Vísir - 08.07.1978, Page 27
27
vism Laugardagur 8. júll
hef séö á prenti ýmsar skoöanir
visindamanna, stjörnufræöinga
og heimspekinga en þeir hafa
ekki leyst gátuna fyrir mig. Hvar
endar t.d. steinn eöa einhver
álika hlutur sem hent er út i
geiminn og alltaf heldur beint
áfram? Maöur veröur vitlaus ef
maöur hugsar um það. Þegar ég
var strákur hugsaði ég mikiö um
slika hluti og fékk oft martröð út
frá þvi. Fannst höfuðið á mér
vera tvö þúsund pund. Ég réö
ekki við þetta. Hvenær byrjar
timinn og hvenær endar hann? Or
þvi þetta er óleysanleg gáta og
enginn gelur svarað þessu má þá
ekki hugsa sér óteljandi hluti
aöra sem sama má segja um. T.d.
i sambandi viö lif og dauða. Jú,
sumir segja aö viö lifum áfram i
verkum okkarog afkomendum en
þaö er ekkert svar. Ég veit ekki
hvort ég lifi af likamsdauða. Það
er fjarri þvi að ég segi að það sé
útilokað. tJr þvi efnishyggjumenn
hafa ekki getað sannað hvar rúm-
ið endar geta þeir ekki sannað
hvar lifið endar. Þarna er enn eitt
dæmi sem ekki er hægt að leysa.
Samt sem áður er ég að glima við
þessar gátur, vonlaus um að geta
nokkurn tima ráðið þær. Það er
meira að segja svo með mig aö ég
tel, að ekki bara svokölluð sál geti
lifað áfram heldur lika hver ein-
asta hugsun. Ef maður sleppir
orði, er það ekki lifandi i tilver-
unni? Osk sem maður ber upp
bara með sjálfum sér, heldur hún
ekki áfram að vera til?”
,,Ég veit ekki hvað Guð er, ég
kann ekki að útskýra Guð. En
óskin, hún er einskonar bæn. Einn
maður sagði eitt sinn við mig,
þetta var skarpgáfaður maður og
skáld, — Það eru einhver hjól sem
snúast i tilverunni sem láta óskir
þinar rætast. Þú verður kafinn af
þeim á fimmtugsaldri. Það er likt
með bölbænir og þess vegna
varasamt að beita slíku. Það
verður að umgangast með gát
hluti sem maður þekkir ekki.
Sprengiefni i höndum barns er
hættulegt. Sama er að segja um
annars konar sprengiefni i hönd-
um fullorðinna: hugrænt sprengi-
efni
1978
,,öll mln þrástefniri norðaustur”
Hver skapaði Guð?
Nú bendir Guðmundur mér á
það að enn sé ég ekki farinn að
spyrja þeirrar sjálfsögðu spurn-
ingar, hvað hann telji skáldskap.
Það er hér með gert.
,,Að yrkja er sama og að skapa.
Sama hvort það er ljóð eða skáld-
saga. En hvað er þá að skapa?
Það er að breyta óskapnaði,
formleysu i form. t upphafi
Bibliunnar er þvi lýst þegar Guö
tók leir: bara drulluköggul, og
gerði úr honum mann. Við sjáum
það að öll sköpunarsagan er á
þessa leiö. En hver skapaði Guð?
Ég hef ekki fundiö nema eitt
svar: Hann hefur hlotiö að gera
það sjálfur. Vissir einstakir hlutir
geta þetta i raun og veru, sumar
tvikynja jurtir sem bæði eru
karlkyns og kvenkyns. Guö er
samkvæmt þessari kenningu
tvikynja og sú trú finnst i bókum.
Kveðeðli Guðs kölluðu Hebrear
Elohim en karleðli Jahve. Það er
svo merkilegt að þeir gerðu ráð
fyrir Guði sem hring. Karleðlið
var þvermál hringsins en Elokim
ummálið. Hlutföllin eru niu á
móti sextán en við skulum nú ekki
fara lengra út i þá sálma. Það
væri allt of langt mál. Þessir
gömlu spekingar voru miklu
meiri en þeir sem við höfum i
dag. Þeir hugsuðu allt i tölum.
Við notum tölur til að ákveöa
magn eða fjölda en hjá fornspek-
ingunum merktu þær allt ann-
að.”
Dæmdur til dauða.
Náðaður af kónginum.
„Allt byggist á samanburði.
Ekkert getur verið gott meðan
ekkert er illt. Ekkert fallegt ef
ekkert er ljótt. Höfundar trúar-
bragðanna eru að búa til kosmos
úr kaos, þ.e.a.s., þeir eru að gera
skipulagða heimsmynd úr
óskapnaði — fella i kerfi. Eitt er
rétt og annað rangt eftir að kerfið
hefur verið sett upp. Það ranga er
oft nefnt synd i kristinni trú: Synd
gegn heilögum anda. Ég hallast
að þvi að synd sé það að brjóta
gegn betri vitund. Synd er svo
afstætt hugtak að það sem i eina
tið var kallað synd kallast dyggð i
dag. Langafi minn sem var uppi
frá 1806 til 1879 var dæmdur til
dauða fyrir að eiga barn með
hálfsystur konu sinnar. Hver
myndi telja það synd I dag? Ég
„t fimm daga stóð tíminn kyrr”
„Selfoss var eins og púki á
fjósbitanum”
,,Það er heilbrigð skynsemi að
búa til svona skyrtu”
rak augun i þaö um daginn aö afi
minn var meðdómandi i þessu
máli og að eiginkona dómarans
og dóttir hins dæmda voru báðar
ömmur minar. Maðurinn var
dæmdur til dauöa á öllum
dómstigum en var svo náöaður af
kónginum.”
Engum eru Islendingar
líkir
„Við Islendingar búum á eld-
fjalli. En okkur verður ekki órótt
og sofum á hverri nóttu. Hér
sunnanlands er spáð miklum
jarðskjálftum áður en langt um
liöur en okkur dettur ekki i hug að
flytjast á öruggari svæði. Norsk
menntakona sem frétti að við
værum að byggja sautján
milljarða raforkuver niðri i eld-
gig klappaði saman höndunum af
hrifningu og sagði: Engum eru
tslendingar likir. Að byggja orku-
ver á gjósandi eldfjalli. Eeyndar
vitum við ekki frá degi til dags
hvort við lifum þvi heimsendir
vofir yfir okkur. Þegar kalda-
striðið reis sem hæst skrifaði ég
bókina „Musteri óttans” undir
áhrifum atómbombunnar. Það
viðurkenna allir að það þarf ekki
nema einn geggjaðan mann til aö
sprengja allt I loft upp. Annars er
ég jákvæður, gleöst yfir vel-
gengni annarra og nýt min betur
á stað sem er i vexti en i hrörn-
un”.
Aö byggja bæ
„Þegar eitthvað hrynur ris
blómatimi lista. tslendingasög-
urnar eru skrifaðar þegar
borgarastyrjöld er I landinu og
þjóðin að glata frelsi sinu. Bestu
bókmenntir okkar eru skrifaðar
þegar glæsilegt skeið er á enda og
við aldaskil. Þegar menningar-
timabil er að hrynja eða er hrun-
ið. Meðan ég bjó á Eyrarbakka
byrjaði Selfoss aö soga Eyrar-
bakka i sig. Eyrarbakki sýndist
visna og ibúarnir týndu tölunni.
Selfoss var eins og púki á fjósbit-
anum og fitaðisigáhinu plássinu.
En Eyrbekkingar voru alltaf að
vona að nú væri Selfoss orðinn
nógu stór til að geta ekki veitt
fleirum atvinnu. öllum að óvör-
um hélt Selfoss áfram að vaxa og
ég hef ekki fundið að hér sé minni
atvinna en annars staðar nema
siður sé. í fjögur ár sat ég i
hreppsnefnd hér mér til töffs en
setti mig ekki svo inn i sálarlif
ibúanna að ég geti sagt til um
aðra velsæld. Mér finnst gaman
að búa á stað þar sem ég tek þátt i
að búa hann til. Með þvi að
byggja hér hús er ég að byggja
þennan bæ.
— En hvað meö mannlifiö hér
áöur fyrr. Fannst þér það
skemmtilegra?
„Sú mynd sem ég man af
hlaöinu fyrir framan kaupfélagið
frá þvi ég kom hérna fyrst bendir
nú ekki til þess? Þar himdu illa
klæddir og kuldalegir menn
vaðandi polla og for biðandi eftir
einhverju. Mér fannst þetta vera
útigangsjálkar og heyra undir
dýraverndunarfélög aö kippa
þessu i lag. Annars varð ég einn
af þessum jálkum og varð aö
hima i þessu ömurlegasta hlaði
allra hlaða.”
Um hagvöxt
„Jæja” segir Guðmundur og
litur á mig hugsi. Heldurðu að það
verðiekki erfitt að vinna úr þessu
eitthvað sem fólk hefur áhuga
fyrir? „Við Gunnar ljósmyndari
bendum báðir á að sá hópur fólks
sem eins og hann veltir fyrir sér
ráðgátum tilverunnar fari stækk-
andi eftir þvi sem talið er. Hvort
mér svo tekst að gera þetta að
lifandi viðtali er önnur saga. Ef
ekki, þá hef ég tapað leiknum en
Guðmundur unnið án þess nokkur
fái að sjá það. Seinni hálfleik er
að ljúka i þessum viðtalsleik okk-
ar. Auðvitað er það bara leikur
eins og allt annað skemmtilegt i
tilverunni, það vinnur enginn,
enda ekki að þvi stefnt en
Guðmundur á siðasta orðið.
„Það er vist rétt að ungt fólk
veltir vöngum yfir þvi hvað það
er og hvar. Það er likt og óvita
barn sem fær leikfang i
hendurnar. Það vill skoða innani
það. En i hverjum manni er visir
að guði og djöfli. Það er ánægju-
legt ef ungt fólk i dag hugsar
meira um lifið og tilveruna en
áður. Já, það er ekki bundið við
hagvöxtinn heldur lætur sér
einnjg annt um hagvöxt sálarinn-
ar.
ÓÞH
Bifreiðaeigendur athugið
Við lagfærum hemla á öllum gerðum bif-
reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður
góða þjónustu. Framkvæmum ennfremur
almennar viðgerðir, ef óskað er. Höfum á-
vallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar
gerðir ameriskra bifreiða á mjög hag-
stæðu verði.
STILLING HF.“11
:u:mo-82740.
Ókeypis myndaþjónusta.
Ekkert innigjald. Opið fró kl. 9—19.
Dodge Charger Brougham árg. '73
Brúnn með hvítan vinyltopp, 8 cyl 400
cub. 2ja hólfa, sjálfskiptur. Powerstýri
og bremsur. Ný sumardekk. Loftdemp-
arar, tvöfallt pústkerfi. Teinakoppar.
Innfluttur í júlí '78. Verð tilboð.
Mercury Comet árg. '72
6 cyl sjálfskiptur. Power stýri og
bremsur. Ný dekk. Skoðaður '78. Skipti
á ódýrari station bíl. Verð kr. 1.700 þús.
mmm
M. Benz árg. '68
6 cyl beinskiptur, með topplúgu. Mjög
fallegur bíll. Verð kr. 1.600 þús.
Mazda 818 4ra dyra árg. '75
ekinn 51 þús. km. Litur brúnn. Cory
demparar. Skoðaður '78. Einn eigandi.
Ath. Skipti á Bronco '73—74
BÍLAGARÐUR
BÍLASALA — BORGARTÚNI 21 — S 29480 S 29750
Opið
laugardaga
fré 10-19.
Cortina árg. '71
ekinn 108 þús. km. Ath. skipti á Cortinu
'74—75 XL.
Land Rover diesel árg. '67
ekinn 102 þús. km. Ný sprautaður. Verð
kr. 850 þús.