Vísir - 27.02.1979, Page 14

Vísir - 27.02.1979, Page 14
En það dugði ekki og „stóra sprengjan" féll í leik University of Washington gegn UCLA islenski risinn Pétur Guðmundsson er sá körfuknattleiksmaður i bandariskum háskóla- körfuknattleik sem allt snýst um þessa dag- ana. Pétur hefur leikið stórkost- lega og átt hvern stjörnuleikinn að undanförnu. Við höfum áður sagt frá leikjum hans gegn University of California, Universityof Oregon og Oregon State, en í þessum þremur leikj- um skoraöi Pétur aDs 76stig og hirti aragrúa frákasta. En um helgina féll stóra sprengjan vestur i' Seattle i Washington. Þá fékk lið Péturs, University of Washington, lið UCI.A i heimsókn, og þetta fræga liö mátti halda heimleiðis eftir að hafa tapað 69:68. Þess má geta fyrii- þá sem ekki þekkja til að undanfarin ár hef- ur UCLA verið besta og fræg- asta háskólaliöiö I bandariskum körfuknattieik, lið sem hefur innan sinna vébanda stórkost- iega leikmenn. Og það er ánægjulegt aö geta sagt frá þvi að enginn átti betri leik en einmitt Pétur Guðmundsson. Hann byrjaði á þvi að skora fimm fyrstu stig liðsins, og von bráðar hafði þjálfari UCLA tekiö það til bragðs aö sleppa einum leik- manni Washington lausum, þegarliðið var I sókn, en setja þess f stað tvo menn á Pétur. óstöðvandi En allt kom fyrir ekki, og Pét- ur fór á kostum f þessum leik. Hann skoraði 23 stig, hirti frá- köst báðum megin, varði skot leikmanna UCl.A og átti auk þess sendingar sem gáfu körfur. Washington hélt forskoti sinu allan leikinn, utan þess að UCLA komst yfir 68:67, þegar 15 sekúndur voru til leiksioka. Washington hóf sókn, og henni lauk með skoti leikmanns sem var ekki gætt vegna þess að tveir menn gættu Péturs, og þetta skot fór i körfuna þegar 2 sekúndur voru eftir af leiknum. „Kraftaverk” „Þetta er kraftaverkiö sem við höfum verið að biða eftir, það er oröið að veruleika”, sagöi Marv Harsman, þjálfari iiðs Péturs, eftir leikinn. Hann sagði að nú upp á sfðkastið væri Pétur loksins farinn að sýna alit það sem hann hefði veriö aö kenna honum síðan Pétur kom til Handarikjanna, og hann hefði átt hvern leikinn öðrum betri að undanförnu. Bandarisk íþróttabiöð hafa fjallað mjög um þennan sigur University of Washington yfir UCLA og kalla hann sigur árs- ins, enda var UCLA I fyrsta sæti fyrir leikinn og talið lang-sigur- stranglegast I háskólakeppn- inni. Og blöðin fullyrða að Pétur sé ástæðan fyrir þessum sigri. Hann leiki stórkostlegan körfu- bolta, og ef hann haldi þessu striki veröi lið University of Washington ósigrandi á næsta keppnistimabili. Pétur með tvo menn á sér allan leikinn Pétur mun sem kunnugt er koma hingað til iands um miðj- an næsta mánuð f fri, og hefur hug á að leika með islenska landsliðinu f vor. En hann kveðst mjög vonsvikinn yfir þvi aðekki hafi verið haft samband við sig, hann frétti það fyrst hjá blaðamanni Visis i Oregon i Bandaríkjunum að hann hefði veriö valinn i landsUðshópinn. ___________________________ Pétur Guðmundsson gnæfir hér yfir leikmann I landsleik gegn Noregi. Hann er ekki beint árennilegur þegar hann beitir sér f vörn- inni og eins og sést á myndinni er hönd hans við körfunetið þótt hann stökkvi ekki upp, enda er maðurinn 2,16 m á hæð. Landsliðsþjólforastorfið ekki til Paul Stewart vegna UMFN? — Hann vill sjálfur meina að það sé verið að refsa sér aftur, vegna þess sem gerðist í leik ÍR og UMFN ,pins og fram hefur komið i fréttum var'rætt um þaö við bandariska körfuknattleiks- manninn og þjálfarann hjá 1K. Paul Stcwart, á dögunum, að hann tæki að sér þjálfun Is- lenska landsliösins f körfuknatt- leik f vor og stýröi liðinu I verk- efnum þess þá. Sfðan geröist það eins og flcstir vita að félagi hans sem þjálfar og leikur meö Val, Tini'Dwyer, fékk starfið og mun hann verða með liöiö. Við hittum Paul Stewart að máli og spuröum hann hvað heföi valdiö þvi aö hann fékk ekki starfið. „Sjálfsagt er þaö i og meö vegna þess aö ég gaf ekki ákveðið svar, enda var'mér ekki boðin átaöan algjörlega, þeir ætluðu aö ræöa viö fleiri menn áöur en þeir geröu upp hug sinn og. veldu þjálfara. Mér hefur hinsvegar veriö sagt aö þaö hafi ráöiö mestu um aö ég fékk ekki starfiö aö þá heföu leikmenn UMFN neitaö aö vera meö landsliöinu”. (Hér þykir rétt að minna á aö Stewart íenti i slagsmáium við Stefán Bjarkason, leikmann UMFN, I leik UMFN og IR i háust og iauk þeim slagsmálum þannig aö flytja varö Stefán á_ sjúkrahús). „Mér finnst hinsvegar aö ég sé búinn aö taka út mina refsingu fyrir það, sem þar geröist. Ég var dæmdur i keppnisbann og þvi hélt ég aö menn gætu gleymt þessu leiöindamáli”. — En hvernig list þér á val landsliðsins, værir þú ánægöur meö landsliöshópinn, ef þú vær- ir þjáifari og ættir að taka viö þessum hópi? „Nei, ekki alveg, þótt i honum séu margir leikmenn sem skil- yröislaust eiga aö vera þar. Þaö vantar illilega stóra menn i liöið til aö taka fráköst eins og ber- lega kom fram er við Banda- rikjamennirnir hér lékum viö landsliöiö”. — En nú er þaö öruggt aö Pét- ur Guömundsson kemur heim og veröur meö liöinu, breytir þaö ekki miklu? „Auövitaö gerir þaö mikiö fyrir liöiö og hann mun örugg- lega styrkja þaö. Ég hef frétt aö hann hafi staöiö sig vel aö undanförnuúti iBandarikjunum og maður sem er oröinn vanur að leika, þar sem 10 þúsund áhorfendur eru viöstaddir, læt- ur ekki taugaóstyrk há sér mikiö, þegar hann fer aö leika i Evrópu. Hann mun breyta miklu fyrir liöiö. Ég get alveg sagt þaö aö maöur af hans stærö (2.15 m) sem er orðinn jafngóð- ur og hann er sagöur vera, á ööru ári sinu i bandariskum há- skólakörfuknattleik, hann á mikla möguleika á aö veröa at- vinnumaöur þegar námi hans lýkur”. — Ert þú ánægöur meö gengi 1R i vetur undir þinni stjórn? „Nei, þaö er ég ekki, og ég er sérstaklega óánægður meö hvernig mér sjálfum hefur gengiö. Meiösli á*hné hafa háð mér mjög mikið og ég hef ekki sýnt minar réttu hliðar. En von- andi get ég sýnt þær næsta vet- ur”. — Er þá ákveöiö aö þú veröir með 1R næsta vetur? „Það hefur verið rætt um það við mig og ég reikna fastlega meö aö svo veröi”. —-Hvernig standa yngri flokk- ar islensku félaganna I dag? „Ég held aö sú stefna aö fá hingaö bandariska leikmenn, sem þjálfa jafnframt yngri flokka félaganna, eigi eftir aö skila sér i betri leikmönnum i framtiöinni. Ég yröi ekki hissa á þvi aö eftir 5-6 ár yröu hér margir toppleikmenri, sem væru ekki nema um tvitugt. Toppleikmenn Islands i dag eru hinsvegar fiestir á aldrinum 25- 27 ára. Strákarnir veröa aö fá rétta og mikla þjálfun strax frá þvi þeir byrja i körfuboltan- um”. — Aö lokum, Paul, hverjir veröa bikarmeistarar i körfu- knattleik? „Ég er viss um að þaö verður annaöhvort KR eða 1R. Viö höf- um veriö aö ná okkur vel á strik. IR-ingar, aö undanförnu”. gk-.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.