Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                     !  "# !    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ sem vekur mesta athygli varð- andi dóm Hæstaréttar í öryrkjamál- inu eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að boða forráðamenn Ör- yrkjabandalagsins strax á sinn fund og biðjast velvirðingar að á þeim hafi verið gerð stjórnarskrár- og mann- réttindabrot sl. 7 ár og óska eftir samvinnu um útfærslu á leiðrétting- um kjarasamninga þeirra reiðir rík- isstjórnin strax til höggs undir for- ustu forsætisráðhrerra og fær m. a. lögmenn úr kunningjahópi hans til að gera drög að frumvarpi og túlka niðurstöður dóms Hæstaréttar í ör- yrkjamálinu. Ætli þjóðin hafi nokk- urn tímann áður verið vitni að öðru eins klúðri ríkisstjórnar, sem ein- kenndist af hroka og yfirgangi á ör- yrkjum og áfram er haldið á sömu braut með frumvarpi, sem virðist áfram brjóta mannréttindi þessa fólks. Hér verður ekki tekið til um- fjöllunar hin lögfræðilega hlið þessa máls, heldur hinn siðferðilegi grund- völlur sem lýtur að sjálfræði og sjálfsvirðingu öryrkja. Ein af mik- ilvægustu stoðum sjálfræðisins er virðing einstaklingsins og viður- kenning á sjálfstæði og að skoðanir hans og þarfir séu metnar til jafns við aðra þjóðfélagsþegna. Réttindum aðila Öryrkjabandalagsins hefur verið ítrekað hafnað í gegnum árin vegna geðþóttaákvarðana stjórn- valda. Frelsi þeirra er stórlega skert til athafna og ákvarðana vegna efna- hagslegs ósjálfstæðis. Viljaskortur ríkisstjórnarinnar að leysa þessi mál í sátt og samlyndi við Öryrkjabanda- lagið hefur gengið fram af þjóðinni. Sama gildir um kjör ellilífeyrisþega og fleiri minnihlutahópa í þjóðfélag- inu. Það er skoðun mín að ríkis- stjórnin hafi sjálf lagt á sig þyngstu álögurnar og byrðirnar og þeir munu uppskera eins og til var sáð. Aðdáun og hrifning ríkisstjórnarinnar á auð- hyggju og óheftri markaðshyggju, sem leitt hefur yfir þjóðina einokrun og fákeppni, er háskabál sem vegur að hagsmunum almennings og lífs- kjörum. Skynsemi, dugnaður og þrautseigja Örorkubandalagsins á eftir að skila þeim vel áleiðis í sínum kjara- og réttindamálum og verða jafnframt öðrum sem standa höllum fæti mikill ávinningur. Þeir hafa bar- ið lengi og fast á dyr ríkisstjórnar- innar og unnið sinn stærsta sigur, en leiðin er löng að settu marki þegar dómgreind viðsemjandans skortir allt réttlæti. Flokkshlýðni og fylgi- spekt þingmanna ríkisstjórnarinnar í þessu máli undirstrikar enn og aft- ur að þeir greiða ekki atkvæði sam- kvæmt sannfæringu sinni heldur valdsboði og leiðsögn forustunnar. Er það lýðræði þegar þingmenn eru dregnir í dilka eftir pólitísku eyrna- marki gegn betri vitund. Hinar hörðu umræður um öryrkja- málin hafa náð augum og eyrum lands- manna og þeir tekið afstöðu. Þjóðin hefur risið upp gegn ofríki ríkis- stjórnarinnar og lögbrotum gegn Öryrkjabandalaginu og vonandi nær þessi þjóðfélagsvakning til hinna fjölmennu hópa, sem búa við afar bág lífskjör, margir hverjir langt undir fátækramörkum. Það er aug- ljóst að ríkisstjórnin óttast málefna- lega afstöðu þjóðarinnar og beitir öllum tiltækum fjölmiðlum máli sínu til framdráttar. Það blása kaldir vindar um ríkisstjórnina, skoðana- kannanir sýna mikið fylgistap og mikill ótti er kominn í raðir Fram- sóknarflokksins. Undirgefni flokks- ins í samstarfi við íhaldið á eftir að verða þeim mikil þrautaganga, flokksfylgið fellur til hægri og vinstri og miðjan stendur strípuð eftir. Hin taumlausa fylgisspekt við íhaldið hefur reynst þeim dýrkeypt. KRISTJÁN PÉTURSSON, fyrrv. deildarstj. Siðferði og sjálfsvirðing Frá Kristjáni Péturssyni: MIKIL er undrun mín yfir málflutn- ingi Jóns Steinars Gunnlaugssonar og annarra þeirra sem reyna að bera blak af þeim afglöpum forseta Hæstaréttar, að svara með þeim hætti, sem gert var, fyrirspurn for- sætisnefndar Alþingis. Þetta minnir mig helst á vinnu- brögðin í sveitinni minni hér áður fyrr þegar hreppsyfirvöld töldu nægjan- legt við afgreiðslu mála, þegar mikið lá við, að oddviti hringdi í viðkomandi nefndarformann þegar afgreiða þurfti mál og spurði hann hvort hann væri ekki samþykkur tillögum sveit- arstjórnar í tilteknum málum sem heyrðu undir nefndina. Nefndarformaður tók sér þá eftir atvikum það vald að svara eftir sinni skoðun og í trausti þess að aðrir nefndarmenn sættu sig við orðinn hlut, eða í besta falli átti símtal við aðra nefndarmenn og leitaði sam- þykkis munnlega, eftir að hafa skýrt sitt álit og þeirra sem á undan var tal- að við. Engin gagnrýnin umræða fór fram og ekkert fært til bókar. Ég fæ ekki betur séð en að umtöluð afgreiðsla Hæstaréttar hafi verið af hliðstæðum gæðaflokki og hér var til vitnað og hefur auðvitað ekkert stjórnskipulegt gildi þar sem form- reglum var ekki fylgt. Því ber að líta fram hjá þeim vitnisburði sem ómerk- um. Eftir situr vanhæfur meirihluti í Hæstarétti, um það þarf ekki að deila. Slíkur virðist dómgreindarskortur- inn þar á bæ. KRISTJÁN H. THEODÓRSSON, flugafgreiðslumaður, Grenivöllum 20, Akureyri. Hæstiréttur og stjórnsýsla til sveita hér áður fyrr Frá Kristjáni H. Theodórssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.