Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 59
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, og Áform boða til
opins fræðslufundar um lífræna
garðyrkju í húsakynnum skólans
mánudaginn 5. febrúar nk. frá kl. 14
til 17.
Þar mun Inger Källander frá Sví-
þjóð sem er formaður samtaka líf-
rænna bænda þar í landi flytja er-
indi, ásamt þeim Þórði Halldórsson á
Akri í Biskupstungum og Ólafi Dýr-
mundssyni frá Bændasamtökum Ís-
lands. Fyrirlesturinn er í boði skól-
ans og Áforms og því ekkert
þátttökugjald, en þó er nauðsynlegt
að fólk skrái sig á skrifstofu skólans
eða í gegnum netfangið mhh@reyk-
ir.is
Fræðslufundur
um lífræna
garðyrkju
ENDALOK Sanktri Pétursborgar,
hin fræga kvikmynd Púdovkíns frá
árinu 1927, verður sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 4.
febrúar kl. 15.
Myndin var gerð í tilefni 10 ára
afmælis Októberbyltingarinnar í
Rússlandi 1917. Þetta var í raun
önnur mynd Púdovkíns í fullri
lengd í einskonar þríleik þar sem
Móðirin var fyrst og Stormur í
Asíu sú þriðja. Áður hafði hann
sent frá sér tvær styttri tilrauna-
myndir.
Myndin segir frá sveitapilti sem
fer til Pétursborgar í atvinnuleit en
í bakgrunni eru þær miklu hrær-
ingar á sviði þjóðmála og stjórn-
mála sem leiddu loks til árásarinn-
ar á Vetrarhöllina í nóvember
1917.
Enskur texti er með myndinni.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Kvikmynd eftir
Púdovkín
LÝST er eftir vitnum að umferðar-
óhappi er varð á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar/Suðurlands-
brautar miðvikudaginn 31. janúar kl.
17.05. Þarna varð árekstur með
grárri Nissan Pathfinder-bifreið og
blárri Daiwoo Lanos-bifreið.
Þeir sem upplýsingar kynnu að
geta veitt um mál þetta eru vinsam-
lega beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
VÍGSLA nýs leikskóla að Háholti 17
í Hafnarfirði fer fram sunnudaginn
4. febrúar kl. 13. Þetta er nýtt 700 m²
húsnæði með vandaðri lóð. Á leik-
skólanum verða fjórar deildir og
rúmar hann um 800 börn í einu.
Skólinn er byggður í einkafram-
kvæmd að undangengnu útboði. Eig-
andi leikskólans og rekstraraðili er
Nýsir hf. Hafnafjarðarkaupstaður
leigir húsið með lóð og búnaði af
Nýsi í 25 ár. Ístak hf. byggði mann-
virkið. Húsið er hannað af Albínu
Thordarson arkitekt. Lóðin er hönn-
uð af Kjartani Mogensen landslags-
arkitekt.
Leikskólinn verður opinn almenn-
ingi til sýnis á vígsludaginn kl. 14-17.
Nýr leikskóli í
Hafnarfirði
♦ ♦ ♦
BRAUTSKRÁNING kandídata frá
Háskóla Íslands verður í Háskóla-
bíói laugardaginn 3. febrúar nk. og
hefst kl. 14. 150 kandídatar braut-
skrást að þessu sinni, auk þess sem
tveir hafa lokið starfsréttindanámi í
guðfræðideild og félagsvísindadeild
og 23 nemendur lokið diplómanámi.
Húsið verður opnað kl. 13.15 og
verður leikin létt tónlist í anddyri
þar til gengið verður til hefðbund-
innar dagskrár sem hefst með því að
Blásarakvintett Tónlistarskólans í
Reykjavík leikur verk eftir Ferenc
Farkas: Tvo ungverska dansa. Þá
verða afhent prófskírteini og að því
loknu ávarpar rektor kandídata.
Athöfninni lýkur með söng Há-
skólakórsins undir stjórn Hákons
Leifssonar.
Brautskráning frá
Háskóla Íslands ♦ ♦ ♦
SUNNUDAGSGANGA Útivistar
þann 4. febrúar kl. 11 er um Álfsnes
við Kollafjörð. Gengið er með firð-
inum og Þerneyjarsundi.
Þetta er þægileg um 3 klst. ganga
um skemmtilega strandlengju. Í
fjörunni er sérkennilegt berg og má
segja að þarna sé lystigarður náttúr-
unnar úr grjóti. Við Þerneyjarsund
var verslunarhöfn á miðöldum.
Fararstjóri er Sigurður Jóhanns-
son. Allir eru velkomnir í ferðina,
en verð er 1.100 kr fyrir félaga og
1.300 kr fyrir aðra. Brottför er frá
BSÍ kl.11 og miðar seldir í farmiða-
sölu.
Gengið með
strandlengju
Álfsness
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir eftirfarandi ökutækjum:
HS-098 sem er hvít Mazda 323
árg. 1986, stolið frá Túngötu 16, 29.
október 2000, ZY-806 dökkgræn
Hyundai Accent 1997, stolið frá
Skólavörðustíg 3. desesember 2000,
PN-692 grár Galant GSi árg. 1991,
stolið frá Eiríksgötu 27, 16. des-
ember 2000, K-1034 grár Mitsubishi
Colt árg. 1988, stolið frá Sogavegi
170, 20. janúar 2001 og RY-590
brúnn Mitsubishi Lancer árg. 1990,
stolið frá Reyðarkvísl 14, 24. janúar
2001.
Þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið eru beðnir um að snúa
sér til lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir
ökutækjum
Marja
Þau leiðu mistök urðu í grein um
tökur kvikmyndarinnar Mávahlát-
urs í blaðinu í gær að nafn Krist-
ínar Marju Baldursdóttur rithöf-
undar var ranglega beygt. Hið rétta
er að nafn hennar, Marja, beygist í
nf. Marja, þf. Marju, þgf. Marju og
ef. Marju. Kristín Marja er beðin
velvirðingar á þessum mistökum.
Hárskerinn hefur
opið kl. 10-13 laugardaga
Í fréttatilkynningu í blaðinu á
fimmtudag var sagt frá nýrri rak-
arastofu á Eiðistorgi. Ranglega var
sagt að stofan væri opin á laug-
ardögum yfir vetrartímann á versl-
unartíma, heldur er hún opin frá kl.
10–13. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT