boöa trú á eitthvaö súperfrelsi.
Þó ég segi þetta er mér alveg ljóst
aö við erum ekki óbundin. Við
erum rigbundin án þess að vita
það frá kyni til kyns og það er
náttúran sem bindur mann og
setur reglurnar.”
„Sólarhringurinn er 24 klukku-
stundir. Ein nótt og einn dagur.
Svo er annar hringur, hringur
ársins. Þannig er að timi er allur i
afmörkuðum hringjum. Arið i ár,
mér finnst það ekki endilega vera
árið 1978. Bara árið eitt og árið á
undan þvi lika árið eitt. Þegar ég
var að alast upp fannst mér allt
ganga út á þennan hring. Maður
vissi að i júnimánuði kemur sólin
upp klukkan fjögur. Svo liöa tvær
stundir, klukkan verður sex.
Þegar sólin var yfir Dagmála-
vörðu var klukkan tiu, yfir
Hádegisfelli klukkan tólf. Yfir
Miðmundarfelli var hún klukkan
tvö, yfir Nónhólum klukkan þrjú
og svo framv. Allt var mælt i
eyktum. Þær eru átta, þrjár
stundir hver. Þar sem forsjónin
bjó ekki til eyktarmörk hlóðu
menn vörður. Svo mikil áhrif
hafði gangur sólarinnar á lif
manna. Ekki sist á lif foreldra
minna sem ekkert áttu úrið seint
á öldinni sem leið. Sem krakki
stóð mamma á engjunum i Mið-
krika i Hvolhreppi og vissi að
þegar skuggi hennar stefndi á
Núpsfjall i Fljótshlið, þá var
miðaftann. Sól i vestri. Til að
vera alveg viss mældi hún
skuggann með hrifuskafti. Þegar
hann var þrjár álnir og stefndi á
Núpsfjall þá var klukkan sex.
Fólk gat alltaf vitað nærri upp á
minútu hvað klukkan var ef sást
til sólar.”
Dauöinn og djöf ullinn
i útsuðri
„Attir eru rikur þáttur i mér og
tákna raunverulega eitthvað i
minum huga. Hver átt hefur sinn
sérstaka geðblæ i för með sér. Ég
fór að skoða hvernig þetta kemur
út i bókunum minum og sá það að
öll min þrá stefnir i norðaustur.
En ef einhver hverfur fyrir fullt
og allt i bókunum eða einhver
ólukka er á ferð þá kemur hún
eða fer i útsuður. Eins og dauðinn
og djöfullinn byggi i útsuðri en lif-
iö og fögnuðurinn i landnorðri.”
— Kanntu einhverja skýringu á
þessu?
„Ég kann ekki viðhlýtandi
skýtingu á þessu en þó eina sem
er nothæf fyrir sjáifan mig. Hæst
kemst sólin á himininn og
lengstur er hennar gangur um
Jónsmessuleytið. Þá er lifgefandi
eldur hennar og varmi sterk-
astur og þá ris hún i landnoröri.
Ef við litum á dýrahringinn —
stjörnumerkin — þá er krabba-
merki i landnorðri. Andstæðan er
i útsuðri og þar rikir steingeitin.
Þaö er um jólaleytið og þá er
gangur sólarinnar stystur, hún ris
seint og sest snemma. Eftir
gamalli trú endaði árið þar.
Heiðnir forfeður okkar trúðu þvi
að fimm daga um sólstöður stæði
timinn kyrr. Það var þannig til-
komið að þeir skiftu árinu i tólf
þrjátiu daga timabil og þá voru
fimm dagar afgangs. A jólum
kvöddu þeir gamla árið meö eldi.
Eldi já. Eðlisþættir lifsins voru að
þeirra mati eldur loft og vatn og
efnafræðilega er ekki hægt að
hrekja það. Eldur loft og vatn.
Endurtekningin á tölunni þremur
er athyglisverð. 1 ævintýrunum
eiga hjón þrjár dætur eða 3 sonu.
Guð er einn en þó þrieinn. And-
vörpin og ólögin eru þrjú. Er ekki
sagt að orlofsnæturnar séu þrjár
og á ekki að berja þrjú högg á
dyrnar? Var ekki heimur
fornmanna i þremur hringjum.
Það var Útgarður, Miðgarður og
Asgarður. Nú svo er talan marg-
földuð með sjálfri sér, verður niu.
Þetta gengur gegn um alla okkar
þjóðtrú og goðafræöi.”
Hugrænt sprengiefni
„Það hafa sótt að mér heilabrot
um upphafið og þau eru svo erfið
að ég kemst ekki að neinni niður-
stöðu. Það er ofvaxið minum
skilningi og reyndar efast ég um
að nokkur geti leyst þá gátu. Ég