Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLANDSFUGL ehf. hóf starfsemi sína í Dalvíkurbyggð formlega í gær þegar 3.000 hænur og 350 hanar voru tekin í varpstöð fyrirtækisins á Fossbrún 6 á Árskógsströnd, þar sem áður var starfrækt rækjuverk- smiðja. Hænsnin voru flutt frá Hvanneyri í Borgarfirði. Starfsemi Íslandsfugl verður á þremur stöðum í Dalvíkurbyggð og ganga áætlanir fyrirtækisins út á að framleiða um 600 tonn á ári til að byrja með en sækja svo í sig veðrið og auka fram- leiðsluna. Mikil áhersla verður lögð á hreinleika afurðanna, tæknivæð- ingu og sóttvarnir til að tryggja heilbrigði og eins verður áhersla lögð á fullvinnslu vörunnar. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið skapi allt að 30 störf í byggðarlag- inu. Auðbjörn Kristins- son, framkvæmdastjóri Íslandsfugls, gerði grein fyrir starfsemi fyrirtækisins í húsa- kynnum félagsins á Ár- skógsströnd í gær, en hann sagði að hugmynd- in að því að reisa kjúk- lingabú í Eyjafirði væri um tveggja ára gömul. „Eftir því sem við fórum að skoða þetta betur leist okkur æ betur á dæmið,“ sagði hann. Fyrstu afurðirnar á markað í júlí Varpstöðin á Árskógsströnd hef- ur nýlega verið endurbyggð og búin fullkomnustu tækjum. Innan árs er áformað að reisa hliðstætt varphús við hlið þess sem fyrir er. Þá verður útungunarstöð félagsins fundinn staður á Dalvík eða Árskógsströnd en um er að ræða hús undir vél- búnað sem til þarf til útungunar- innar. Gert er ráð fyrir að útung- unarstöðin verði tilbúin í maí í vor og þá verður fyrstu eggjunum ung- að út. Eldishús félagsins, sem samtals er 3.500 femetrar að stærð og hið stærsta sinnar tegundar hér á landi, er nú að rísa í landi Ytra-Holts, skammt sunnan Dalvíkur, en þang- að fara fuglarnir út útungunarstöð- inni. Þegar er búið að steypa grunn hússins og innan tíðar verður það reist og einangrað. Húsið verður einnig tilbúið í maí. Loks mun slátrun og vinnsla fara fram í vinnslustöð fyrirtækisins við Hafnarbraut á Dalvík, en byggt verður við það hús og í það sett full- komin sláturlína og vinnslutæki. Áætlanir gera ráð fyrir að kjöt- vinnslustöðin verði tilbúin í júlímán- uði, en á þeim tíma eru fyrstu afurð- ir Íslandsfugls væntanlegar á markað. Vandað heilbrigðseftirlit frá upphafi til enda Ársframleiðslan verður til að byrja með um 600 tonn, en Auðbjörn sagði fyrirtækið ætla sér sókn á kjúklingamarkaðnum á næstu árum. Nánast öll framleiðslan verður ferskvara og boðið verður upp á fjöl- breyttar afurðir. Markaður fyrir kjúklingakjöt hér á landi er um 3.500 tonn á ári og gera spár ráð fyrir um 20% árlegri aukningu í sölu kjúk- lingakjöts. Auðbjörn sagði Íslands- fugl ætla sér hluta af þeim markaði. Hann sagði mikla áherslu verða lagða á heilbrigðismál og sótt- varnir en framleiðsla kjúklingakjöts gerði kröfur um slíkt. Fyrir liggja vinnureglur um sóttvarnir sem fyglt verður stíft eftir. Varpstofninn kemur frá sóttvarnarbúi í Svíþjóð og var eggjunum ungað út í einangrun á Hvann- eyri. Þeirri einangrun var svo fram haldið í varpstöð Íslandsfugls á Árskógsströnd þó svo að heilbrigðisyfirvöld krefjist slíks ekki. Á öllum stigum framleiðsluferilsins verður tekið sérstaklega á áhættuþáttum hvað smithættu varðar. Þannig verður úrgangur frá eldishúsum meðhöndl- aður sérstaklega áður en honum verður dreift á tún. Sláturúrgangur og blóðvatn í kjötvinnslustöðinni verður unnið í refafóður að undan- genginni meðhöndlun. Forsvars- menn Íslandsfugls segja vinnubrögð af þessu tagi ekki tíðkuð hér á landi í kjúklingarækt, en ljóst sé að auð- veldara sé fyrir fyrirtækið að byggja upp vandað heilbrigðiseftir- lit vegna þess hve tæknivætt búið sé. Gert er ráð fyrir að þegar kjöt- vinnsla á vegum fyrirtækisins hefst í sumar muni starfsmenn félagsins verða allt að 30. Hlutafé Íslandsfugl er 80 millj- ónir króna, en áætlanir gera ráð fyr- ir að kostnaður við uppbyggingu þess verði í heild 250 til 300 milljónir króna. Eigendur Íslandsfugls eru auk Auðbjörns, Dalvíkurbyggð, Samherji hf., Heimir Guðlaugsson, Jóhannes Torfi Sumarliðason, Guð- laugur Arason, Árni Bergmann Pét- ursson og Eiríkur Sigfússon. Gleðidagur Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, kvaðst afskaplega ánægður með þá ákvörð- un fyrirtækisins að finna því stað í byggðarlaginu. „Þetta er mikill gleðidagur, nú þegar starfsemin er formlega hafin,“ sagði hann. Hann sagði atvinnuástand í byggðarlaginu ágætt, en mikilvægt væri að fá ný fyrirtæki til starfa og auka þannig fjölbreytnina. Hann sagði ekki ólík- legt að um yrði að ræða allt að 50 manna vinnustað þegar fram liðu stundir. „Við hér erum afskaplega ánægð að sjá þennan græðling skjóta rótum í byggðarlagi okkar,“ sagði Rögnvaldur Skíði. Starfsemin verður á fjórum stöðum Auðbjörn Kristinsson Morgunblaðið/Kristján Í varpstöð Íslandsfugls eru 3000 hænur og 350 hanar. Fyrirtækið skapar um 30 störf til að byrja með Íslandsfugl áætlar að framleiða um 600 tonn á ári ANDSTÆÐINGAR flugvallar í Vatnsmýrinni í Reykjavík standa í dag fyrir borgarafundi þar sem ætl- unin er að stofna samtök gegn flug- vellinum. Fundurinn hefst kl. 16 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Fulltrúar borgarstjórnarflokk- anna munu þar lýsa afstöðu sinni. Hallgrímur Helgason rithöfundur mun flytja erindi og hljómsveitin Miðnes spilar í kaffihléi. Andrés Magnússon er einn þeirra sem unn- ið hefur að stofnun samtakanna. Hann segir markmiðið með þeim einfaldlega verða að koma flugvell- inum burt. „Okkur fannst nauðsyn- legt að stofna samtök sem geta tal- að einni röddu,“ segir Andrés og minnir á að stuðningsmenn flugvall- arins hafa þegar stofnað til félags- skapar. Hann segir samtökin þver- pólitísk. „Menn eru á móti þessum flug- velli af alls konar ástæðum,“ segir Andrés. Þeir hafi líka mismunandi skoðanir á því hvar flugvöllur fyrir innanlandsflug eigi að vera. Það sé í raun allt önnur og talsvert flóknari umræða. Það skorti einnig allar for- sendur fyrir valkostum, s.s. um- hverfismat og fjárhagsáætlun. Þó ekki sé búið að ákveða nákvæmlega um hvað verður spurt í kosningum um framtíð flugvallarins virðist flest stefna í það að Reykvíkingar geti valið um tvo kosti. Annaðhvort fari flugvöllurinn eða verði áfram í Vatnsmýrinni. Andrés segir ljóst að samtökin muni eiga við ramman reip að draga þar sem ýmsir embættismenn hafi lýst þeirri skoðun sinni að flugvöll- urinn eigi að vera áfram í Vatns- mýrinni og geti í raun hvergi annars staðar verið. „Þegar nær dregur kosningum er alveg ljóst að það verður ekki hjá því komist að aug- lýsa,“ segir Andrés. Samtökin muni því væntanlega safna peningum til að standa straum af auglýsingum til styrktar málstaðnum. Aðspurður um hvenær hann komst fyrst á þá skoðun að flugvöll- urinn þyrfti að fara úr Vatnsmýr- inni segir Andrés það hafa gerst þegar hann ók nær daglega um Hringbrautina vegna vinnu sinnar. Þegar ekið sé austur eftir Hring- brautinni sé útsýni yfir fallegasta svæði Reykjavíkur á vinstri hönd þar sem Hljómskálagarðurinn er. Á hægri hönd sé ljótasti blettur borg- arinnar, þ.e. flugvöllurinn. „Fólk hefur í nokkur þúsund ár ákveðið að byggja borgir saman. Það hefur ekki gert það vegna þess að það sé svo frábært flugvallarstæði þar. Það gerir það af því að það vill vera í samneyti við annað fólk,“ segir Andrés. Hann segir jafnvel þá sem vilja halda flugvellinum í Vatnsmýr- inni gera sér grein fyrir því að það kæmi að því að flugvöllurinn þyrfti að fara. Spurningin væri bara hve- nær. „Ég spyr bara. Hvers er að bíða?“ Helmingur miðborgarsvæð- isins lagður undir flugvöll Bryndís Loftsdóttir tekur í sama streng. Hún segir að staðsetning flugvallarins í Vatnsmýrinni sé skelfilegt slys. „Þetta er lýti á borg- inni,“ segir Bryndís. „Ég vil borg- inni betur en svo að helmingur mið- borgarsvæðisins fari undir einhvern relluflugvöll.“ Hún segir flugvöllinn þó ekki einkamál Reykvíkinga. „Þetta er kannski í fyrsta skipti sem Reykvíkingar fá tækifæri til að hafa skoðun á borginni sinni og hafa áhrif á framtíð hennar,“ segir Bryn- dís. Meirihluti landsmanna búi þó á höfuðborgarsvæðinu og stór hluti íbúa á landsbyggðinni aki fremur en fljúgi til Reykjavíkur. Þá sé viðbúið að ferðir sveitarstjórnarmanna og annarra vegna fundarhalda í borg- inni dragist saman með nýrri tækni. Borgarafundur í Ráðhúsinu Samtök gegn flug- velli í Vatnsmýrinni verða stofnuð í dag HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur hafnað kröfu Fimleikafélags Hafnarfjarðar (FH) um að fjár- nám að upphæð tæplega 3,5 millj- ónum króna með dráttarvöxtum frá 17. september 1999, sem sýslu- maðurinn í Hafnarfirði gerði í fast- eignum félagsins í Kaplakrika, verði ógilt. Upphaf málsins má rekja til þess að af hálfu skattrannsóknar- stjóra fór snemma á síðasta áratug fram almenn athugun á skattskil- um íþrótta- og ungmennafélaga á landinu. Sú athugun benti til þess að skattskil knattspyrnudeildar FH væru í ólagi. Hinn 14. febrúar 1994 hóf skattrannsóknarstjóri ríkisins rannsókn á skattskilum knattspyrnudeildarinnar og óskaði eftir bókhaldsgögnum og færðu bókhaldi hennar. Ársskýrslur og ársreikningar og ýmsar upplýsing- ar varðandi rekstur aðalstjórnar, handknattleiksdeildar, knatt- spyrnudeildar og frjálsíþrótta- deildar félagsins vegna rekstrarár- anna 1989 til 1993. Í kjölfar rannsóknar voru opinber gjöld, að- allega virðisaukaskattur, endur- ákvörðuð. Málinu var vísað til yf- irskattanefndar sem staðfesti ákvörðun skattstjóra að hluta. Við rannsóknina kom í ljós að bókhaldi var verulega ábótavant, m.a. vant- aði ýmis bókhaldsgögn. Kröfu um gjaldþrotaskipti hafnað Skattakrafan var hins vegar ekki greidd og gerði sýslumaður því árangurslaust fjárnám hjá knattspyrnudeild FH í apríl 1999 vegna gjaldanna. Í júlí 1999 óskaði sýslumaður eftir gjaldþrotaskipt- um á búi knattspyrnudeildarinnar en Héraðsdómur Reykjaness hafn- aði þeirri kröfu. Hinn 9. nóvember 1999 sendi sýslumaður FH greiðsluáskorun og skoraði á félagið að greiða virðisaukaskatt- inn innan 15 daga. Því var ekki sinnt og ritaði sýslumaður þá hinn 8. desember 1999 aðfararbeiðni. Málið var tekið fyrir hjá sýslu- manni í Hafnarfirði hinn 28. janúar 2000 en þar mótmælti FH gerð- inni. Sýslumaður ákvað hins vegar að hún skyldi ná fram að ganga og vísaði FH þeim ágreiningi til Hér- aðsdóms Reykjaness. Byggði félagið m.a. á því að lagaskilyrði hafi skort fyrir rannsókn skatt- rannsóknarstjóra og endurálagn- ingu. Skattrannsókninni hafi ekki verið beint að FH og aðalstjórn þess fyrir utan fyrstu tilkynningu skattrannsóknarstjóra. Rannsókn- inni hafi verið beint að undirdeild félagsins sem geti ekki sjálfstætt borið réttindi og skyldur og beri ekki ábyrgð á fjármálum félagsins og fari ekki með málefni þess gagnvart skattyfirvöldum. Héraðsdómur taldi hins vegar að formaður og varaformaður að- alstjórnar FH hafi fylgst með gangi málsins og rannsókn skatt- yfirvalda á einni af undirdeild að- alstjórnar. Því yrði ekki fallist á það, að skattrannsóknin hafi beinst að þriðja manni eða einhverjum óviðkomandi aðila. Rannsóknin hafi beinst að undirdeild félagsins sem aðalstjórn bæri ábyrgð á, enda njóti undirdeild í íþrótta- félagi ekki rétthæfis sem félag eða stofnun. Þá hafi skattyfirvöld gefið félaginu andmælarétt á öllum stig- um og hafi hann verið þeginn í öll- um tilvikum, annaðhvort af knatt- spyrnudeildinni, aðalstjórn eða lögmönnum sóknaraðila. Skattyf- irvöld hafi því fullnægt tilkynn- inga- og upplýsingaskyldu sinni. Þá féllst héraðsdómur heldur ekki á það með FH að lög um tekju- og eignaskatt hafi verið brotin á hon- um enda hafi félagið ekki bent á nein atriði til stuðnings þeirri málsástæðu, hvorki í greinargerð né í málflutningi. Héraðsdómur Reykjaness Kröfu FH um ógild- ingu fjárnáms hafnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.