Vísir - 08.07.1978, Page 28
VÍSIR
Viðrœður Alþýðubandalags
og Framsóknar á mónudag:
rGefum Alþýðu-
bandalaginu
ákveðið svar'
— segirl Ólafur Jóhannesson
„Við munum gefa
AlþýAubandalaginu
ákveðiö svar um afstöðu
okkar til vinstri stjórnar”,
sagði Ólafur Jóhannesson
formaður Framsóknar-
flokksins, er Vlsir ræddi við
hann fyrir framkvæmda-
stjórnarfund i flokknum
siðdegis I gær.
Ólafur sagöi, aö þing-
flokkur Framsóknar-
flokksins kæmi saman til
fundar um helgina og lik-
legt væri aö viöræöurnar
viö Alþýöubandalagiö hæf-
ust á mánudagsmorgun.
„Þvi fer fjarri”, sagöi
Ölafur, „aö ég vilji útiloka
neina möguleika varöandi
stjórnarsamstarf. Hitt er
ljóst, aö Framsóknar-
flokkurinn sækist ekki eftir
þátttöku i stjórn, en viö
höfum gert þaö sem i okk-
ar valdi stendur til aö gefa
sigurvegurum kosn-
anna færi á myndun stjórn-
ar”.
—Gsal/ÓM
Ungir Sjálfstœðismenn
I Mýrasýslu:
Vilja landsfund
„Fundurinn teiur eðlilegt, að miðstjórn og þingflokkur
boði til landsfundar i september n.k.” segir I ályktun
félagsfundar ungra Sjálfstæöismanna I Mýrasýslu sem
haldinn var á miövikudag.
1 ályktuninni er flokks-
forystan vöruö eindregiö
viö aö stiga skref i átt til
stjórnarmyndunar i ein-
hverri mynd án samráös
viö hin ýmsu félagasamtök
flokksins stór eöa smá. Tel-
ur félagsfundurinn þaö
Ijósa staöreynd aö flokks-
forystan hafi gleymt
vaxtabroddi flokksins,
unga fólkinu. Komi þaö
best i ljós i skoöanakönn-
unum sem hafi sýnt, aö
fylgi ungs fólks viö
stjórnarandstööuflokkana
væri sex sinnum meira en
hjá Sjálfstæöisflokknum.
Telur fundurinn þessari
þróun aöeins veröa snúiö
viö meÖ þvi aö auka áhrif
unga fólksins á stefnu og
starf flokksins.
Gsai/ÓM
„Bwumst við
umbretum
við Kröflu
í nótt"
Sagði Guðmundur Sigvaldason
jarðffrœðingur í viðtali við Visi
í gœrkvöldi
//Viö reiknum fastlega meö að þaö byrji umbrot við Kröflu í
nótt" sagði Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur við Vísi í gær-
kvöldi.
„Land byrjaöi aö siga
um hádegisbiliö i dag, og
slgur nokkru hraöar held-
ur en áöur þegar þetta
hefur gerst.
Þaö er ómögulegt aö
segja um hvort þaö verö-
ur gos, þaö er alls ekki
vist aö byrji i nótt, en viö
eigum semsagt von á aö
einhverjar jaröhræringar
byrji”.
Guömundur Sigvalda-
son fór noröur i gærkvöldi
ásamt hópi annarra jarö-
fræöinga, og veröa þeir á
umbrotasvæöinu næstu
daga. Jaröfræöingar telja
liklegra en ekki aö um-
brot aö þessu sinni veröi
meö þeim hætti aö þaö
byrji gos. Tvennt kemur
þar til greina. Þaö gæti
komiö upp i Leirhnjúk,
eöa þá aö kvikan gæti
hlaupiö neöanjaröar i
suöurátt og komiö upp i
Bjarnarflagi. Þar eru
fyrir Kisiliöjan og ýmis
önnur mannvirki. ÓT
Framsbkn og Samtökin:
„HLYNNTUR
SAMSTARFI
Ff
„ Já, ég væri hlynntur þvi að samstarf
tækist milli Framsóknarflokksins og
Samtakanna”, sagði ólafur Jóhannesson
formaður Framsóknarflokksins i sam-
tali við Visi i gær, er hann var inntur
eftir áliti á þessari hugmynd, sem reif-
uð hefur verið af ákveðnum ráðandi
mönnum innan flokksins.
Kvaö ólafur of snemmt
aö segja nokkuö til um
þaö hvernig slikt sam-
starf yröi, en fullyrti aö
engar formlegar viöræö-
ur færu fram á næstunni.
„Þetta veröur kannaö á
annan hátt”, sagöi hann.
Magnús Torfi Ólafsson
formaöur Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna sagöi i samtali viö
Visi i gær, aö hann heföi
ekki tekiö þátt i neinum
viöræöum viö Fram-
sóknarflokkin og ekki
heyrt um þetta mál fyrr
en hann heföi lesiö frétt
Visis i gær, — og vildi þar
af leiöandi ekkert um
máliö segja.
I frétt Visis i gær sagöi
m.a. af óformlegum fundi
fulltrúa þessara tveggja
stjórnmálaflokka.
—Gsal/ÓM
Spólwðu ó vímum
Fjölmargir Reykvik-
ingar komu tii aö sjá
Cimarrobræöurna hjóla á
linu á milli Iðnskólans og
Hallgrfmskirkjuturns i
hádeginu i gær.
Aö visu komust þeir
ekki alla leiö þar sem vir-
inn var enn blautur og
háll eftir rigningar um
morguninn. Þegar þeir
komu i mesta brattann
spólaöi hjóliö. Strax um
tólf leytiö dreif fólk aö úr
öllum áttum og rikti
mikil eftirvænting hvort
bræöurnir ætluöu aö láta
veröa af þessu viö þessar
aöstæöur, en þetta haföi
staöiö lengi til.
Mathias Cimarro gaf
vel i áöur en þeir lögöu af
staö en þrátt fyrir marg-
ar tilraunir tókst þeim
ekki aö komast alla leiö.
Hins vegar stoppuöu þeir
út á virnum og léku ýms-
ar listir. Annar bróöirinn
var i eins konar rólu niöur
úr hjólinu. Þaö fór kliöur
um áhorfendur þegar
hann hékk þar á öörum
fæti i lausu lofti meöan
hinn sleppti höndum á
stýri og lék jafnvægislist-
ir á hjólinu.
Þeir hafa veriö i rúm-
lega 20 metra hæö yfir
götunni en Cimarro bræö-
ur nota aldrei öryggisnet
viö iöju sina.
Flestir áhorfendur voru
á unglingsaldri og þegar
Cimarro bræöurnir komu
niöur þyrptust stúlk-
urnar i kring um þá.
Mathias faömaöi eina eöa
tvær þeirra aö sér og uröu
þær alsælar á eftir.
—KS
VÍSIR-SMÁAUGLÝSINGAR
Árekstur j
Breiðhelti
Talsvert harður árekstur
varö i Breiðholtinu I gær-
morgun. Þá rákust á
jeppabifreiö, sem ekið var
noröur Stekkjabakka og
fóiksbill sem kom vestur
Alfabakka. ókumaður jepp-
ans kvaðst ekki hafa áttað
sig á að honum bar að biða
á gatnamótunum, þannig
að bilarnir rákust saman af
miklu afli.
Þrennt var i jeppanum,
og slösuðust ökumaður og
farþegi i framsæti. öku-
maöur fólksbilsins slasað-
ist einnig og voru öll flutt á
slysavaröstofuna til rann-
sóknar. Meiðslin voru ekki
talin mjög alvarlegs eölis.
—GA
Dregið í
bikarnum
1 gær var dregið um það
hvaða liö leika saman i 8-
liða úrslitum Bikarkeppni
Knattspyrnusambands
Islands, og drógust liðin
þannig saman:
Einhverji—Akranes
Breiðablik-FH eða Fram
KR—Þróttur
IBV—Valur
Stefnt er að þvi að allir
leikirnir fari fram þann 19.
júii, en leikur FH og Fram i
16—liða úrslitum veröur
háður n.k. miðvikudag.
—GK.
Opið virka daga til kl. 22
Laugardaga kl. 10-14.
Sunnudaga kl. 18-22
VISIR Simi 86611 VISIR
VISIRsmi 86611 VISIR
VISIR simi 86611 VISIR