Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar hf. (HÞ) ákvað á fundi sl. mið- vikudag að kanna möguleika á því að stofna, ásamt öðrum, rekstrarfélag um útgerð frystitogara. Tilgangur- inn með stofnun slíks félags yrði að nýta bolfiskveiðiheimildir félagsins, sem undanfarin ár hafa verið leigðar út til annarra útgerða. Ef af stofnun félagsins verður munu skapast ný sjómannsstörf á Þórshöfn, sem skapa munu auknar tekjur í byggð- arlaginu. Að sögn Jóhanns A. Jónssonar, framkvæmdastjóra HÞ, hefur stjórn félagsins haft þetta mál til athugun- ar um nokkurt skeið. Hann segist vænta þess að málin skýrist frekar á næstunni og þá hvernig að þeim verður staðið. Breytingar á stjórnskipulagi HÞ Þess má geta að veiðiheimildir HÞ í bolfiski nema tæpum 1.280 þorsk- ígildistonnum en rúmum 1.400 tonn- um ef veiðiheimildir í rækju eru tald- ar með. Á fyrrnefndum stjórnarfundi voru gerðar veigamiklar breytingar á stjórnskipulagi Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Ákveðið var að leggja niður starf útgerðarstjóra og starf sölu- og markaðsstjóra. Einnig var ákveðið að endurráða ekki í starf fjármálastjóra félagsins en Björn Ingimarsson, sem hefur gegnt því starfi, sagði því lausu fyrir skömmu. Eftir þessar breytingar eru rekstrarsvið HÞ tvö, þ.e. verk- smiðjusvið og landvinnslusvið og heyra þau undir Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóra. Verksmiðju- stjórinn, Rafn Jónsson, hefur um- sjón með rekstri fiskimjölsverk- smiðjunnar og útgerð á nótaskipum félagsins en landvinnslustjórinn, Jón Haraldsson, hefur umsjón með kú- fiskvinnslu og frystingu á uppsjáv- arfiski sem og rekstri kúfiskskips félagsins. Tilgangurinn með þessum breyt- ingum á stjórnskipulaginu er að lækka stjórnunarkostnaðinn og laga hann betur að umfangi rekstrarins. Hlutafé aukið um 80 milljónir króna Stjórn HÞ hefur samþykkt að nýta sér heimild frá síðasta aðalfundi félagsins til að auka hlutafé þess. Hlutafé HÞ er nú tæpar 500 millj- ónir króna að nafnverði en verður aukið um allt að 80 milljónir króna að nafnverði. Tilgangurinn með hluta- fjáraukningunni er að styrkja greiðslufjár- og eiginfjárstöðu félagsins. Þá samþykkti stjórnin að óska eft- ir því við Verðbréfaþing Íslands að hlutabréf Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar verði tekin af skrá VÞÍ. Ástæðan er m.a. sú að félagið upp- fyllir ekki lengur öll þau skilyrði sem gerð eru til félaga sem skráð eru á aðallista VÞÍ, auk þess sem lítil við- skipti hafa verið með hlutabréf félagsins síðastliðin misseri. Skipulagsbreytingar hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar Kanna möguleika á stofnun rekstrarfélags um útgerð frystitogara ÞORRAGOLF fer fram á Svarf- hólsvelli, heimavelli Golfklúbbs Selfoss í dag, laugardag. Það er einsdæmi að haldið sé golfmót á Þorra en Svarfhólsvöllur er vel fær fyrir golfmenn og hafa þeir gripið í kylfurnar undanfarna daga. Grænn litur er á brautunum og að sögn Guðjóns Öfjörð, fram- kvæmdastjóra Golfklúbbs Selfoss, er heillandi að geta byrjað að spila. „Við vonumst eftir þátttöku, menn bara koma og skrá sig á staðnum, þetta verður spilað af fingrum fram,“ sagði Guðjón. Hann sagði mótið haldið að frumkvæði for- manns mótanefndar, Skúla Más Gunnarssonar. Mótið hefst klukkan 14 og í mótslok verður snæddur þorra- matur í umsjón Ingólfs Bárðar- sonar. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðjón Öfjörð, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss, mundar pútter- inn á 9. holu Svarfhólsvallar á Selfossi. Selfyssingar efna til opins golfmóts Einsdæmi að keppt sé í golfi á Þorra Selfoss. Morgunblaðið. TALSMENN olíufélaganna mót- mæla því að síðasta bensínverð- hækkun sé umfram það sem teljist eðlilegt miðað við þróun verðs á heimsmarkaði, eins og Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda telur. Bens- ín hækkaði um 2,50 kr. lítrinn um síðustu mánaðamót og telur FÍB að olíufélögin séu að hækka álagningu um nálægt 1,50 krónur. Samúel Guðmundsson, forstöðu- maður áhættustýringar hjá Olíu- verslun Íslands, segir að verðbreyt- ingin frá síðustu mánaðamótum endurspegli eingöngu hækkun á heimsmarkaðsverði og gengisbreyt- ingu. Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., segir að fullyrðing Runólfs Ólafssonar framkvæmda- stjóra FÍB um óeðlilega bensínverð- hækkun olíufélaganna eigi ekki við rök að styðjast. Verðbreytingin end- urspegli breytingu á meðalheims- markaðsverði í janúar, ásamt breyt- ingu á gengi dollars. Gunnar Karl Guðmundsson fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Skelj- ungs hf. segir að álagning olíufélag- anna hafi ekkert breyst á síðustu árum og verðlagsmál olíufélaganna hafi ennfremur verið til skoðunar hjá hagsmunasamtökum og opinber- um aðilum að undanförnu. Segir hann að fá félög hafi lotið eins miklu eftirliti neytenda og samkeppnisyf- irvalda. Olíufélögin um bensínhækkun Mótmæla full- yrðingum um aukna álagningu JÓN Bjarnason, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og Jón Kristjánsson, þingmaður Framsóknarflokks, eru báðir hlynnt- ir ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra um að nota sam- anburðarútboð með umtalsverðu leyfisgjaldi auk árgjalds til þess að úthluta rekstrarleyfum vegna þriðju kynslóðar farsíma. Lúðvík Berg- vinsson, þingmaður Samfylkingar- innar, og Sverrir Hermannsson telja hins vegar að velja hefði átt uppboðs- leiðina við úthlutunina. Jón Bjarnason, sem á sæti í sam- göngunefnd Alþingis, lýsir því sem skoðun sinni að ákvörðun samgöngu- ráðherra sé í meginatriðum í sam- ræmi við skoðun flokks síns á úthlut- un rekstrarleyfanna og telur samanburðarútboðsleiðina betri en uppboðsleiðina. „Við leggjum áherslu á að hér er um að ræða grunnþjónustu fyrir allan almenning, en ekki rekstur sem á að græða á,“ segir Jón. „Þjónustumarkmiðið á að sitja í fyrirrúmi, öryggi þjónustunnar og jafnt aðgengi allra notenda um land allt. Við myndum því verða mjög andvíg því ef aðferð samgönguráð- herra leiddi til einkavæddrar fá- keppni á fjarskiptamarkaði.“ Erfitt að átta sig á ákvörðun samgönguráðherra Lúðvík Bergvinsson, fulltrúi Sam- fylkingarinnar í samgöngunefnd, segir að erfitt sé að átta sig á því hvað felist nákvæmlega í ákvörðun sam- gönguráðherra. „Ég á erfitt með að átta mig á því hvaða aðferðafræði hann ætlar að beita og því, hver verður hlutlægni hans í þeirri aðferðafræði,“ segir Lúðvík og vekur athygli á því að ekki sé heldur ljóst hvað felist í orðum ráðherra um „umtalsvert leyfis- gjald“. „Það er líklegt að það verð, sem markaðurinn metur sanngjarnt og eðlilegt að greiða, fáist með uppboðs- leiðinni, og ég hafna þeirri fullyrð- ingu sem heyrst hefur, að menn kunni ekki fótum sínum forráð þegar þeir bjóða í leyfin. Uppboð má líka ef- laust skipuleggja á þann hátt að þau tryggi útbreiðslu þjónustunnar á landsbyggðinni og ég er þeirrar skoðunar að velja hefði átt uppboðs- leiðina. Mér finnst einnig eftirtekt- arvert að með ákvörðun samgöngu- ráðherra, þar sem kemur að því að úthluta úr takmarkaðri auðlind, virð- ist sem verið sé að ganga þvert gegn meginhugmyndum auðlindanefndar um uppboð.“ Sverrir Hermannsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir ákvörð- un samgönguráðherra koma sér verulega á óvart og lýsir sig andvígan útboðsleiðinni. Hann gagnrýnir enn- fremur að ráðherra skýri ekki hvað átt sé við með „umtalsverðu leyfis- gjaldi.“ „Ég er mjög undrandi og ég spyr hvort hann [Sturla] sé ekki enn í Sjálfstæðisflokknum, eða hvort Sjálf- stæðisflokkurinn hafi breytt um stefnu,“ segir Sverrir og vekur at- hygli á því að á fjarskiptasviðinu sé um gífurleg verðmæti að ræða, sem víða erlendis sé keppt um og hérlend- is ættu menn einnig að fá að keppa um þau. Útboðsleið er viðurkennd aðferð Jón Kristjánsson, fulltrúi Fram- sóknarflokks í samgöngunefnd, styð- ur ákvörðun samgönguráðherra um samanburðarútboð og segir að um sé að ræða viðurkennda aðferð. „Þessi tillaga samræmist ekki illa hug- myndafræði minni í þessum efnum og aðferðin er viðurkennd,“ segir Jón. „Það er algengt að fram fari for- val í útboðum og það sé boðið út með ákveðnum skilyrðum um þjónustu og ég er heldur jákvæður fyrir tillögum samgönguráðherra.“ Aðspurður hvort Jón hefði viljað fá nánari upp- lýsingar um umrætt leyfisgjald svar- ar hann játandi. „Ég hefði viljað fá nánari hugmynd um það. Þetta mál er að koma inn í umræðuna hjá okkur og við munum fara fram á sem ít- arlegastar upplýsingar um hvað menn hafa í huga í þeim efnum.“ Rekstrarleyfum fyrir þriðju kynslóð farsíma úthlutað með samanburðarútboði með leyfisgjaldi Skiptar skoðanir þing- manna um ákvörðun samgönguráðherra TVEIR menn voru staðnir að því að reykja hass í heitum potti í Sundlaug Akureyrar á fimmtu- dagskvöld. Arvökulir gestir sundlaugar- innar veittu athæfi mannanna athygli og létu verði vita. Sund- laugarverðir Sundlaugar Akur- eyrar settu sig aftur í samband við fulltrúa í rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri, sem brá skjótt við. 55 grömm fundust við leit Mennirnir voru handteknir þegar þeir yfirgáfu sundstaðinn. Við leit í bíl þeirra fundust 5 grömm af hassi. Við húsleit á gistiheimili sem þeir dvöldu á fundust 50 grömm af hassi og vog. Mennirnir gistu fanga- geymslur en við yfirheyrslu í gær viðurkenndi annar mann- anna að eiga fíkniefnin. Reyktu hass í heita pottinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.